Bændablaðið - 28.04.2022, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202224
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
√ Kardimommubær Freyvangsleikhússins var frumsýndur
þann 4. mars nk. við frábærar undirtektir og fullt hús. Miða má finna á tix.
is eða í síma 857-5598, en sýnt verður áfram næstu vikur.
√ Leikfélag Hólmavíkur
hefur í sýningu farsann
Bót og betrun. Nú eru
eftir tvær sýningar, þann 29.
og 30. apríl, þá lokasýning.
Hægt er að kaupa súpu á
Sauðfjársetrinu fyrir sýningar
og opnar húsið 18:30, en
miða- og súpupantanir eru
í síma 693 3474.
√ Nei, ráðherra er á fjölunum hjá Leikfélagi Sauðárkróks
og enn eru þó nokkrar sýningar eftir. Sýnt verður laugardaginn 30.
apríl klukkan 18:00, sunnudaginn 1. maí, 4., 6. og 7. maí klukkan 20:00,
sunnudaginn 8. maí klukkan 16:00, svo 11. og 13. maí klukkan 20:00,
laugardaginn 14. maí kl. 16:00 og lokasýning verður sunnudaginn 15.
maí klukkan 20:00. Miðasala er í síma 849 9434.
Hvað er í gangi?!
Leikfélag Sauðárkróks hefur
nú til sýninga gamanleikinn
drepfyndna, Nei, ráðherra, úr
smiðju Rays Cooney en verkið
hefur slegið í gegn víða um heim.
Mikið gengur á í verkinu sem í
þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar og
leikstjórn Jóels Sæmundssonar kitlar
hláturtaugarnar svo um munar.
Í stuttu máli er söguþráðurinn á
þá vegu að ráðherra nokkur lendir
í hinu mesta brasi þegar kemur
skyndilega að því að losna við lík
af hótelherbergi hans. Þar höfðu
þau viðhaldið (sem er reyndar
hliðholl stjórnarandstöðunni)
ætlað að eiga notalega stund, en
þess í stað virðist ekkert ætla að
ganga upp hjá ráðherranum. Hann
skipar til sín aðstoðarmanni sínum
sem lendir í skítverkunum – fela
verksummerki, losna við líkið, múta
þjóni, sjá um viðhaldið auk þess að
gæta þess að halda öllu leyndu fyrir
afbrýðisömum betri helmingnum.
Alls koma þrjátíu og fimm
manns að sýningunni, þar af tíu á
sviði, blanda af reynsluboltum og
öðrum sem eru að stíga sín fyrstu
skref á sviðinu.
Frumsýning var sunnudaginn 24.
apríl en alls verða sýningarnar þrettán
talsins. Sýnt verður laugardaginn 30.
apríl klukkan 18:00, sunnudaginn 1.
maí, 4., 6. og 7. maí klukkan 20:00,
sunnudaginn 8. maí klukkan 16:00,
svo 11. og 13. maí klukkan 20:00,
laugardaginn 14. maí kl. 16:00 og
lokasýning verður sunnudaginn 15.
maí klukkan 20:00
Miðapantanir í síma 849 9434.
/SP
Nú hefur Leikfélag Hólmavíkur
sett upp farsann Bót og betrun
eftir Michael Cooney undir stjórn
Sigurðar Líndal leikstjóra.
Æfingatímabilið gekk alveg
ljómandi vel í alla staði og hófust
sýningar á páskadag í húsnæði
Sauðfjársetursins á Ströndum – í
félagsheimilinu Sævangi.
Verkið gerist í London og
fjallar um Eric Swan, sem hefur
verið duglegur að svíkja út bætur
síðustu tvö árin. Hann ætlar sér þó
að minnka svindlið sem þá vindur
upp á sig með sífellt skrautlegri
afleiðingum. Inn í málið flækjast
meðal annars leigjandinn hans,
sambandsráðgjafi og útfararstjóri,
svo einhverjir séu nefndir.
Tíu leikarar taka þátt í
uppsetningunni á Bót og betrun,
fimm konur og fimm karlar. Á bak
við tjöldin starfar fjöldi fólks auk
leikstjórans, við sviðsmynd og ljós,
búninga og förðun, markaðsefni
og gerð leikskrár. Nú eru eftir tvær
sýningar, þann 29. og 30. apríl,
þá lokasýning. Hægt er að kaupa
súpu á Sauðfjársetrinu fyrir sýningar
og opnar húsið 18:30, en miða- og
súpupantanir eru í síma 693 3474
(hjá henni Ester).
Gaman er að geta þess að nýverið
setti leikfélagið á fót heimasíðuna
leikholm.is, en þar er að finna margs
konar fróðleik og hin helstu tíðindi
félagsins. /SP
Fjöldi manns kemur að sýningunni sem vakið hefur mikla gleði – bæði hjá áhorfendum og innan leikhópsins – en
hér má sjá stóran hluta þeirra listamanna. Myndir / Gunnhildur Gísladóttir.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
Fimm hurða farsinn Bót og betrun:
Leikfélag Hólmavíkur bregður á leik
Leikfélag Sauðárkróks:
Nei, ráðherra kitlar hláturtaugarnar
Bót og Betrun!
Samhentur hópur leikara kemur að sýningunni, en auk þeirra starfar fjöldi
fólks á bak við tjöldin enda verkefni í hverju horni.
Þarna má sjá þá Norman McDonald
og Eric Swan, sem leiknir eru af Eiríki
Valdimarssyni og Einari Indriðasyni.
Einhver þreyta virðist í gangi hjá Georg
frænda (Jóni Jónssyni) en í bakgrunni
eru þau Jenkins, sem leikin er af
Guðlaugu G.I. Bergsveinsdóttur og
svo áðurnefndur Norman McDonald.
Móttökustjórinn, sem leikinn er af Inga Sigþóri Gunnarssyni, reynir að hafa stjórn
á aðstæðum og stilla til friðar milli Guðfinns (Guðbrands J. Guðbrandssonar)
og Atla Geirs sem leikinn er af Þorgrími Svavari Runólfssyni.
Brúðkaupsmynd eða hvað? Þjónninn í höndum Árna Jónssonar sést hér með
Örvari, þernunni og Rannveigu, sem leikin eru af Hauki Skúlasyni, Fanneyju
Rós Konráðsdóttur og Ingu Dóru Ingimarsdóttur.
Þarna takast þau á þau Guðfinnur og Hlédís, sem leikin eru af Guðbrandi J.
Guðbrandssyni og Elvu Björk Guðmundsdóttur.