Skessuhorn - 08.09.2021, Side 22
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 202122
Skonnortan Wylde Swan lá síðast-
liðinn fimmtudag við ankeri nærri
Ólafsvík. Vakti hún athygli íbúa
enda hin myndarlegasta. Hér var
á ferðinni hollenskt skólaskip, svo-
kallað „topsail Schooner“. Hún er
63 m löng, 7,5m breið og ná möstr-
in 43 metra hæð. Er hún þannig
sögð stærsta „top sailes scooner in
the world,” eins og segir í lýsingu
á henni. Á möstrunum eru sjö segl.
tólf manna áhöfn og 36 nemar eru
í lengri ferðum skonnortunnar en
120 farþegar í dagsferðum.
Wylde Swan var byggt í Þýska-
landi 1920 og er því 101 árs. Í upp-
hafi var skonnortan búin gufuvél
og var fylgdar-eða birgðaskip fyrir
síldarflota. Síldinni var landað um
borð í þetta skip sem flutti farm-
inn svo á markað. Skútan hefur haft
viðkomu í mörgum höfnum hér á
landi undanfarnar vikur. Frá Ólafs-
vík lá leið hennar til Reykjavíkur á
föstudaginn.
af
Starfsmenn borgarverks mættu á
Snæfellsnesið síðastliðinn sunnu-
dag til að leggja seinna klæðingar-
lagið á Fróðárheiði, á þann hluta
vegarins sem lokið var við að end-
urbyggja á síðasta ári. Vegarkafl-
inn er 4,7 kílómetrar en þegar þetta
er skrifað var búið að leggja niður
að Laxárgljúfri en ekki var hægt að
gera mikið vegna rigningar á mánu-
daginn.
Þetta er ekki eina verkið sem
borgarverk er að vinna fyrir Vega-
gerðina á Snæfellsnesi. Fyrirtæk-
ið lagði fyrr í sumar á tæplega átta
kílómetra kafla á Snæfellsnesvegi
sunnanverðum frá Haffjarðará að
Fróðárheiði. Þá á eftir að leggja
stutta kafla á nokkrum stöðum á
nesinu; á Útnesveg einn kílómetra
frá gatnamótum við Fróðárheiði
og einn kílómetra í átt að Ólafs-
vík. Á Snæfellsnesvegi frá Fróðár-
heiði og inn að Vatnaleið á eftir að
leggja yfir um ellefu kílómetra og á
Vatnaleiðinni sjálfri um einn kíló-
metra. Þetta eru því alls 26 kíló-
metrar af yfirlögnum. Í sumar var
einnig malbikaður hluti af Rifs-
hafnarvegi, þjóðvegurinn í gegnum
Grundarfjörð og að hluta þjóðveg-
urinn í Stykkishólmi alveg niður
að baldursbryggju og bílastæðum í
Súgandisey. Nú þarf hins vegar að
fara að stytta upp svo hægt verði að
ljúka þessum framkvæmdum fyrir
veturinn.
þa
Í sumar var greint frá því að unn-
ið væri að því að koma upp klifur-
vegg í Íþróttamiðstöðinni í Stykk-
ishólmi. Á vef Stykkishólmsbæjar
kemur fram að þessari framkvæmd
er nú lokið og hefur þessi glæsi-
legi veggur verið tekinn í notkun.
kristján Sveinsson, í samstarfi við
Stykkishólmsbæ, sótti um styrk í
uppbyggingarsjóð Vesturlands og
hlaut þaðan styrk í verkefnið upp á
fimm hundruð þúsund krónur.
Veggurinn er átta metrar að hæð
og skemmtileg viðbót í það fjöl-
breytilega íþróttastarf sem unnið
er í Stykkishólmi. Á veggnum eru
miserfiðar klifurleiðir og hentar
hann því bæði byrjendum og þeim
sem eru lengra komnir í íþróttinni
en klifurleiðirnar eru skilgreindar
eftir litum á gripunum. Lítið mál
er að færa gripin til á veggnum og
búa þannig til nýjar leiðir og til að
breyta til annað slagið.
Áhugasömum klifrurum er bent
á að hægt er að kaupa aðgang að
íþróttasalnum og spreyta sig á
veggnum. Leyfilegt er að klifra í
ákveðna hæð án þess að vera í línu
en ekki er leyfilegt að vera í línu
nema hafa hlotið þjálfun til þess
eða vera með leiðbeinanda. Einn-
ig er stefnt að því að bjóða upp á
opna daga þar sem áhugasamir geta
prófað að klifra undir leiðsögn síð-
ar í þessum mánuði og verður það
auglýst þegar nær dregur.
vaks
Klæðning lögð á Fróðárheiði.
Borgarverk í yfirlögnum
á Snæfellsnesi
Wylde Swan utan við Ólafsvík.
Aldargömul skonn-
orta á ferð um landið
Nýi klifurveggurinn í Stykkishólmi. Ljósm. Stykkishólmsbær.
Klifurveggur fullbúinn
í Stykkishólmi
Fjölmiðlanefnd birtir úthlutun um
rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla
Úthlutunarnefnd, sem mennta- og menningarmálaráð-
herra skipaði um úthlutun rekstrarstuðnings til einka-
rekinna fjölmiðla árið 2021, hefur lokið störfum í ár.
Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti út-
hlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Í tilkynn-
ingu frá nefndinni kemur fram að alls hafi 23 umsókn-
ir borist um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla
og samtals hafi verið sótt um rekstrarstuðning að fjár-
hæð 880 milljónir króna. tveimur umsóknum var synj-
að og tveimur umsóknum vísað frá, þar sem þær bárust
eftir lögbundinn frest.
Í 62. gr. laga um fjölmiðla kemur fram að rekstrar-
stuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðnings-
hæfum rekstrarkostnaði umsækjenda. Þá ráðist endan-
legt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. til úthlut-
unar voru 392 millj. kr. að frádregnum kostnaði vegna
umsýslu, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunar-
nefndar o.fl. sem var um 0,8% af heildarfjárhæð eða
3.152.661 kr. til úthlutunar voru því 388.847.339 kr.
Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftir-
farandi 19 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2021:
Árvakur hf. 81.450.544 kr.
Bændasamtök Íslands 12.417.595 kr.
Elísa Guðrún ehf. 3.294.881 kr.
Fótbolti ehf. 4.900.573 kr.
Fröken ehf. 5.188.036 kr.
Kjarninn miðlar ehf. 14.405.244 kr.
Leturstofan ehf. 1.461.257 kr.
MD Reykjavík ehf. 5.756.188 kr.
Myllusetur ehf. 26.834.860 kr.
N4 ehf. 19.401.735 kr.
Skessuhorn ehf. 9.311.410 kr.
Steinprent ehf. 1.925.017 kr.
Sýn hf. 81.450.544 kr.
Torg ehf. 81.450.544 kr.
Tunnan prentþjónusta ehf. 1.788.100 kr.
Útgáfufélag Austurlands ehf. 3.369.770 kr.
Útgáfufélagið ehf. 2.456.080 kr.
Útgáfufélagið Stundin ehf. 25.303.378 kr.
Víkurfréttir ehf. 6.681.581 kr.
mm