Skessuhorn


Skessuhorn - 08.09.2021, Qupperneq 24

Skessuhorn - 08.09.2021, Qupperneq 24
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 202124 Síðastliðinn fimmtudag fékk borg- arbyggð afhent húsnæðið að digra- nesgötu 2 í borgarnesi sem það keypti fyrr á þessu ári af Arion banka. Starfsemi bankans verð- ur þó áfram í húsinu en það verð- ur sömuleiðis nýtt sem ráðhús sveitarfélagsins. Samkvæmt frétt á vef borgarbyggðar er nú unnið að hönnun innra skipulags hússins en að því loknu verða breytingar á því boðnar út. „Það er ljóst að með nýju ráðhúsi mun aðstaða starfs- manna batna til muna ásamt að- gengi að þjónustu sveitarfélagsins. Starfsmenn eru fullir tilhlökkunar að taka á móti íbúum og gestum í nýja húsnæðinu á nýju ári en að svo stöddu er ekki ljóst hvenær flutn- ingar verða,“ segir í fréttinni. mm Leikskólinn Vallarsel á Akranesi hefur tekið þó nokkrum breyt- ingum í sumar. búið er að skipta um jarðveg og setja mjúkar tartan hellur í staðinn á tveimur stöðum á svæðinu. Þá er einnig búið að setja upp ný leiktæki, fjarlægja steina og snyrta umhverfið. Öðrum meg- in er leiksvæði sem hentar fyrir þá yngri og hinum megin er meira ætlað fyrir þá sem eldri eru. Því er um að gera fyrir börn og foreldra og aðra sem vilja fara út að leika að kíkja í heimsókn en allir leikskól- ar á Akranesi eru opnir öllum eft- ir klukkan 16 í miðri viku og all- ar helgar. vaks Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson svæðisstjóri Arionbanka afhendir Þórdísi Sif Sigurðardóttur blóm þegar húsið var formlega afhent nýjum eiganda. Ljósm. Borgarbyggð. Borgarbyggð orðin formlegur eigandi Digranesgötu 2 Tekið til hendinni á Vallarseli Pennagrein Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi hefur almennt reynst einstaklingum til góða. kost- irnir við slíka þátttöku eru ófáir, en iðkun skipulags frístundastarfs hef- ur jákvæð áhrif á andlega og líkam- lega heilsu, bætir félagslíf, hefur sterkt forvarnargildi og bætir lífs- gæði til muna. Hér á landi er mik- il áhersla lögð á skipulagt frístund- astarf og að allir hafi tækifæri til að taka þátt, og þá sérstaklega börn og ungmenni. Það hefur jákvæð áhrif á þroska barna og heilsu að taka þátt í slíku starfi hvort sem þau æfa knatt- spyrnu, karate, á píanó, rafíþrótt- ir, taki þátt í skátunum eða hvað annað. Það er göfugt markmið að tryggja það að öll börn hafi tækifæri til að taka þátt. Styrkjum frístundaiðkun barna Það markmið hefur verið viðloð- andi í mörg ár. Ríkið og sveitarfé- lög hafa unnið í nánu samstarfi við íþrótta- og tómstundahreyfingar landsins til að tryggja gott skipu- lagt frístundastarf þvert yfir land- ið ásamt því að tryggja tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar fyr- ir öll börn óháð efnahag eða félags- legra aðstæðna. bæði ríki og sveit- arfélög hafa nýtt fyrirkomulag frí- stundastyrks í vinnu að umræddu markmiði. Frístundastyrkur er ákveðin greiðsla sem flest sveitarfé- lög bjóða fjölskyldum til að niður- greiða skipulagða íþrótta- og tóm- stundaiðkun. tilvist styrks, upphæð hans og fyrirkomulag er mismun- andi eftir sveitarfélögum. Einnig hefur Ásmundur Einar, félags- og barnamálaráðherra, ráðstafað fé til slíkrar styrkveitingar frá ríkinu á tímum Covid-19. Vaxtarstyrkur Þrátt fyrir þetta eru fjölskyldur hér á landi sem ekki ná að standa straum af kostnaði við frístundaiðk- un barna sinna. Þetta þarf að laga. Það er almenn skoðun innan sam- félagsins um að öll börn eiga skilið tækifæri til að njóta góðs af skipu- lögðu íþrótta- og tómstundastarfi, og Framsóknarflokkurinn tekur í sama streng. Ein stærsta áhersla Framsóknar fyrir komandi alþingiskosningar er að sjá til þess að ríkið veiti öll- um fjölskyldum árlegan 60 þúsund króna vaxtarstyrk fyrir hvert barn og lækka þannig útgjöld fjölskyldna vegna frístunda. Fyrir tveggja barna fjölskyldu yrði styrkurinn 120 þús- und krónur og fyrir þriggja barna fjölskyldu 180 þúsund krónur. Sýnt hefur verið fram á að skipulagt frí- stundastarf styrkir líkamlegan og andlegan þroska barna, ýta undir sjálfstæði þeirra og styrkja sjálfs- mynd. Þessi aðgerð jafnar tækifæri barna til virkrar þátttöku í tóm- stundastarfi svo að ekkert barn missir af. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Höfundur situr í 2. sæti á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi. Vaxtarstyrkur fyrir frístunda- iðkun barna Síðastliðinn laugardag smöluðu bændur í Hvítársíðu Síðufjallið og ráku safnið til Nesmelsréttar. Rétt- in var jafnframt sú fyrsta á Vestur- landi þetta haustið. Fram undan eru svo göngur og réttir víðs veg- ar um landshlutann næstu daga og vikur. blaðamaður Skessuhorns kom við í réttinni og fangaði stemn- inguna. Réttarhaldið tók fljótt af en féð er einkum af nokkrum bæjum í Hvítársíðu og efstu bæjum í Staf- holtstungum. Eins og sjá má á með- fylgjandi myndum kemur féð ágæt- lega vænt af fjalli og höfðu menn á orði að ef fallþungi verður ekki þokkalegur nú, eftir gott tíðarfar í sumar, þá yrði hann það aldrei. mm Fyrstu réttir afstaðnar Féð kom sællegt og fallegt af Síðufjallinu. Ólafur á Sámsstöðum á spjalli við Þuríði og Árna á Þorgautsstöðum. Guðmundur frá Sámsstöðum að leyfa Ólafi Sveini ársgömlum syni sínum að setjast á bak. Slakað á á réttarveggnum. Guðjón á Síðumúlaveggjum og Sigurður á Bjarnastöðum. Það fór vel á með þeim Ingólfi á Lundum, Gumma Finns og Dagbjarti á Höfða. Það urðu fagnaðarfundir með þeim Daníel á Sámsstöðum og nokkrum af spöku kindunum á bænum.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.