Bændablaðið - 28.04.2022, Side 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 43
Lífið fer hring eftir hring og þannig
er aftur komið vor með tilheyrandi
viðfangsefnum sem sum hver eru
þau sömu og í fyrra en önnur ekki.
Rótin lifnar, eða kannski ekki,
sumt kemur á óvart en annað
ekki. Og svo vaxa sprotarnir upp,
en kannski mismikið, allt eftir
umhverfi og aðstæðum. Jarðrækt
fer fram bæði ofan- og neðanjarðar
og því eru margir þættir sem hafa
áhrif á árangur hennar í sínum
víðasta skilningi.
Sveigjanleg ráðgjöf
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) býður upp á ráðgjafarpakka
í jarðrækt sem nefnist Sprotinn.
Markmiðið með Sprotanum er að
veita bændum markvissa ráðgjöf
í ræktun með það að leiðarljósi að
bæta nýtingu áburðar og hagkvæmni
fóðuröflunar.
Í Sprotanum er aðstoðað við
skráningar í Jörð og umsóknir um
jarðræktarstyrki og landgreiðslur,
viðhald túnkorta og áburðaráætlun
svo eitthvað sé nefnt. Þessu til
viðbótar er heimsókn ráðunautar,
oftast að hausti, sem hægt er að
nýta til skrafs og ráðagerða og
hugsanlega jarðvegssýnatöku.
Ekki er innheimt komugjald
fyrir heimsóknina. Þess ber að
geta að hægt er að velja á milli
tveggja misstórra pakka, sem
innifela annaðhvort 7 eða 11
klukkutíma vinnu. Áhersla er lögð
á einstaklingsmiðaða ráðgjöf
þannig að hægt sé að þjónusta
hvern og einn eftir þörfum og
leggja áherslu á þá þætti sem óskað
er eftir hverju sinni.
Þannig getur hver og einn
ákveðið í samráði við ráðunaut
hvað leggja eigi áherslu á en það
er sérstaklega gott þegar bændur
nýta sér ráðgjöf í Sprota árlega.
Rétt er að benda á að auðvelt er
að aðlaga ráðgjöf innan Sprotans
að útiræktun á grænmeti.
Vaxandi hópur
Fjöldi bænda sem nýta sér
jarðræktarráðgjöf í gegnum
Sprotann hefur vaxið ár frá ári.
Á síðasta Sprota-ári voru tæplega
60 býli sem nýttu sér ráðgjöfina.
Eitt af því sem gert er fyrir hvert
bú er að reikna og setja fram
kostnað vegna áburðarnotkunar
miðað við skráða uppskeru, sjá
meðfylgjandi mynd.
Vert er að benda á að upplýsing-
arnar byggja á skráningum í Jörð.
is og ef villa er í þeim kemur hún
fram við alla greiningu sem unnin
er út frá þeim.
Því er mjög mikilvægt að vanda
alla skráningu til að gögnin gefi sem
réttasta mynd hverju sinni. Þegar
myndin er skoðuð er áhugavert að
sjá breytileika milli búa.
Vertu með!
Sprotinn er góð leið til að fá faglega
ráðgjöf um jarðrækt. Áherslurnar
geta verið breytilegar eftir búum
og árum en markmiðið er alltaf að
leita nýrra leiða til að gera betur í
sinni ræktun á einn eða annan hátt.
Svo er ekki verra að fá áminningar
um skráningar og skil.
Hægt er að lesa sér nánar til
um Sprotann á heimsíðu RML,
undir Jarðrækt/Ráðgjafapakkar
eða fá upplýsingar hjá undirritaðri
í thorey@rml.is.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Jarðrækt – Sprotinn
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46 48 50 52 54 56 58 60
Kr
ón
ur
á
k
íló
gr
öm
m
þ
ur
re
fn
is
Bú, raðnúmer
Áburðarkostnaður á kg þurrefnis
Þórey Gylfadóttir
jarðræktarráðunautur RML
thorey@rml.is
M-LISTI
SAMFÉLAGSINS Í NORÐURÞINGI
Kosningaskrifstofa M-listans Lyngási 2
Opin alla daga frá 17:00 – 19:00
Sími: 839-9155 · Netfang: 700@midflokkurinn.is
f Miðflokkurinn í Múlaþingi
Blogg: xmulathing.blog.is
Ef þú vilt senda okkur línu er netfangið aki@vikurraf.is
6. Snorri Jónsson
7. Sigurður Ragnarsson
8. Gestur Bergmann Gestson
9. Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir
10. Guðjón Sigurðsson
11. Benedikt Vilhjámsson Warén
12. Ingibjörg Kristín B Gestsdóttir
13. Stefán Scheving Einarsson
14. Viðar Gunnlaugur Hauksson
15. Grétar Heimir Helgason
16. Sveinn Vilberg Stefánsson
17. Broddi Bjarni Bjarnason
18. Rúnar Sigurðsson
19. Ingjaldur Ragnarsson
20. Sunna Þórarinsdóttir
21. Sigurbjörn Heiðdal
22. Pétur Guðvarðsson
Þröstur
Jónsson1 Hannes Karl
Hilmarsson2
Örn Bergmann
Jónsson3 Björn Ármann
Ólafsson4 Þórlaug Alda
Gunnarsdóttir
Áki
Hauksson1 Ingibjörg Hanna
Sigurðardóttir2
Birkir Freyr
Stefánsson3 Ágústa
Ágústsdóttir4
5
Seu
X við M Seu X við úlaþing
ÞAÐ MUNAR UM MIÐFLOKKINN!
Hefur þú áhuga
á að flytja?
Ertu með áhugaverða
atvinnuáætlun
Hvernig getum
við aðstoðað?
MIÐFLOKKURINN Í MÚLAÞINGI
5. Sævar Veigar Agnarsson
6. Alexander G. Jónasson
7. Gunnar Páll Baldursson
8. Elva Björk Óskarsdóttir
9. Anný Peta Sigmundsdóttir
10. Gunnar Björnsson
11. María Guðrún Jónsdóttir
12. Daníel Atli Stefánsson
13. Agnar Kári Sævarsson
14. Sigurður A. Ásmundsson
15. Heimir Sigurgeirsson
16. Sigmundur Þorgrímsson
17. Árni Stefán Guðnason
18. Guðmundur A. Hólmgeirsson
- Tryggjum Reksturinn - Tryggjum jafnræði
- Fleira fólk fleiri íbúðir - Breið samstaða
M
Í Múlaþingi mörgu að sinna
margt þar á sér að og und
Gkur - hér go að vinna
Gka - komdu á okkar fund
Finndu okkur á Facebook og Instagram
fi ‘M-listi samfélagsins’
Ný uppskera af Sandvíkurrófufræi
komið í sölu
• Þolir vel íslenskt veðurfar
• 1000 fræ í aðeins 2.2 gr
• Spírun 99.3 % líkur
• Fljótsprottið
Til að panta fræ eða nánari upplýsingar:
www.skalpur.com - Sími: 660-8038
sandvikurrofur@gmail.com