Skessuhorn - 08.09.2021, Qupperneq 20
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 202120
Vatnaskógur er staður í Svínadal í
Hvalfjarðarsveit þar sem kFuM
og kFuk er með sumarbúðir. Átti
blaðamaður Skessuhorns þar erindi
eina helgina fyrir skömmu. Í matar-
hléinu í Matskálanum í Vatnaskógi
rakst hann á upp á vegg innramm-
að skjal með svokölluðum Skóg-
armetum. Í hverjum dvalarflokki í
Vatnaskógi er keppt í hinum ýmsu
greinum frjálsra íþrótta og halda
Skógarmenn, sem eru starfsmenn
í Vatnaskógi, dagbók um árangur
keppenda. Á þessu skjali er listi yfir
þau sem hafa náð bestum árangri
í hverri grein og sett skógarmet
en þessi met gilda aðeins í dvalar-
flokkum. Gaman er að skoða þenn-
an lista og þá ansi merkilegt hvað
mörg met eru orðin gömul og hafa
haldið velli í öll þessi ár.
Í flokki drengja 9-11 ára eru til
dæmis tíu met af fimmtán sett á
árunum 1977-1986 og eiga þeir
Rögnvaldur Johnsen (1986) Þórður
kolbeinsson (1980) og Óskar Finn-
björnsson (1982) tvö met hver og þá
má sjá þarna Skagamanninn Oliver
pálmason (1983) og keflvíkinginn
Ólaf Gottskálksson (1979) með sitt
metið hvor í kúluvarpi og kringlu-
kasti.
Í flokki 12-13 ára eru eldri metin
færri en eru samt átta met af sextán
sett fyrir aldamót og þau elstu eru
sett af þeim Þorvaldi Sigurbjörns-
syni (1969) og Jóhanni Helgasyni
(1971). borgnesingurinn Arnar
Helgi Jónsson (2000) á enn metið
í þrístökki og þeir davíð Helgason
(1993) og kristján Þór Sigurðsson
(2009) eru með tvö met hvor, dav-
íð í lang- og þrístökki án atrennu og
kristján í 60 og 400 metra hlaupi.
Í flokki 14-17 ára eru átta met
af sextán sett á árunum 1963-1984
og þar eiga þeir Friðrik Þór Ósk-
arsson (1969) tvö met í langstökki
og þrístökki og Guðni Gunnarsson
(1984) þrjú met í hlaupum. Gunnar
G. Smith (1988-89) á þrjú met í há-
stökki, kúlu og kringlu og Þorvald-
ur Ingi Elvarsson (2016) á tvö met
í brekku- og víðavangshlaupi. Elsta
metið á hins vegar Skagamaðurinn
kári Geirlaugsson í stangarstökki
frá árinu 1963 og lyfti kappinn sér
yfir 2,77 metra, þá aðeins nýorðinn
14 ára gamall.
Í flokki stúlkna 12-13 ára eru
þær stöllur Emelía Óskarsdóttir
(2018) Þórný pálmadóttir (2020-1)
og Embla Maren Gunnarsdóttir
(2021) með tvö met hver en elsta
metið í þessum flokki á Freyja Rán
káradóttir Isaksen sem hún setti í
kúluvarpi árið 2017.
Í flokki stúlkna 14-17 ára er
dagný Lísa davíðsdóttir (2011),
körfuboltakona úr Fjölni, fjórfald-
ur meistari í hástökki, langstökki,
þrístökki og 1500 metra hlaupi en
elstu metin eiga þær Guðrún Huld
kristinsdóttir (1990) í 60 og 400
metra hlaupi og brynhildur bjarna-
dóttir thors (1990) í 1300 metra
hlaupi.
