Skessuhorn - 08.09.2021, Qupperneq 18
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 202118
Í ágústmánuði opnaði Hendrik
björn Hermannsson veitingaþjón-
ustuna H-veitingar í borgarbyggð.
blaðamaður Skessuhorns kíkti í
eldhúsið til Hendriks í Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri í há-
deginu á föstudaginn þar sem hann
var á fullu að undirbúa hádegismat
fyrir fólk á Hvanneyri, í borgarnesi
og nærsveitum. Þennan dag bauð
hann upp á lasagna, snitsel í raspi,
lambapottrétt, sveppasúpu og sal-
at, og að sjálfsögðu nýbakað brauð
með. Þó að mikið hafi verið um að
vera á háannatíma var ekki að sjá
annað en það væri mikil gleði í eld-
húsinu með Hendrik. Hann hrærði
í pottum á milli þess sem hann setti
mat í ofninn og ræddi við blaða-
mann með bros á vör. Á meðan var
starfsfólk hans að undirbúa matar-
bakka sem átti að senda í borgar-
nes. „Það fer alltaf bíll frá okkur
í borgarnes um klukkan hálf tólf
alla virka daga. Fólk og fyrirtæki
geta hringt og pantað mat hjá okk-
ur, hvort sem það er fyrir tvo, þrjá,
fjóra eða fleiri og fengið sent,“ seg-
ir Hendrik um leið og hann sneiðir
niður brauð í matarbakkana.
Gaman að vera
innan um gesti
Þegar allur maturinn er kom-
inn fram og nemendur og starfs-
fólk á Hvanneyri streymir í matsal-
inn sest Hendrik niður með blaða-
manni og segir frá nýja fyrirtækinu.
Hendrik er þjónn að mennt en árið
2010 fór hann að snúa sér meira að
eldhúsinu. „Ég hef verið í þessum
bransa í þrjátíu ár og var búinn að
reka hótel og veitingastaði í gegn-
um tíðina þegar ég fór að snúa mér
meira að eldamennsku. Þá hafði ég
lært margt af þeim snillingum sem
höfðu unnið fyrir mig og ég unnið
með í gegnum tíðina. Ég hef gaman
að þessu öllu; að elda, þjóna og bara
vera í kringum gesti. Ég elska að
dekra við fólk, það er mín ástríða,“
segir Hendrik og brosir. Nú síðast
var hann hótelstjóri á b59 hótel í
borgarnesi en hann tók við því árið
2018 og lét af störfum í júlí á þessu
ári. „Þá snéri ég mér að H-veiting-
um og að koma því fyrirtæki á lagg-
irnar,“ segir hann.
Mömmumatur
„H-veitingar eru í raun þrjú kons-
ept. Það er H-mömmumatur, sem
er hér á Hvanneyri alla virka daga,
H-veislur sem er veisluþjónusta
sem þjónustar í raun bara allt land-
ið ef því er að skipta, og svo eru
það H-pizzur, sem munu verða
opnaðar núna í september,“ seg-
ir Hendrik. „H-mömmumatur er
hér í mötuneytinu á Hvanneyri og
hingað geta í raun allir komið sem
vilja, nú eða pantað og fengið sent
í borgarnes eða nærsveitir. Við
bjóðum upp á ekta mömmumat og
erum oftast með tvo til fjóra rétti
í boði auk þess sem það er alltaf
hægt að fá vegan rétt fyrir þá sem
vilja. Við erum með allskonar rétti;
kjötbollur, kjötsúpu, fisk, pottrétti,
bjúgu og allt þetta hefðbundna, svo
einu sinni eða tvisvar í viku er að-
eins veglegri mömmumatur; lamb-
asteik, purusteik eða jafnvel nauta-
lund,“ segir Hendrik og bætir við
að alltaf sé þó sama verð. „Hug-
myndin er að vera alltaf með okkar
besta verð. Súpa og salatbar fylgir
alltaf rétti dagsins og kostar aðeins
1.790 kr. En fólk getur keypt tíu
skipta kort og fengið rétt dagsins
á 1.490 kr. Það er einnig hægt að
kaupa bara súpu og salat fyrir 1.190
krónur,“ segir Hendrik.
H-veislur og H-pizzur
H-veislur er veisluþjónusta H-
veitinga. „Við getum komið með
veislur í raun hvert sem og þar
reynum við að verða við öllum
óskum viðskiptavinarins. Við get-
um verið með smáréttahlaðborð,
kökuhlaðborð, steikarhlaðborð
eða jafnvel kvöldverðarseðil með
einum og upp í tíu rétti. Hjá H-
veislum viljum við reyna að verða
við öllum óskum,“ segir Hendrik.
„Og við leggjum að sjálfsögðu allt-
af upp með að bjóða okkar allra
besta verð fyrir alla og að vera að-
eins með gæðavörur,“ bætir hann
við. Nú í september ætlar hann svo
að opna H-pizzur þar sem boð-
ið verður upp á heimsendingu
af ítölskum gæða pizzum á lágu
verði. „Við verðum með ítalskar
þunnbotna steinbakaðar pizzur
með nóg af áleggi. Við munum líka
bjóða upp á súrdeigsbotna ef fólk
vill það. En hugmyndin er fyrst
og fremst að hafa góðar pizzur á
eins lágu verði og við getum, svip-
að og hugmyndin á bak við Spað-
ann í kópavogi,“ segir Hendrik.
„Mér þykir skipta máli að fólk geti
leyft sér svona og þá verða verðin
að vera sanngjörn,“ bætir hann við
og brosir.
H-restaurant
Seinna í vetur stefnir Hendrik á
að opna pizzastað í borgarnesi þar
sem fólk getur þá sótt pizzur eða
komið og borðað á staðnum. „Við
erum að ganga frá því öllu en ég get
því miður ekki gefið upp staðsetn-
ingu strax,“ segir hann. „En von-
andi verður þetta tilbúið fyrir ára-
mót og þá verðum við með æðis-
legan pizzastað í borgarnesi. Svo
seinna í vetur, eftir áramót, er ætl-
unin að opna H-restaurant í borg-
arnesi. Það er nóg fram undan, við
erum bara í fyrstu tröppunni núna
og förum svo bara rólega upp stig-
ann,“ segir Hendrik og hlær. „Ég er
sérstaklega þakklátur fólkinu hér í
skólanum, Hvanneyringum, borg-
nesingum og öðrum hér úr sveit-
inni fyrir yndislegar viðtökur. Það
er yndislegt að vera í borgarfirðin-
um og mér líður rosalega vel hér.
Það er öllu þessu fólki að þakka að
þetta tókst og er enn að vaxa,“ segir
Hendrik eigandi H-veitinga. arg
„Ég elska að dekra við fólk, það er mín ástríða“
Hendrik Björn Hermannsson hefur opnað H-veitingar í Borgarbyggð.
Það var nóg að gera hjá Hendrik í eldhúsinu á föstudaginn. Enda bauð hann upp á
þrjá rétti dagsins auk súpu og salats.
Ferskur salatbar.
Smjör er ómissandi á snitsel í raspi.
Lasagna sett í bakka fyrir heimsendingu í Borgarnes.
Hlaðborðið klárt fyrir matargesti á Hvanneyri.