Skessuhorn - 08.09.2021, Page 13
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 2021 13
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks,
stuðning til náms og heilsu- eflingar, heiðarleika í
samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.
JAFNLAUNAVOTTUN
2019–2022
LAUS STÖRF
Á ÞJÓNUSTUSTÖÐ
OLÍS, BORGARNESI
Við leitum að starfsfólki bæði í dagvinnu
og vaktavinnu. Störfin felast í almennri
afgreiðslu, vörumóttöku og áfyllingu,
þrifum og öðru tilfallandi.
Hæfniskröfur
• Snyrtimennska og reglusemi.
• Jákvæðni, dugnaður, þjónustulund
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Í boði er annarsvegar starf í dagvinnu og
hinsvegar í vaktavinnu þar sem unnið er
á 12 tíma vöktum.
Starfsfólk nýtur góðra afsláttarkjara
og styrks til heilsueflingar.
Umsóknir á olis.is
Umsóknarfrestur til og með 12. september
VIÐ LEITUM AÐ
TRAUSTU STARFSFÓLKI
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Kosið verður til Alþingis laugardaginn 25. september 2021.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins
á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum:
Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 09:30 til 13:00.
Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá
Alla virka daga kl. 12:00 til 13:00.
Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Frá 6. september er einnig hægt að kjósa á neðangreindum stöðum:
Grundarfirði – skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Borgarbraut 16
Alla virka daga kl. 10:00 til 14:00.
Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4
Alla virka daga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30.
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við
viðkomandi kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Stykkishólmi, 1. september 2021
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sveinn Arnar Sæmundsson, sem
hefur verið organisti og kórstjóri
hjá Akraneskirkju í tæp 20 ár, hef-
ur ákveðið að taka sér árs leyfi frá
störfum og verið ráðinn organisti
í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Frá
þessu segir á vef Víðistaðakirkju en
Sveinn Arnar tekur við af Helgu
Þórdísi Guðmundsdóttur sem starf-
að hefur sem organisti síðastliðin
níu ár en lét af störfum nú í sum-
ar er hún tók við stöðu skólastjóra
Listaskólans í Mosfellsbæ. Sveinn
Arnar er Skagfirðingur að uppruna
og hefur á starfsferli sínum ver-
ið organisti í Skagafirði, tónlistar-
kennari og stjórnað ýmsum kórum,
meðal annars kirkju- og kammer-
kór Akraness, Skagfirska kamm-
erkórnum og karlakórnum Heimi
svo einhverjir séu nefndir. Þá var
hann einn af stofnendum kalman
listafélagsins á Akranesi árið 2013
sem staðið hefur fyrir fjölda við-
burða á Akranesi. Sveinn Arnar var
valinn bæjarlistamaður Akraness
árið 2012.“
Sveinn Arnar hefur þegar hafið
störf í Hafnarfirði og segir á fés-
bókarsíðu sinni að hann kveðji
Akranes í bili að minnsta kosti og
það hafi verið einstaklega gott að
vera á Akranesi. „Akraneskirkja
býður upp á frábært starfsumhverfi
og þar starfar fólk sem ég tel í alla
staði einstakt. kórstarfið hefur ver-
ið blómlegt og verður það áfram.
Góður kór sem er mikilvægur
hlekkur í safnaðarstarfinu. Ég skil
sáttur við en þó með söknuði. takk
fyrir mig.“
Hilmar Örn Agnarsson, organ-
isti og kórstjóri, hefur tekið við
sem organisti Akraneskirkju í eitt
ár. Árið 1991 var Hilmar Örn ráð-
inn organisti við Skálholtsdóm-
kirkju og stjórnaði þar öflugu tón-
listarlífi til loka árs 2008. Hann tók
við stöðu organista í kristskirkju,
Landakoti í Reykjavík, í byrjun árs
2009. Hilmar Örn er einnig þekkt-
ur fyrir að hafa starfað í hljómsveit-
inni Þey sem var framsækin rokk-
og pönksveit sem starfaði á árunum
1980-1983 en þar spilaði hann á
bassa en Þeysarar, eins og þeir voru
oftast kallaðir, gáfu út fjórar breið-
skífur og fjórar smáskífur á sínum
stutta ferli.
vaks
Sveinn Arnar Sæmundsson.
Ljósm. úr safni.
Sveinn Arnar ráðinn
organisti í Víðistaðakirkju