Skessuhorn - 08.09.2021, Qupperneq 2
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 20212
Haustið er farið að gera vart við
sig með tilheyrandi lægðagangi.
Haustinu fylgja réttir og jafn-
framt fjárrekstur. Ökumenn eru
minntir á að gæta varúðar, bæði
þar sem fé er rekið yfir vegi en
ekki síður vegna fjár sem fjölg-
ar við vegi og getur verið óút-
reiknanlegt í hegðun. Þá eru eig-
endur trampólína og annarra
fokgjarnra muna minntir á að
ganga tryggilega frá þeim.
Á morgun, fimmtudag, er gert
ráð fyrir hægri suðvestlægri
eða breytilegri átt, bjart verður
með köflum. Hiti 8 til 13 stig að
deginum. Á föstudag og laug-
ardag er reiknað með norð-
lægri eða breytilegri átt, 3-8 m/
sek og rigningu af og til, en yfir-
leitt þurrt á SA- og A-landi. Hiti
5 til 12 stig. Á sunnudag geng-
ur í ákveðna suðaustanátt með
talsverðri rigningu S- og V-lands,
en úrkomuminna verður NA-til.
Heldur hlýnandi. Sunnanátt og
rigning á mánudag, en úrkomu-
lítið N- og A-lands. Milt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvað finnst þér
um götótt föt sem seld eru í
búðum?“ 69% svarenda sögðu
„Mjög ljót tíska,“ 24% svarenda
sögðu „Allt í lagi“ við spurn-
ingunni og 8% sögðu: „Bara frá-
bær.“
Í næstu viku er spurt: „Hvað
finnst þér um agúrkur“?
Tinna Ósk Grímarsdóttir og Axel
Freyr Gíslason opnuðu í síðustu
viku leikfangaverslunina Dótarí
á Akranesi. Stappfull verslun af
leikföngum og gjafavöru á betra
verði en þekkst hefur. Tinna og
Axel eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Keypt og rifið
BORGARNES: Geng-
ið hefur verið frá kaupum
borgarbyggðar á húsinu við
borgarbraut 55 í borgarnesi,
sem síðast hýsti bifreiðaþjón-
ustu Harðar og verslun Líf-
lands. Þá samþykkti byggð-
arráð á fundi sínum síðast-
liðinn fimmtudag að húsið á
lóðinni verði selt til niðurrifs
og í kjölfar þess uppbygging-
ar á lóðinni í samræmi við
deiliskipulag. Sölunni fylgi
lóðarleigusamningur til 50
ára. byggðarráð fól sveitar-
stjóra að semja við fasteigna-
sölu um sölu fasteignarinnar.
-mm
Dregur úr
fjölda smita
VESTURLAND: Hratt
dregur úr þeim sem dúsa í
einangrun með Covid-19
á Vesturlandi sem og þeim
sem þurfa að sæta sóttkví.
Samkvæmt samantekt Lög-
reglunnar á Vesturlandi síð-
astliðinn mánudag voru ell-
efu í einangrun á Akranesi
og tveir í Stykkishólmi. 19
manns voru þá í sóttkví, all-
ir á Akranesi. Þetta er tals-
verður munur frá því fyrir
helgi þegar 42 voru í sóttkví
í landshlutanum og 22 í ein-
angrun. Samhljómur er með
þessum tölum og þróun á
landsvísu, en mjög hefur
dregið úr greiningu smitaðra
síðustu daga og er faraldur-
inn nú í rénun. -mm
Leggja Héraðs-
nefnd niður
DALIR: Á fundi byggðar-
ráðs dalabyggðar 26. ágúst
síðastliðinn var samþykkt
samhljóða að leggja til við
sveitarstjórn að leggja Hér-
aðsnefnd dalasýslu nið-
ur. „Héraðsnefnd dalasýslu
hafði verkefni á meðan fleiri
en eitt sveitarfélag var í sýsl-
unni. Eftir að sveitarfélögin
sem áttu aðild að Héraðs-
nefndinni sameinuðust í
dalabyggð hefur hún ekk-
ert hlutverk lengur og hefur
dalabyggð sinnt verkefnum
sem voru á vettvangi henn-
ar og staðið undir kostnaði
vegna þeirra. Því er lagt til
að Héraðsnefnd dalasýslu
verði lögð niður og verkefni
og eignir flytjist til dala-
byggðar.“ -mm
undanfarna mánuði hefur farið
fram undirbúningur vegna nýrr-
Í mars síðastliðnum var auglýst út-
boð á sjóvörnum í Snæfellsbæ þar
sem átti annars vegar að byggja sjó-
varnir vestan Gufuskála til að verja
gömlu verbúðirnar fyrir ágangi
sjávar. Hins vegar voru í verkinu
boðnar út sjóvarnir við Ólafsbraut
í Ólafsvík. Lægsta boð í verkið kom
frá Grjótverki í Reykjavík. Áttu
verklok upphaflega að vera eigi síð-
ar en 31. júlí en verkið hefur dreg-
ist nokkuð vegna breytinga á hönn-
un við Ólafsbraut.
