Skessuhorn


Skessuhorn - 08.09.2021, Síða 30

Skessuhorn - 08.09.2021, Síða 30
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 202130 Ef þú þyrftir að borða sömu máltíðina alla daga það sem eftir er, hvaða máltíð væri það? Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Ólafur Valur Valdimarsson „Steik og meðlæti.“ Fannar Björnsson „Nautalund og bernaise.“ Aron Helgi Halldórsson (Ronni Rauði) „Mexíkósk vefja.“ Ronja Hjartardóttir „bleikja og kartöflur.“ Magnea Baldvinsdóttir „Humarsúpa.“ knattspyrnufélagið kári á Akranesi er fallið niður í 3. deild. Það varð endanlega ljóst eftir tapleik gegn toppliði Þróttar úr Vogunum 0:5 í leik sem fram fór í Akraneshöllinni á föstudagskvöldið. Það má segja að allt frá byrjun hafi sést í hvað stefndi. Þróttur var sterkari aðilinn á flestum sviðum leiksins og náði forystunni strax á 12. mínútu þegar Ragnar Þór Gunnarsson skoraði með skalla á fjærstöng eftir hornspyrnu. Þróttur bætti við öðru marki á 38. mínútu þegar Rubén Lozano Ibancos skor- aði með föstu skoti utan úr víta- teignum einn og óvaldaður eftir langt innkast sem skallað var frá af káramönnum beint fyrir fætur Ru- béns. Staðan 0:2 í hálfleik. Aðeins tólf mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þegar þriðja mark gestanna leit dagsins ljós. Þá átti Rubén skot í varnarmann kára og af honum fór boltinn í þverslána og beint á kollinn á Alexander Helga- syni sem skoraði auðveldlega. Þremur mínútum síðar bætti Þrótt- ur við fjórða markinu þegar varnar- menn kára misstu boltann klaufa- lega frá sér í vörninni og Rubén komst í gegn og skoraði auðveld- lega fram hjá Gunnari braga Jónas- syni í marki kára. Einstefnan hélt áfram og tveimur mínútum fyrir leikslok skoraði Alexander Helga- son fimmta mark gestanna en þeir léku á milli sín óáreittir fyrir framan vítateig kára og loks tók Alexander skot alveg út við stöng og tryggði öruggan stórsigur gestanna. Þrátt fyrir að kári hafa endan- lega fallið eftir þetta tap þá stefndi nokkurn tíma í það óumflýjanlega. Liðið var í basli lengt af sumars þó að margir leikjanna hafi tapast naumlega með einu marki en þá vantaði herslumuninn. Að mörgu leyti skiljanlegt. Lið kára byggðist á strákum úr 2. flokki ÍA og nokkr- um eldri reynsluboltum af Skagan- um. En flest önnur lið deildarinnar voru vel mönnuð og með 2-4 er- lenda leikmenn á sínum snærum. En vonandi ná þeir vopnum sínum að nýju og gera atlögu að 2. deild- inni næsta sumar. Næsti leikur kára í deildinni er síðasti heimaleikur sumarsins gegn Haukum í Akraneshöllinni næsta sunnudag og hefst klukkan 14. se Skagamennirnir Ísak bergmann Jóhannesson og Arnór Sigurðsson höfðu báðir vistaskipti í fótboltan- um í sumar. Ísak bergmann Jóhannesson gekk til liðs við danska stórlið- ið FC köbenhavn í síðustu viku frá Norrköping og skrifaði hann undir samning hjá félaginu til árs- ins 2026. Eftir þriggja ára veru hjá Norrköping hefur hann ákveðið að taka stærra skref. Ísak sem er aðeins 18 ára gamall hefur vakið mikla at- hygli fyrir hæfileika sína og á mikla framtíð fyrir sér í knattspyrnunni. Arnór Sigurðsson fór að láni til ítalska félagsins Venezia sem er ný- liði í ítölsku A-deildinni en liðið vann sig upp í efstu deild á Ítalíu í vor. Áður en til þess kom fram- lengdi Arnór samning sinn við CSkA Moskvu um eitt ár og er samningsbundinn félaginu til árs- ins 2024. Lánssamningur Arnórs er út þetta