Bændablaðið - 28.04.2022, Qupperneq 46

Bændablaðið - 28.04.2022, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202246 Fyrir nokkru síðan frumsýndi Askja nýjan Honda HR-V Hybrid- bíl, sjálfskiptan, framhjóladrifinn með 1.498 cc. bensínvél + rafmagn sem á að skila samanlagt yfir 130 hestöflum. Ég tók bílinn í prufuakstur fyrir nokkru síðan og var nokkuð sáttur fyrir utan nokkur atriði. Þægilegur í akstri og rúmgóður Að keyra bílinn er þægilegt fyrir utan eitt atriði, en aldrei áður hef ég kvartað undan gólfmottum í bíl. Af þessum gólfmottum var ég ekki hrifinn. Motturnar eru svo hálar að í beygjum og þegar ekið er í holur rennur hællinn til á fætinum sem er á gjöfinni og hvílir á mottunni til hliðar, en mér fannst þetta ekki boðlegt. Annaðhvort var þetta efnið í mottunum eða eitthvert efni sem á þær var sett sem ekki var að virka, en allavega er þetta í fyrsta sinn sem ég gef gólfmottum í bíl falleinkunn. Eins og alla bíla sem ég prófa var byrjað á að hávaðamæla bílinn á 90 km hraða og mælingin kom vel út því hávaðinn inni í bílnum mældist ekki nema 69,5db. þrátt fyrir gróf vetrardekk og töluverða rigningu (Gæti vel trúað að mælingin í þurru á sumardekkjum væri nálægt 66-67db.). Þrjár mismunandi akstursstillingar Hægt er að velja um þrjár mismunandi akstursstillingar, Sport, Normal og Econ og eyðslan er mismunandi eftir því á hvaða stillingu maður setur. Vissulega fannst mér skemmtilegast að keyra bílinn í Sport-stillingunni, en við mælingu á minni eldsneytiseyðslu var hún þá um 7,6 lítrar á hundraðið. Þegar ég keyrði í Econ-stillingunni var tölvan að segja mig eyða 4,6 lítrum á hundraðið, en mér fannst bíllinn fulllatur og viðbragðið ekki spennandi á Econ-stillingunni. Uppgefin eyðsla í sölubæklingi er 5,4 í blönduðum akstri á Honda HR- V. Á erlendum vefsíðum er uppgefin meðaleyðsla enn minni, en lægsta uppgefin eyðsla sem ég fann er 4,2 á hundraðið í blönduðum akstri. Allavega fannst mér aksturstölvan segja mig eyða óeðlilega litlu miðað við mitt aksturslag. Prufuaksturinn var nálægt 200 km Fyrst ók ég í langkeyrslu og fannst þægilegt að keyra bílinn, sætin góð og rými mikið. Næst var það malarkeyrslan, en þar var aðeins malarhljóð undir bílnum sem var að trufla, fjöðrunarkerfið virkar fínt, en það sem var að trufla mest á mölinni er lágur prófíll hjólbarðanna sem var ekki að gera mikið fyrir fjöðrunina (225/50/18 er ekki skemmtileg dekkjastærð fyrir malarvegaakstur). Á mikið skemmdum malbikuðum götum Reykjavíkur eru bæði dekk og felgur í hættu og hreinlega spurning um hvort ekki væri hægt að minnka felgurnar fyrir annars slæmt vegakerfi sem við búum við. Gott verð og mikið af öryggisbúnaði og aukaþægindum Verðið á Honda HR-V er gott, eða frá 5.390.000 (Elegance) upp í 6.190.000 (Advance Style), en bíllinn sem var prófaður kostar 5.790.000 og heitir Honda HR-V Advance. Óneitanlega er þægilegt að vera með hita í stýrinu (finnst að það ætti að vera í öllum bílum). Bíllinn skiptir sjálfvirkt upp og niður háu ljósunum úti á vegi, nálgunarvarar eru bæði að framan og aftan, blindhornsvari á hliðum og gefur viðvörunarljós í hliðarspegli. Akreinalesari er í bílnum, árekstrar- vörn, RDM rásvörn. Kostir og gallar Kostirnir eru; gott verð, 5 ára ábyrgð, þægilegur og rúmgóður bæði fyrir farþega og farangur. Mjög mikið af aukabúnaði er í boði á þennan bíl (Honda hefur alltaf boðið upp á mikið af aukahlutum í flesta sína bíla). Ókostir eru ekki margir, en ég hefði viljað hafa varadekk sem mér finnst sárlega vanta. Bíllinn er að vísu með dekkjaviðgerðarsett sem ekki allir kunna og hafa þekkingu til að nota. Gólfmotturnar fram í bíl of hálar. Bíllinn er ekki gefinn upp með neina dráttargetu. Samkvæmt því er ekki hægt að nota hann til að draga kerru og hjólhýsi. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Honda HR-V Advance. Myndir / HLJ Finnst alltaf flott að sjá afturljós sem eru þvert yfir bíl. Alltaf hef ég verið hrifinn af hliðarspeglum í Hondabílum. Fín mæling á vetrardekkjum og í rigningu. Fer vel um 2 aftursætisfarþega, en lítið spennandi að sitja í miðjunni. Þessi gólfmotta fékk falleinkunn hjá mér. Best er að hafa þennan takka alltaf svona og slökkva aldrei, þá er maður alltaf löglegur í umferðinni. Fjórir síðustu túrar og eyðslan í hverjum þeirra á mismunandi akstursstillingum. Svolítill sóði upp á hliðar en minni að aftan. Þyngd 1.380 kg Hæð 1.582 mm Breidd 1.790mm Lengd 4.340 mm Helstu mál og upplýsingar

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.