Skessuhorn


Skessuhorn - 08.09.2021, Page 17

Skessuhorn - 08.09.2021, Page 17
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 2021 17 • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Stofnungi á Hvanneyri óskar eftir að ráða Rekstrarstjóra/Bústjóra. Starfið fellst í að sjá um innflutningi erfðaefnis (Stofnfugla) fyrir framleiðendur kjúklinga • og neyslu eggja í landinu. Samskipti við framleiðendur erlendis og innlenda kaupanda. • Skipuleggja og hafa umsjón með útungun og geta sinnt eldi stofnfugla í uppeldi í • afleysingum fyrir aðra starfsmenn Viðkomandi þarf að hafa menntun eða bakgrunn í landbúnaði, búa yfir tölvu og mála kunnáttu (norðurlandamál/enska ), tæknilega sinnaður, sé laghentur og geti sinnt minniháttar viðhaldi á tækjum og eignum Stofnunga, kunni einhver skil á bókhaldi og æskilegt að hafa búsetu á Hvanneyri eða nágrenni. Starfið er hlutastarf. Áhugasamir vinsamlegast sendi umsóknir fyrir 20. september á Jón Magnús reykjabuid@kalkunn.is Laust starf hjá Stofnunga að mynda líftækniiðnað, matvæla- iðnað eða aðra spennandi en við- kvæma starfsemi. „Fyrirtæki sem fluttu starfsemi sína á opin og álitleg svæði fyrir segjum fimm árum eru nú kannski komin með bílaparta- sölur og malbikunarstöð í kross við sína starfsemi. Þessi skamm- sýni og skipulagsleysi þekkist til dæmis ekki við skipulagningu á íbúðabyggð í þéttbýli og myndi slík óregla ekki verða liðin. Af hverju á sú góða hugsun og fyrirhyggja í skipulagsmálum ekki eins mikið við þegar við skipuleggjum atvinnu- svæði og þegar við skipuleggjum íbúðabyggð? Með þessu verkefni teljum við sveitarfélagið Akranes vera að koma með lausn á ákveðnu vandamáli,“ segja þeir félagar. „Hér hönnum við atvinnuhverfið frá upphafi til enda og hugsum fyrir öllum helstu þáttum og þjónustu- þörf. Þá er jafnframt hugsað sér- staklega í vistvænum lausnum við t.d. orkumál, varma, sorpflokkun, endurvinnslu úrgangs og þess hátt- ar. Fyrirtækin munu mynda saman hringrásarhagkerfi sín á milli með samnýtingu á hráefni og þjónustu hvors annars á sjálfbæru svæði. Hingað til virðast þessi mikilvægu atriði og þættir ekki hafa verið fest- ir niður með heildstæðu skipulagi á afmörkuðu atvinnusvæði nema að verulega takmörkuðu leyti og á þessum helstu atvinnusvæðum virðist aðeins gilda einhvers konar frumskógarlögmál. Aðferðafræðin sem Akraneskaupstaður og Merk- jaklöpp hafa verið að tileinka sér í þessum málum skapar að okkar mati einstakt tækifæri og jarðveg fyrir fyrirtæki sem þykir vænt um sína ímynd og sitt umhverfi og vilja vera öðrum til fyrirmyndar.“ Akranes gengur lengra en önnur sveitarfélög Alexander og Guðmundur Sveinn benda á að t.d. í Þorlákshöfn virðist sveitarfélagið hafa markaðssett sig þar með framboði á ódýrum lóð- um á afmörkuðum atvinnusvæð- um fyrir utan þéttbýliskjarna og íbúðarbyggð. „Slík markaðssetn- ing og nálgun er auðvitað ekkert nýtt hjá sveitarfélögum sem leit- ast við að laða til sín fyrirtæki og fjölga íbúum en við teljum að hugsa megi dæmið aðeins lengra því hag- kvæmni fæst ekki aðeins fram með því að versla ódýrt. Við teljum að langvarandi hagkvæmni felist í vist- vænum og snjallari lausnum en sveitarstjórn og skipulags- og um- hverfissvið Akraneskaupstaðar hef- ur gengið lengra en önnur sveit- arfélög í því að innleiða vistvænar og hagkvæmar lausnir í skipulags- málum. Ívilnanir frá sveitarfélagi í skiptum fyrir að gangast undir vist- vænt deiliskipulag og samnýting hráefnisstrauma og þjónustu með hringrás milli fyrirtækja skilar sér í stóraukinni hagkvæmni en síðast en ekki síst að þá styrkir vistvæn nálg- un almennt til muna ímynd þeirra fyrirtækja sem tileinka sér grænar lausnir.