Skessuhorn - 08.09.2021, Blaðsíða 25
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 2021 25
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
tilboð Sósíalistaflokksins til kjós-
enda vegna þingkosninganna 25.
september snýst um að þjóðin end-
urheimti auðlindir hafsins af auð-
hringunum sem hafa sölsað þær
undir sig. Efnt verði til fiskiþinga
til að móta fiskveiðistefnuna til
lengri tíma en kvótakerfinu verði
strax lokað og skref stigin í átt að
réttlátara kerfi.
Markmiðið er að arðurinn af
auðlindunum renni til samfélagsins
og að byggð verði upp heilbrigð
atvinnugrein laus undan spillingu,
kúgun og drottnun örfárra yfir
fjöldanum.
kvótakerfið hefur búið til lokað,
ófrjálst spillingarkerfi stórútgerða
sem verður að brjóta upp. Stærstu
útgerðirnar ráða yfir of stórum
hluta veiðanna og þær stjórna allri
virðiskeðjunni, allt frá því að fisk-
urinn er veiddur og þar til afurð-
in er seld erlendis. Margsinnis hafa
komið fram vísbendingar um að
þessi kerfi séu notuð til að halda
niðri fiskverði við löndun og fela
síðan arðinn af auðlindinni erlend-
is.
Þær kynslóðir sem háðu þorska-
stríðin börðust ekki til þess að fáum
áratugum seinna væru fiskimiðin
færð í hendur örfárra en lokuð öll-
um öðrum landsmönnum. Það var
ekki markmið almennings að hrekja
stórútgerðir annarra þjóða af mið-
unum til þess eins að þau yrði eign
örfárra fjölskyldna og arðurinn
rynni fyrst og fremst til örfárra auð-
kýfinga. Markmiðið var að Íslend-
ingar nýttu fiskimiðin til að byggja
hér upp öflugar byggðir, sterk sam-
félög og blómlegt mannlíf.
kvótakerfið sem upphaflega var
sett á til að vernda fiskistofnana
hefur þróast í óskapnað sem hefur
í reynd einkavætt fiskimið almenn-
ings. kerfið hefur brotið niður
byggðir og safnað upp auð örfárra,
svo miklum að hann ógnar lýðræð-
inu og frelsi almennings. Sósíal-
istaflokkurinn hefur þá stefnu að
leggja niður þetta kerfi og byggja
réttlátari umgjörð utan um fisk-
veiðar og vinnslu. Ný umgjörð þarf
að reisa við það sem kvótakerfið
braut niður og brjóta upp þá auð-
hringi sem kvótakerfið bjó til.
Sósíalistaflokkurinn mun leggja
til að takmarkanir verði settar á
umfang stórútgerða svo stærstu út-
gerðirnar verði brotnar upp langs-
um, að þær verði að kljúfa sig upp
í tvö eða fleiri félög. Þetta er gert
til að draga úr ægivaldi stórútgerð-
anna yfir byggðunum og til að
tryggja fjölbreytileika og nýliðun.
Þá leggja Sósíalistar til að út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækin
verði brotin upp þversum, þannig
að sama fyrirtækið geti ekki veitt
fiskinn og selt sjálfu sér aflann,
unnið fiskinn og selt sjálfu sér af-
urðirnar og selt síðan sjálfu sér af-
urðirnar í útlöndum og falið þar
gróðann.
kvótakerfið bjó til ógnarauð,
ekki síst þegar leyfi var gefið til að
veðsetja veiðiheimildir ókominna
ára. Sá auður var notaður til að
mylja undir örfá fyrirtæki megnið
af aflaheimildunum og síðan til að
brjóta undir sig fyrirtæki í óskyld-
um greinum og í öðrum löndum.
Þetta ógnarvald auðs og valda
hefur sýnt sig að vera skaðvaldur
í samfélaginu. Og ekki bara hér-
lendis heldur víða um heim. Það
er því eðlileg sjálfsvörn almenn-
ings að brjóta þessi fyrirtæki upp.
Ísland er einfaldlega of lítið fyrir
fyrirtæki af þessari stærð.
Sósíalistaflokkurinn leggur til að
bundið verði í stjórnarskrá að fisk-
veiðiauðlindin sé eign þjóðarinnar
og að þjóðin ákveði sjálf hvernig
nýtingu hennar er háttað.
Helga Thorberg
Höf. skipar 1. sæti á lista
Sósíalistaflokks Íslands
í Norðvesturkjördæmi.
