Bændablaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202246
Fyrir nokkru síðan frumsýndi
Askja nýjan Honda HR-V Hybrid-
bíl, sjálfskiptan, framhjóladrifinn
með 1.498 cc. bensínvél + rafmagn
sem á að skila samanlagt yfir
130 hestöflum. Ég tók bílinn í
prufuakstur fyrir nokkru síðan
og var nokkuð sáttur fyrir utan
nokkur atriði.
Þægilegur í akstri og rúmgóður
Að keyra bílinn er þægilegt fyrir
utan eitt atriði, en aldrei áður hef
ég kvartað undan gólfmottum í bíl.
Af þessum gólfmottum var ég ekki
hrifinn. Motturnar eru svo hálar að
í beygjum og þegar ekið er í holur
rennur hællinn til á fætinum sem
er á gjöfinni og hvílir á mottunni
til hliðar, en mér fannst þetta ekki
boðlegt. Annaðhvort var þetta efnið
í mottunum eða eitthvert efni sem á
þær var sett sem ekki var að virka,
en allavega er þetta í fyrsta sinn sem
ég gef gólfmottum í bíl falleinkunn.
Eins og alla bíla sem ég prófa var
byrjað á að hávaðamæla bílinn á 90
km hraða og mælingin kom vel út
því hávaðinn inni í bílnum mældist
ekki nema 69,5db. þrátt fyrir gróf
vetrardekk og töluverða rigningu
(Gæti vel trúað að mælingin í
þurru á sumardekkjum væri nálægt
66-67db.).
Þrjár mismunandi
akstursstillingar
Hægt er að velja um þrjár
mismunandi akstursstillingar,
Sport, Normal og Econ og eyðslan
er mismunandi eftir því á hvaða
stillingu maður setur. Vissulega
fannst mér skemmtilegast að keyra
bílinn í Sport-stillingunni, en við
mælingu á minni eldsneytiseyðslu
var hún þá um 7,6 lítrar á hundraðið.
Þegar ég keyrði í Econ-stillingunni
var tölvan að segja mig eyða 4,6
lítrum á hundraðið, en mér fannst
bíllinn fulllatur og viðbragðið ekki
spennandi á Econ-stillingunni.
Uppgefin eyðsla í sölubæklingi er
5,4 í blönduðum akstri á Honda HR-
V. Á erlendum vefsíðum er uppgefin
meðaleyðsla enn minni, en lægsta
uppgefin eyðsla sem ég fann er 4,2
á hundraðið í blönduðum akstri.
Allavega fannst mér aksturstölvan
segja mig eyða óeðlilega litlu miðað
við mitt aksturslag.
Prufuaksturinn var
nálægt 200 km
Fyrst ók ég í langkeyrslu og fannst
þægilegt að keyra bílinn, sætin góð
og rými mikið.
Næst var það malarkeyrslan,
en þar var aðeins malarhljóð
undir bílnum sem var að trufla,
fjöðrunarkerfið virkar fínt, en það
sem var að trufla mest á mölinni er
lágur prófíll hjólbarðanna sem var
ekki að gera mikið fyrir fjöðrunina
(225/50/18 er ekki skemmtileg
dekkjastærð fyrir malarvegaakstur).
Á mikið skemmdum malbikuðum
götum Reykjavíkur eru bæði dekk
og felgur í hættu og hreinlega
spurning um hvort ekki væri hægt
að minnka felgurnar fyrir annars
slæmt vegakerfi sem við búum við.
Gott verð og mikið af
öryggisbúnaði og aukaþægindum
Verðið á Honda HR-V er gott,
eða frá 5.390.000 (Elegance) upp
í 6.190.000 (Advance Style), en
bíllinn sem var prófaður kostar
5.790.000 og heitir Honda HR-V
Advance.
Óneitanlega er þægilegt að vera
með hita í stýrinu (finnst að það
ætti að vera í öllum bílum). Bíllinn
skiptir sjálfvirkt upp og niður háu
ljósunum úti á vegi, nálgunarvarar
eru bæði að framan og aftan,
blindhornsvari á hliðum og gefur
viðvörunarljós í hliðarspegli.
Akreinalesari er í bílnum, árekstrar-
vörn, RDM rásvörn.
Kostir og gallar
Kostirnir eru; gott verð, 5 ára
ábyrgð, þægilegur og rúmgóður
bæði fyrir farþega og farangur.
Mjög mikið af aukabúnaði er í
boði á þennan bíl (Honda hefur alltaf
boðið upp á mikið af aukahlutum í
flesta sína bíla).
Ókostir eru ekki margir, en ég
hefði viljað hafa varadekk sem mér
finnst sárlega vanta. Bíllinn er að
vísu með dekkjaviðgerðarsett sem
ekki allir kunna og hafa þekkingu
til að nota.
Gólfmotturnar fram í bíl of hálar.
Bíllinn er ekki gefinn upp með neina
dráttargetu. Samkvæmt því er ekki
hægt að nota hann til að draga kerru
og hjólhýsi.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Honda HR-V Advance. Myndir / HLJ
Finnst alltaf flott að sjá afturljós sem eru þvert yfir bíl.
Alltaf hef ég verið hrifinn af hliðarspeglum í Hondabílum.
Fín mæling á vetrardekkjum og í
rigningu.
Fer vel um 2 aftursætisfarþega, en lítið spennandi að sitja í miðjunni.
Þessi gólfmotta fékk falleinkunn hjá
mér.
Best er að hafa þennan takka alltaf
svona og slökkva aldrei, þá er maður
alltaf löglegur í umferðinni.
Fjórir síðustu túrar og eyðslan
í hverjum þeirra á mismunandi
akstursstillingum.
Svolítill sóði upp á hliðar en minni að aftan.
Þyngd 1.380 kg
Hæð 1.582 mm
Breidd 1.790mm
Lengd 4.340 mm
Helstu mál og upplýsingar