“ Tekið vel á móti fyrir- tækjum í Flóa Að sögn þeirra félaga hefur tekist vel að undirbúa komu fyrirtækja í Flóahverfi og almennt hefur verið tekið vel í þá vistvænu hugmynda- fræði sem regluverk og deiliskipu- lag á svæðinu tekur mið af. All- ir þeir sem vilja taka þátt í vist- vænum iðngörðum gangast saman undir það sem kalla mætti vistvænt deiliskipulag og lúta skilyrðum og ákvæðum er miða sérstaklega að því að viðhalda snyrtilegu og vist- vænu atvinnusvæði í fyrirmyndar- umhverfi. Merkjaklöpp hefur það hlutverk að aðstoða fyrirtæki við flutning á svæðið en í því ferli felst alltaf ítarleg þarfagreining á hverju fyrirtæki fyrir sig. „Þegar fyrir- tæki flytja sig á svæðið til okkar er allt inni í pakkanum og tilbúið. Við byrjum með þér á teikniborðinu frá lóðargrunni en að endingu sérðu girðingu og vöktuð hlið í kringum byggingar, bílastæðin koma mal- bikuð, hleðslustæði fyrir rafbíla og gróður á lóðinni. Við kappkostum að það sé allt frágengið þegar fyrir- tækin koma á staðinn og flytja inn í nýja húsnæðið sitt en í þeim til- vikum sem fyrirtækjum fylgir eitt- hvað sem gæti valdið sjónmengun eða annarri mengun þá aðstoðum við fyrirtækin, og jafnvel þjálfum, við að ganga þannig frá fylgifé sínu á lóðinni að það sé öðrum ekki til ama eða umhverfinu til spillis.“ Þeir félagar segja skipulags- og umhverfissvið sveitarfélagsins, í samvinnu með bæjarstjórn, hafa unnið frábæra og óviðjafnanlega vinnu í skipulagsmálum á svæð- inu en verið er að leggja lokahönd á vistvænt deiliskipulag sem ætti að vera hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. „Akraneskaupstaður vill ganga lengra í þessum efnum en önnur sveitarfélög hafa verið að gera og hefur sveitarstjórnin sýnt að þeim sé alvara í því að bjóða fyrir- tækjum að setjast hér að. Við sjáum að flott fyrirtæki í dag eru að keppa mikið í kolefnisjöfnun, orkusparn- aði, ímynd, upplifun starfsmanna og fleira svo vistvænar lausnir eru ofarlega í forgangi hjá fyrirmyndar fyrirtækjum í dag, bæði innlendum og erlendum. Vistvænir iðngarð- ar munu veita fyrirtækjum innan garðanna sérstaka viðurkenningu fyrir að ná ýmsum markmiðum í umhverfismálum. Þannig getum við séð til þess að alls kyns meng- un verði haldið í algeru lágmarki og úrgangslosun verði til fyrirmynd- ar. Við munum líka sjá til þess að fyrirtæki á svæðinu séu sjálfbær og geti nýtt hráefnisstrauma hvort frá öðru ef kostur er. Það má segja að á svæðinu verði eins konar hringrás- arhagkerfi,“ segja þeir Alexander og Guðmundur og halda áfram: „Þú getur sótt alla þjónustu sem fyrir- tækið þarf innan svæðisins, mötu- neyti og fleira fyrir starfsmenn, ör- yggiseftirlit, sorphirðu, bílaþvott, ræstingar, endurmenntun starfs- manna svo eitthvað sé nefnt. Það má segja að þetta sé svipað verslun- armiðstöð þar sem er einn leigusali og húsfélag sem sér um alla þessa þætti.