Skessuhorn - 08.09.2021, Blaðsíða 16
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 202116
Akraneskaupstaður tilkynnti ný-
verið að skrifað hefði verið und-
ir samstarfs- og markaðssamning
við fyrirtækið Merkjaklöpp ehf.
um samstarf við atvinnuuppbygg-
ingu í Flóahverfi á Akranesi. Samn-
ingurinn markar upphaf að stóru
og metnaðarfullu verkefni við at-
vinnuuppbyggingu á Akranesi og
felur einkum í sér samstarf milli
þessara aðila um að veita fyrirtækj-
um brautargengi að vistvænum
iðngörðum á Akranesi og stuðla að
hraðri uppbyggingu Flóahverfisins.
Merkjaklöpp ehf. mun hafa það að
sérstöku markmiði að þarfagreina
og mæta þörfum fyrirtækja sem
sjá sér hag í því að flytja starfsemi
sína í Flóahverfi og taka þátt í upp-
byggingu á vistvænum iðngörðum.
Skessuhorn sagði frá hugmyndum
um vistvæna iðngarða í mars síð-
astliðnum en framkvæmdir eru nú
hafnar í Flóahverfi.
Hvað eru
vistvænir iðngarðar?
Hugmyndafræðin um vistvæna
iðngarða byggir á heildrænni nálg-
un á uppbyggingu atvinnu- og iðn-
aðarsvæða með sjálfbærni og vist-
vænar lausnir að leiðarljósi. Mót-
aður er ákveðinn rammi um upp-
byggingu svæðisins og þá lagður
grunnur að víðtæku samstarfi fyr-
irtækja og ýmissa hagsmunaaðila
sem samnýta innviði, aðföng og
hráefnastrauma sína til að draga
úr umhverfisáhrifum framleiðslu
og styðja við nýsköpun. uppbygg-
ing vistvænna iðngarða er í mik-
illi sókn á heimsvísu sem aðferð
framleiðslufyrirtækja til að stuðla
að aukinni sjálfbærni og til að ýta
undir getu þeirra til að starfa eftir
hugmyndafræði hringrásarhagkerf-
isins. Hér heima hafa til að mynda
Landsvirkjun, Veitur og fleiri hags-
munaaðilar í orkugeiranum sýnt
þessari aðferðarfræði sérstaka at-
hygli. Atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytið hefur jafnframt haft
þessi málefni og skilgreiningar vist-
vænna iðngarða til umfjöllunar svo
líklegt verður að þykja að þessi nýja
vistvæna aðferðafræði við uppbygg-
ingu atvinnusvæða sé að ná fótfestu
hér á landi.
bæjarráð, skipulags- og umhverf-
isráð Akraneskaupstaðar, ásamt
bæjarstjóra og forsvarsmönnum
Merkjaklappar ehf. með Al-hönn-
un ehf., hafa að undanförnu unnið
hörðum höndum að þróun verk-
efnis um uppbyggingu vistvænna
iðngarða en hið nýja atvinnusvæði í
Flóahverfi á Akranesi hefur nú ver-
ið sérstaklega skilgreint sem vist-
vænir iðngarðar. Því gefst fyrir-
tækjum nú einstakt tækifæri til að
byggja upp starfsemi sína í fyrir-
myndarumhverfi og í takt við nú-
tímakröfur um umhverfismarkmið.
Flóahverfi er vel staðsett rétt utan
þéttbýliskjarna Akraness og aðeins
um 200 metra frá stofnbraut. Frá
Flóahverfi er um 30 mín akstur til
Reykjavíkur.
Iðngarðarnir verða byggðir upp
með hliðsjón af alþjóðlegri um-
gjörð (International Framework)
um innleiðingu á vistvænum iðn-
görðum (EIp). Lönd eins og dan-
mörk, Frakkland og mörg fleiri
hafa nýtt lykilþætti regluverksins
um vistvæna iðngarða til að bæta
samkeppnishæfni iðnaðar og fram-
leiðslu í takt við umhverfismarkmið
með t.d. kolefnisjöfnun. En þá er
einn af mikilvægustu þáttum vist-
vænna iðngarða það skilyrði að þeir
þrífist í sátt við íbúðarbyggð og
það sé virkt og opið samtal við íbúa
samfélagsins um þróun svæðisins.
Framsækni á Akranesi
Merkjaklöpp ehf. er framsækið fyr-
irtæki staðsett á Akranesi sem hef-
ur það að markmiði að láta til sín
taka í skipulagsmálum og uppbygg-
ingu atvinnuhúsnæðis á Íslandi.
Merkjaklöpp hefur sérhæft sig m.a.
í byggingu atvinnuhúsnæðis, vist-
vænum lausnum og hönnun at-
vinnugarða en fyrirtækið þjónustar
nú fyrirtæki og sveitarfélög við þró-
un fasteignaverkefna, markaðssetn-
ingu og skipulagsmál.