Rob kamsma, umsjónarmaður
verksins hjá Vegagerðinni, segir
að væntanleg verklok við sjóvörn í
Ólafsvík verði í þessari eða næstu
viku. Þá fara framkvæmdir strax
af stað við Gufuskála og eru áætl-
uð verklok þar í október. „Verk-
in voru boðin út sem eitt verk en
áhersla lögð á að klára Ólafsvík á
undan Gufuskálum. Verkið er unn-
ið af Grjótverki, og framkvæmdin
er mjög fagleg og verkkaupi mjög
sáttur við niðurstöður framkvæmda
í dag,“ segir Rob.
arg
Matvælastofnun barst mánudag-
inn 30. ágúst tilkynning frá Arn-
arlaxi um gat á nótarpoka einn-
ar sjókvíar fyrirtækisins við Haga-
nes í Arnarfirði. Gatið uppgötvað-
ist við neðansjávareftirlit og er við-
gerð á því lokið. Samkvæmt upplýs-
ingum Arnarlax var gatið á tveggja
metra dýpi og reyndist vera um það
bil 2x2 metrar að stærð. Í þessari
tilteknu kví voru um 120.000 lax-
ar með meðalþyngd 0,8 kg. Neðan-
sjávareftirlit hafði áður verið fram-
kvæmt 31. júlí síðastliðinn og var
nótarpokinn þá heill.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun
segir að eftirlitsmaður frá
stofnuninni hafi skoðað aðstæður og
viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið
til meðferðar hjá stofnuninni.
Arnarlax lagði út net í samráði
við Fiskistofu til að kanna hvort
strok hafi átt sér stað. Netanna
var vitjað síðdegis á mánudag og
þriðjudag. Á mánudag komu tveir
fiskar í netin sem reyndust að
öllum líkindum sjóbirtingar og á
þriðjudag veiddist einn lax sem var
rúm tvö kg. Fiskarnir verða sendir
til Hafrannsóknastofnunar til
greiningar. mm
Framkvæmdir hafa dregist við sjóvarnir í Snæfellsbæ
Nú eru framkvæmdir við sjóvörn við Ólafsbraut á lokametrunum. Ljósm. af.
Mynd frá síðari áfanga fornleifauppgraftrar á Gufuskálum árið 2014. Þegar
framkvæmdum lauk var sandpokum raðað upp til varnar fornminjunum við
Gufuskálavör. Sífellt hefur nagast úr bakkanum eftir það en grjótvörn nú í haust
ætti að stöðva ágang sjávar. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Fjallað verður um 120 ára sögu
Snæfellsness í nýrri grunnsýningu
ar grunnsýningar sem sett verð-
ur upp í byggðasafni Snæfellinga
og Hnappdæla í Norska húsinu í
Stykkishólmi. Fulltrúar frá sveit-
arfélögunum á Snæfellsnesi, ásamt
fulltrúum frá söfnum og setrum á
svæðinu, hafa á tveimur samráðs-
fundum rætt allskyns hugmyndir.
„Það var dýrmætt að fá áhuga-
sama Snæfellinga að þessum und-
irbúningi og nú liggja fyrir hönn-
unarviðmið, sem höfð verða til
grundvallar við gerð handrits fyrir
sýninguna og hönnun hennar. Að
horfa til alls Snæfellsness, þýðir
m.a. að í Norska húsinu þarf ekki
að segja sögu sem verið er að gera
ljómandi vel í öðrum söfnum og
setrum. Einnig er stefnt að því að
tengja sýninguna með einhverjum
hætti við útisvæði sem Svæðisgarð-
urinn Snæfellsnes vill halda á lofti,“
segir í tilkynningu frá Norska hús-
inu. „Ákveðið hefur verið að ný sýn-
ing muni ná yfir tímabilið 1900 til
þessa dags og fjalli um einn spenn-
andi þátt í sögu Snæfellsness. Ekki
verður upplýst strax hver efnistökin
verða, en Snæfellingar geta beðið
opnunar með eftirvæntingu, sem er
áætluð vorið 2023.“
mm
Á samráðsfundum
hafa verið ræddar
ýmsar hugmyndir
og þeim m.a. komið
á vegg.
Norska húsið í Stykkishólmi.
Sjókvíaeldi. Ljósm. úr safni.
Gat fannst á sjókví Arnarlax í Arnarfirði