vaks
Íþróttafélagið undri hefur verið
stofnað í dalabyggð. Verður starf-
semi félagsins aðallega bundin við
Laugar í Sælingsdal. Stjórn félags-
ins skipa þau Sindri Geir Sigurð-
arson, Guðrún blöndal og berg-
hildur pálmadóttir. blaðamað-
ur Skessuhorns náði tali af Guð-
rúnu, sem í daglegu tali er kölluð
Rúna, og spurði hana út í hið ný-
stofnaða félag. Hún segir að stofn-
fundur undra hafi verið 24. ágúst
og að þegar hafi verið ákveðið að
hafa fjölbreytt framboð íþrótta
innan vébanda félagsins. „boð-
ið verður upp á æfingar í fótbolta,
körfubolta og blaki auk þess sem
þrekæfingar verða á laugardög-
um. Æfingarnar eru ætlaðar börn-
um og unglingum á aldrinum 6 til
18 ára. Þá er fyrirhugað að vera
með kynningu á öðrum íþrótt-
um, meðal annars fimleikum og
badminton, og verður þá ein vika
lögð undir hverja íþrótt. Þetta er
gert til þess að stækka sjóndeildar-
hringinn fyrir félagsmenn,“ segir
Rúna í samtali við Skessuhorn.
Íþróttastarf takmarkað
Sjálf er Rúna fædd og uppalin á
Akranesi. Hún kynntist manni sín-
um, Sæþóri Sindra, í skóla á Akra-
nesi en hann hefur sterka teng-
ingu í dalabyggð og ólst þar upp
að hluta. Hún er lærður vélvirki
og starfaði hjá Norðuráli og hann
er lærður smiður. Árið 2018 fluttu
þau vestur þar sem þau tóku við
búi að Valþúfu á Fellsströnd. Þar
reka þau sauðfjárbú með 600 fjár
auk 40 nauta að ógleymdum sex
börnum. Að sögn Rúnu voru það
mikil viðbrigði að flytja af Akra-
nesi, þar sem flestar íþróttagreinar
eru í boði fyrir börn og ungmenni.
Í dalabyggð hefur íþróttastarf ver-
ið takmarkað og helst samanstað-
ið af frjálsum íþróttum og fótbolta
þegar einhver nennti að þjálfa.
Það sem stendur íþróttastarfinu
fyrir þrifum segir Rúna vera skort
á íþróttamannvirkjum. Þó eru slík
mannvirki til staðar að Laugum
í Sælingsdal og verður starfsemi
íþróttafélagsins undra því aðal-
lega bundin við þann stað, að und-
anskildum æfingum fyrir yngstu
börnin en þær verða í búðardal.
Byrjaði með
íþróttaskóla
Rúna segir að hana hafi strax lang-
að til að gera eitthvað í málunum
en húsnæðið hafi vantað. Að lok-
um stofnaði hún í félagi við tvær
aðrar íþróttaskóla. Skólinn var
annan hvern laugardag og aldrei
mættu færri en 12 á hverja æfingu.
Það var því ljóst að þörf var á slíkri
starfsemi. Þá bendir Rúna á að
börn í dalabyggð eigi flest frænd-
fólk og vini utan héraðs og þeim
sárni stundum hve framboðið á
íþróttastarfi er takmarkað.
Í dalabyggð eru nú um 100
börn og unglingar en Rúna bend-
ir á að vart hafi orðið við áhuga
úr nærliggjandi byggðum, meðal
annars Hólmavík og Reykhólum,
um mögulegt samstarf en um 60
börn búa í téðum sveitarfélögum.
Íþróttafélagið hefur nú gefið út
dagskrá fyrir haustönn og er gert
ráð fyrir að æfingar hefjist næst-
komandi mánudag. til þess að
geta tekið þátt í æfingum undra
þarf að skrá sig í félagið og er
það gert með því að senda tölvu-
póst á undri21@gmail.com. Hvert
barn greiðir 12 þúsund krónur á
önn burtséð frá því hversu marg-
ar greinar barnið stundar. Nánar
má fræðast um og fylgjast með fé-
laginu og starfseminni á Facebook
síðu þess.
frg/ Ljósm. bj.
Fundargestir á kynningarfundi Íþróttafélagsins Undra sem haldinn var fimmtu-
daginn 2. september.
Íþróttafélagið Undri stofnað í Dalabyggð
Skógarmet
í Vatnaskógi
Keppni í hlaupi í Vatnaskógi. Ljósm. vatnaskogur.is
Stjórn Íþróttafélagsins Undra. F.v. Sindri Geir Sigurðarson, Guðrún Blöndal og Berghildur Pálmadóttir.