Góðu vinir mínir í (fyrrum) Al-
þýðuflokknum í Norðvesturkjör-
dæmi, nú Samfylkingunni. Ég verð
að játa mig sigraðan, af hálfu fyrr-
um félaga minna í Samfylkingunni
í Norðvesturkjördæmi eftir alla þá
vinnu sem unnin var, af hálfu sam-
göngunefndar Fjórðungssambands
Vestfirðinga til fjölda ára, er leit að
samgöngum á landi, láði og legi,
heima á Vestfjörðum.
Nú er kominn á framboðslista
Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi, maður sem alla sína
stuttu ábúðartíð á Vestfjörðum,
Ingimar Ingimarsson búsettur á
Reykhólum, en hann skipar sjöunda
sæti listans. Hann hefur beitt sér
fyrir samgönguleysi áfram á svæð-
inu. Hann hefur verið á móti öllu
er lýtur að samgöngum á svæðinu.
Í framhaldi af þessu, og til að salta
enn frekar í sárin, ætlar Samfylking-
in að segja upp nýgerðum samningi
ríkis og kirkju. Sannarlega er það
í andstöðu við núgildandi stjórn-
arskrá, en Samfylkingunni virðist
slétt sama um það. Þjóðin kaus í
rauninni að sérstakt ákvæði skyldi
vera um þjóðkirkjuna. Svo virðist
sem alls ekki eigi að virða þá niður-
stöðu af forystu Samfylkingarinnar.
Nú virðist sem ákveðið lífsskoðun-
arfélag sem kennir sig við siðmennt
ráði för í Samfylkingunni.
Ég hefi ákveðið, og gerði það
reyndar fyrir margt löngu, þeg-
ar ég varð þessa var, að styðja alls
ekki Samfylkinguna, fyrir kom-
andi alþingiskosningar. Í rauninni
skammast ég mín. Það virðist eng-
inn áhugi á að virða stjórnarskrá
eða þjóðarvilja. Í framhaldi af fram-
ansögðu hef ég ákveðið og reynd-
ar fjölmargir Vestfirðingar sem
studdu Samfylkinguna, að segja
NEI tAkk, þetta viljum við ekki.
Sjálfur hef ég ákveðið að styðja
Viðreisn í Norðvesturkjördæmi
og skipa þar þrettánda sæti á lista.
Ég verð að benda ykkur á dreng
sem skipar fyrsta sæti á lista Við-
reisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir
komandi alþingiskosningar. Í æsku
lærði hann aldrei að segja ósatt og
fékk oft bágt fyrir á uppeldisárum
sínum. Hann hefur ekki lært það
enn, og tel ég hann heiðarlegasta,
traustasta og í rauninni frambæri-
legasta frambjóðandann í kjördæm-
inu fyrir komandi kosningar í sept-
embermánuði. Þetta er drengur
sem ég tel mig eiga nokkuð mikið í.
Hann heitir Guðmundur Gunnars-
son, afar kærleiksríkur drengur og
er fæddur og uppalinn bolvíkingur
og ég veit að hjarta hans slær í kjör-
dæminu.
Ágætu vinir mínir, í fyrrum Sam-
fylkingu og aðrir góðir vinir mínir
í Norðvesturkjördæmi. Ég biðla til
ykkar að setja X við C við næstu al-
þingiskosningar í september mán-
uði nk. Guðmundur Gunnarsson
er drengurinn sem við öll þurfum á
að halda í framtíðinni. Eins og við
vitum öll þá er kærleikurinn lang-
lyndur, hann er góðviljaður, kær-
leikurinn öfundar ekki, kærleikur-
inn er ekki raupsamur, hreykir sér
ekki upp, kærleikurinn fellur aldrei
úr gildi.
En nú varir trú, von og kærleik-
ur, þetta þrennt, en þeirra er kær-
leikurinn mestur. Góðar kveðjur til
ykkar allra með þökk fyrir góðar
stundir, hér eftir sem og fyrrum.
Magnús Ólafs Hansson
Höf. skipar 13. sæti á lista Við-
reisnar í Norðvesturkjördæmi.
Það er alltaf stór stund hjá ungum
veiðimönnum þegar þeir setja í og
landa fyrsta laxinum. Hann Hauk-
ur Smári Ragnarsson, 12 ára veiði-
maður úr Grundarfirði, landaði laxi
í Norðurá síðastliðinn miðvikudag
og var að vonum brosandi með
fenginn. Laxinn fékk hann í Haf-
þórsstaðahyl.