Skessuhorn ræddi á dögunum
við tvo forsvarsmenn og eigendur
Merkjaklappar ehf., þá Alexander
Eiríksson og Guðmund Svein Ein-
arsson, í von um að fræðast nán-
ar um þetta fyrirbæri sem nefnt
er vistvænir iðngarðar og marg-
ir eru að tala um í dag. Að þeirra
sögn er mikil eftirspurn eftir aðlað-
andi atvinnusvæði hér á landi í dag
og helsta sóknarfærið í þeim efn-
um telja þeir vera að finna í Flóa-
hverfi á Akranesi. benda þeir á þá
staðreynd að þrengt hefur mikið
að fyrirtækjum og atvinnusvæðum
víða á höfuðborgarsvæðinu þar sem
atvinnuhúsnæði víkur fyrir íbúðar-
húsnæði. „Það er verið að ýta fyrir-
tækjum út af þessum rótgrónu at-
vinnusvæðum eins og Höfðanum,
Hálsunum, Vogunum og víðar, út í
jaðra höfuðborgarsvæðisins. Fyrir-
tækjum sem hugnast illa atvinnu-
svæðin í jaðrinum við höfuðborg-
arsvæðið hafa verið að flytja sig enn
lengra; til Þorlákshafnar, Árborgar,
keflavíkur og víðar, í leit að ákjós-
anlegum áfangastað fyrir sitt fyrir-
tæki,“ segja þeir félagar hjá Merk-
jaklöpp.
Jafnframt nefna þeir að á hefð-
bundnum athafna- og iðnaðarsvæð-
um í dag hrærist gjarnan saman alls
konar starfsemi í bland og almennt
litlar kröfur gerðar til þess að fyrir-
tækin og lóðahafar hirði lóðir sínar
eða umhverfi með sérstöku tilliti til
nágranna sinna, íbúa og umhverf-
issjónarmiða. Skipulagsleysi og
skammsýni hafi því miður að miklu
leyti einkennt vinsæl atvinnusvæði
en þeir benda á að fyrirtæki leggi
nú alltaf meiri og frekari áherslu á
umhverfismarkmið og ímynd sína í
dag.
Í upphafi skal
endinn skoða
„Við þekkjum fjölmörg dæmi um
að fyrirtæki hafi á undanförnum
árum sóst eftir álitlegum lóðum á
vinsælum iðnaðar- og atvinnusvæð-
um, t.d. í jaðri höfuðborgarsvæðis-
ins við Esjumela. Þegar þessi fyrir-
tæki hafi svo byggt sína starfsemi á
þeim lóðum sem á sínum tíma þóttu
álitlegar og vel staðsettar, hafi þeim
brugðið við það að nýir nágrann-
ar þeirra taki lítið sem ekkert tillit
til þeirra starfsemi eða framleiðslu
og alls konar rusl og brotajárn frá
illa hirtum lóðum nágranna þeirra
jafnvel búið að umkringja nýtt hús-
næði eða nýjar höfuðstöðvar fyrir-
tækis þíns. Það er auðvitað ótækt
að geta ekki séð almennilega fyr-
ir endann á svo mikilvægri fjár-
festingu fyrirtækja sem hafa teikn-
að upp sína framtíð í fyrirmyndar-
umhverfi því umhverfi starfsstöðv-
ar fyrirtækis getur nú skipt höfuð-
máli ef fyrirtækið ætlar sér að ganga
í takt við ríkar kröfur í umhverfis-
málum og geta verið samkeppnis-
hæft á sínum markaði. Í upphafi
skal endinn skoða við val á fram-
tíðarheimili fyrirtækis sem endur-
speglar ímynd þess og stefnu.“
Þeir benda áfram á það að illa
hirt og illa skipulögð atvinnusvæði
útiloki mörg stór tækifæri fyrir til
Uppbygging vistvænna iðngarða að hefjast á Akranesi
Merkjaklöpp ehf og Akraneskaupstaður undirrita samstarfssamning
Frá undirritun samstarfs- og markaðssamnings á milli Merkjaklappar ehf. og Akraneskaupstaðar. Alexander Eiríksson
framkvæmdastjóri Merkjaklappar ehf., Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Guðmundur Sveinn Einarsson stjórnarformaður
Merkjaklappar ehf. Ljósm. Akraneskaupstaður.
Fánaborg við framkvæmdasvæði Merkjaklappar í Flóahverfi.
Tölvuteiknuð mynd af Lækjarseli, vistvænum iðngörðum í Flóahverfi.
„Okkar markmið og sýn er að Flóahverfið á Akranesi verði öðrum til fyrirmyndar
hvað varðar skipulags- og umhverfismál.“