keppnistímabil. Arnór sem er 22 ára gamall fór upphaflega af Skaganum til Norrköping í Svíþjóð en eftir tvö ár þar var hann keyptur til CSkA Moskvu sumarið 2018. Á þremur tímabilum með CSkA Moskvu hefur Arnór leikið 66 leiki með liðinu í rússnesku deildinni og skorað 11 mörk. Arnór hefur einnig leikið í Meistaradeild Evrópu með liðinu og skoraði þar tvö mörk. Venezia, eða Feneyjar eins og borgin er kölluð, er með tvo aðra Íslendinga á sínum snærum, þá Ótt- ar Magnús karlsson, sem reyndar hefur verið lánaður til CAN Siena á Ítalíu, og bjarka Stein bjarkason sem einnig kom af Skaganum. Auk þeirra eru þeir Jakob Franz pálsson og kristófer Jónsson á mála hjá fé- laginu en leika með unglingaliðum þess. se Ísak Bergmann og Arnór hafa vistaskipti Kári er fallinn í þriðju deild Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, greinir á Facebook síðu sinni frá kynningarfundi í teams um endurbætur á skólahúsnæði og framtíðar uppbyggingu í Grunda- skóla en fundurinn var síðastliðið mánudagskvöld. Sævar segir á síðu sinni að glæsileg frumhönnun sé tilbúin og hvetur hann alla til að kynna sér þær hugmyndir sem er ætlað að skila stórglæsilegum nú- tíma grunnskóla þegar verkefninu er lokið. Sævar segir að margvíslegar skemmtilegar breytingar séu fyrir- hugaðar. „Hugað er að bættu að- gengi, betri flóttaleiðum, hljóð- vist, ljósgæðum og þess háttar sem stuðla mun að því að virkja sköp- unarkraft og öflugt menntaum- hverfi fyrir kennara og nemend- ur. Þá er jafnframt lagt til að aukin starfsemi verði á þriðju hæð álm- unnar. Áfram verður unnið í hönn- uninni og breytingar kynntar þegar þær liggja fyrir. Þó hratt hafi verið unnið til að bregðast við aðstæð- um, þá höfum við vandað ákvörð- unartöku og greint vel valkosti í samstarfi við stjórnendur, fagaðila og kennara. Mikið hefur reynt á og mikil vinna verið unnin. bæjar- stjórn, stjórnendur, kennarar, iðn- aðarmenn, nemendur og foreldrar eiga mikið hrós skilið fyrir metn- að og fyrir frábæran sveigjanleika,“ segir Sævar á síðu sinni. Starfsfólk skólans lært mikið af aðstæðum Sævar Freyr hóf fundinn með stuttu erindi þar sem hann útskýrði fyrir- komulag fundarins, rakti forsögu málsins og greindi frá áherslum sveitarfélagsins í málinu. Þá kynnti Sigurður Arnar Sigurðsson, skóla- stjóri Grundaskóla, aðgerðir sem starfsfólk skólans ásamt fleirum hefur unnið að frá því að endanleg skýrsla með úttekt á húsnæði skólans frá Verkís barst og var kynnt 17. mars síðastliðinn. Sigurður Arnar greindi meðal annars frá því að starfsfólk skólans hafi lært mikið af þeim að- stæðum sem hafa skapast og skólinn hefur ekki þurft að loka einn einasta dag vegna aðstæðna. Þá kynnti Sig- urður framkvæmdir sem nú þegar hefur verið farið í til umbóta m.a. í unglingadeild og svokallaðri stjórn- endaálmu auk skólalóðarinnar. Að síðustu kynnti kristján Garð- arsson frá Andrúm arkitektum for- hönnun á stjórnendaálmu og C álmu þar sem heimastofur yngsta stig verða staðsettar ásamt list- og verk- greinakennslu o.fl. kristján skýrði frá því að við hönnun C álmu hafi allt rými húsnæðisins verið hannað að nýju. Þá er jafnframt lagt til að aukin starfsemi verði á þriðju hæð álmunnar. frg /Ljósm. úr kynningu Andrúms Arkítekta ehf. Miðrými á 2. hæð Grundaskóla. Metnaðarfull áform um umbreytingu Grundaskóla Ásýnd Grundaskóla eftir breytingar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.