Í Norðurá höfðu þann 1. septem-
ber komið 1.285 laxar á land sem
er töluvert betri veiði en sumarið
í fyrra þegar heildarveiðin var 980
laxar. Norðurá var þá í fjórða sæti
yfir heildarveiði í laxveiðiánum, á
eftir Rangánum báðum og Mið-
fjarðará. Þverá í borgarfirði var svo
í fimmta sæti með 1.193 laxa. mm
Eitt mikilvægasta mál landsbyggð-
arinnar er algjör uppstokkun í sjáv-
arútvegi. Sú auðlind okkar, og já
hún er enn okkar, er nú undir stjórn
örfárra kvótakónga sem hugsa um
það eitt að græða sem mest. Og sá
gróði er alfarið á kostnað þjóðarinn-
ar. Við getum ekki liðið það leng-
ur. Stórútgerðin þarf að fara eft-
ir lögum um fiskveiðar þ.e. kvóta-
þakið. Útgerðin verður að fara eftir
skattalögum og greiða 20% tekju-
skatt af þeim hlunnindum sem út-
gerðinni er afhent árlega. Stoppa
verður hringamyndun stórútgerðar
í fyrirtækjarekstri.
Handfæraveiðar eiga að vera
frjálsar og leyfa á sölu „beint frá
báti.“ brottkast á afla verður að
stöðva með hvötum. Útræðisrétt
sjávarjarða verði virtur á ný og
staðfestur í lögum um stjórn fisk-
veiða. Allur fiskur kæmi að landi
og það sem fer venjulega í brott-
kast verður einnig að koma að landi
án viðurlaga/sekta og selt á mark-
aði og sá söluágóði yrði notaður
við rekstur Hafrannsóknarstofnun-
ar, Fiskistofu og Landhelgisgæsl-
unnar. Viðurlög við umframveiði
og brottkasti verði hert. Eigendur
og áhafnir íslenskra fiskveiðiskipa
og fyrirtæki sem hafa veiðirétt í
sameiginlegri auðlind þjóðarinnar
skulu eiga lögheimili á Íslandi og
borga hér skatta og skyldur. Gerð
verði skýlaus krafa til fyrirtækja í
sjávarútvegi að upplýsa um raun-
verulega eigendur fyrirtækjanna og
kaupendur. Þarna liggja þeir fjár-
munir sem þarf inn í okkar samfé-
lag hringinn um landið, sumir nota
fín orð eins og innviðir og það má
svo sem alveg kalla það svo.
Þeir innviðir í samfélagi okkar
sem ég er að tala um er heilbrigðis
og velferðarkerfið okkar. Við þurf-
um að hætta að troða öllum okkar
eggjum í sömu körfuna og hafa vit
á því að halda því þannig svo við
lendum ekki enn á ný í þeirri stöðu
eins og núna á Covidtímum, en þá
komust við að því að of mörg eggin
voru á sama stað = ferðaþjónustan.
Þorpin í kringum landið komust
að því á sínum tíma þegar kvótinn
safnaðist á fárra hendur og skyldi
sum byggðarlög eftir nánast í rúst.
Loðdýraræktin átti á sínum tíma að
bjarga bændum, við vitum hvernig
það fór. Það er þessi endalausa ár-
átta okkar að safna öllu í sömu körf-
una því allir ætla að græða svo og
svo mikið.
Við höfum undanfarinn áratug
og trúlega lengur byrjað að fara
með heilbrigðiskerfið allt í sömu
körfuna. Nánast allt skal gera á Ak-
ureyri eða Reykjavík. Ekki beint
gáfulegt á okkar litla landi elds og
ísa, hvað gerist ef gosið færist nær
Reykjavík? Hvað þá? bara Covid
sýndi okkur að þetta er langt frá því
að vera gáfulegt. Að setja alla okk-
ar sérfræðinga á sama punktinn er
einfaldlega röng stefna og hættuleg
sérstaklega þegar litið er til hvar á
landinu þeir eru staddir.
Eftir allar mínar verur á sjúkra-
húsum höfuðborgarinnar og samtöl
við sérfræðinga þá veit ég að þeir
vilja vinna í teymi, en þessi teymi
geta verið fleiri en eitt og þau þurfa
ekki að vera öll á sama punktinum.
Við þurfum að skipuleggja okkar
miklu betur, það þarf ekki endilega
að vera dýrara og gæti jafnvel verið
hagkvæmara.
XO Lífið er núna, gerum eitt-
hvað í þessu.
Sigurlaug Gísladóttir Blönduósi
Höf. er oddviti Frjálslynda lýðræð-
isflokksins í NV
Styrkjum liðið í
NV-kjördæmi!
Náum auðlindunum
af auðhringjunum
Eggin og
karfan
Veiddi Maríulaxinn
sinn í Norðurá