“ Fyrirmyndar fyrirtæki í Flóahverfi „Það eru ýmis vel fjármögnuð fyr- irtæki í spennandi starfsemi sem við sjáum koma til okkar í Flóa- hverfi og taka þátt í vistvænum iðn- görðum,“ segja Alexander og Guð- mundur. „Akranes er orðið álitleg- ur staður fyrir slík fyrirtæki af fjöl- mörgum ástæðum. Hér bjóðum við upp á frábæra aðstöðu og þjónustu og fólk getur gengið eða hjólað í vinnuna. Við viljum auðvitað að fólksfjölgun fylgi atvinnuuppbygg- ing en jafnframt að aukinni atvinnu á svæðinu fylgi fjölskyldufólk og nýir íbúar. Hér mun fólk vilja búa ef við getum boðið þeim upp á at- vinnu við fyrirmyndaraðstæður og allar fjarlægðir til og frá vinnu eru í hjóla- eða göngufæri. Við höfum líka þetta frábæra landssvæði sem er í sérstaklega góðu færi við höf- uðborgarsvæðið og allar samgöng- ur á milli til fyrirmyndar, og fara batnandi á næstu árum.“ Þeir benda á Ægisbraut á Akra- nesi þar sem eru í dag mörg iðn- og þjónustufyrirtæki. „til stendur að breyta deiliskipulagi fyrir Ægis- braut þannig að í stað þess að vera iðnaðarhverfi í dag mun skipulag gera ráð fyrir íbúðabyggð. deili- skipulag Ægisbrautar er til endur- skoðunar og hefur undanfarið ver- ið til umræðu í skipulags- og um- hverfisráði. Við eigum von á því að þar fari hlutirnir að gerast innan nokkurra mánaða. Þar eru fyrirtæki sem verulega er farið að þrengja að en með þessum breytingum eykst verðmæti lóða fyrirtækjanna og því skapast tækifæri fyrir aðila á því svæði að færa sig yfir til okkar í Flóahverfi. Mörg fyrirtæki eru að sprengja utan af sér það húsnæði sem þau reka starfsemi sína nú í en of lítið eða úrelt húsnæði getur heft vöxt fyrirtækja og orðið til þess að eldri fyrirtæki verða eftir í sam- keppni við ný og framsækin fyrir- tæki sem hafa meira svigrúm til að vaxa. “ Þeir félagar segjast telja að Akra- neskaupstaður sé nú í dauðafæri til þess að bjóða fyrirtækjum, fyrst bæjarfélaga, vistvæna iðngarða sem verði í takt við alþjóðlega umgjörð, kolefnisjöfnun og aðlaðandi mark- aðsumhverfi. Sú sérstaða sveitar- félagsins muni falla vel að mark- miðum fjölda fyrirtækja hér á landi sem vilja vera til fyrirmyndar og auk þessa vera í takt við umhverfismark- mið stjórnvalda og sveitarfélags. Akranes verði öðrum til fyrirmyndar „Okkar markmið og sýn er að Flóahverfið á Akranesi verði öðr- um til fyrirmyndar hvað varð- ar skipulags- og umhverfismál en jafnframt sé svæðið skilgreint sem vistvænn iðngarður þar sem marg- háttuð þjónusta og framleiðsla geti átt sér stað innan svæðisins auk samstarfs milli fyrirtækja innan svæðisins. Þannig sjáum við Akra- nes verða að eftirsóttustu áfanga- stöðunum á Íslandi fyrir fyrirtæki í sókn og vexti en fyrirmyndar fyrir- tæki í dag eru að gera ríkar kröfur til umhverfisverndar og leitast eftir tækifærum til að ná fram sjálfbærni í aðlaðandi umhverfi“, segja Alex- ander Eiríksson, framkvæmda- stjóri og Guðmundur Sveinn Ein- arsson , stjórnarformaður Merk- jaklappar ehf. að lokum. Lesa má nánar um verkefnið á vefsíðunni merkjaklopp.is frg /Ljósm. aðsendar. Tölvuteiknuð mynd af Lækjarseli, vistvænum iðngörðum. Tölvuteiknuð mynd af Lækjarseli, vistvænum iðngörðum í Flóahverfi.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.