Skessuhorn - 08.09.2021, Page 31
MIðVIkudAGuR 8. SEptEMbER 2021
SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI
WWW.DOTARI .IS•DOTARI@DOTARI.IS
LEIKFÖNG - GJAFAVÖRUR - FATNAÐUR
OPNUNARTÍMI
ALLA VIRKA DAGA 13-18
HELGAR 11-15
SMIÐJUVÖLLUM 32 (HJÁ BÓNUS)
Staða kvennaliðs ÍA í knattspyrnu í
Lengjudeildinni versnaði enn eftir
0:3 tap gegn Aftureldingu á Akra-
nesvelli á laugardag. Aðstæður til
knattspyrnuiðkunnar voru ekki upp
á það besta á laugardaginn. Strekk-
ingsvindur sem stóð á annað mark-
ið. Gestirnir úr Aftureldingu léku
undan vindi í fyrri hálfleik. Eftir
aðeins 40 sekúndna leik fengu þær
aukaspyrnu utan vítateigs Skaga-
kvenna. Ragna Guðrún Guð-
mundsdóttir tók spyrnuna. Skotið
fór undan vindinum á mitt mark-
ið og datt inn undir þverslána og
inn. Erfitt fyrir Anítu Ólafsdóttur
markvörð við að eiga. Með vindinn
í bakið sóttu gestirnir mun meira
en Skagastúlkur vörðust vel og
börðust um hvern bolta og héldu
leikmönnum Aftureldingar alveg í
skefjum sem náðu ekki að skapa sér
afgerandi marktækifæri í hálfleikn-
um fyrir utan markið. Staðan í hálf-
leik 0:1.
Með vindinn í bakið í síðari hálf-
leik reyndu Skagastúlkur að ógna
marki Aftureldingar og komust
næst því að jafna þegar Sigrún Eva
Sigurðardóttir átti flott skot fyrir
utan vítateig eftir að hafa leikið á
tvo varnarmenn Aftureldingar, en
skotið lenti ofan á þverslánni og
aftur fyrir markið.
En Afturelding átti sínar skyndi-
sóknir og á 79. mínútu leiksins
náðu þær einni slíkri þegar Ragna
Guðrún Guðmundsdóttir komst
upp að endamörkum og sendi fyr-
ir markið og þar náði Jade Ari-
anna Gentile að skora af stuttu færi
þvert gegn gangi leiksins. Við þetta
misstu heimakonur aðeins móðinn
og Guðrún Elísabet björgvinsdótt-
ir skoraði þriðja markið í uppbóta-
tíma er hún komst ein inn fyrir og
skoraði fram hjá Anítu í markinu og
öruggur sigur í höfn.
Miðað við gang leiksins var sigur
gestanna helst til of stór. Skagakon-
ur börðust vel og lögðu allt í leik-
inn en það gekk ekki upp að þessu
sinni. Það sem helst háði liðinu í
þessum leik var hversu erfiðlega
liðinu gekk að skapa sér marktæki-
færi. Það þarf víst að skora mörk til
þess að vinna leiki.
Eins og áður sagði er liðið nú
alveg á brúninni með að falla úr
Lengjudeildinni þegar ein umferð
er eftir. En enn er von. ÍA er nú
í neðsta sæti með 14 stig, en Hk
og Grótta eru þar fyrir ofan með
16 stig. Ef ÍA nær að sigra Hauka
í Hafnarfirði á morgun fimmtudag
og Hk eða Grótta misstíga sig þá
gætu þær bjargað sér frá falli. Hk
á heimaleik gegn Augnabliki og
Grótta á kR á heimavelli. Leikur
Hauka og ÍA á morgun hefst eins
og allir leikir síðustu umferðarinn-
ar klukkan 19.15.
se
Víkingur Ólafsvík lék tvo leiki í
liðinni viku í Lengjudeild karla í
knattspyrnu og sá fyrri var gegn
liði kórdrengja á domusnova vell-
inum í breiðholti síðastliðinn mið-
vikudag. kórdrengir hafa komið
á óvart í Lengjudeildinni í ár og
eru nú í þriðja sæti, fjórum stig-
um á eftir Eyjamönnum sem eiga
þó tvo frestaða leiki til góða. Mun-
urinn á liðunum var bersýnileg-
ur á miðvikudaginn því yfirburð-
ir kórdrengja voru miklir og voru
þeir komnir í 2-0 eftir 15 mínútna
leik með mörkum frá Leonard
Sigurðssyni og Gunnlaugi Fann-
ari Guðmundssyni. Annað markið
var frekar klaufalegt; Marvin darri
Steinarsson, markvörður Vík-
ings, hefði átt að grípa auðveldlega
aukaspyrnu Loic Mbang Ondo en
missti boltann úr höndunum á sér
fyrir fætur Gunnlaugs sem skoraði
auðveldlega.
Í seinni hálfleik stjórnuðu kór-
drengirnir hraðanum í leiknum og
bættu við tveimur mörkum undir
lok leiksins. Fyrst var það Magnús
Andri Ólafsson með mark sjö mín-
útum fyrir leikslok og á lokamín-
útunni skoraði Axel Freyr Harð-
arson fjórða mark kórdrengja.
Lokastaðan 4-0 en Guðjón Þórð-
arson, þjálfari Víkings, staðfesti
í viðtali eftir leik að hann ætli að
halda áfram sem þjálfari liðsins
og stjórna liðinu í 2. deild karla á
næsta tímabili.
Víkingur Ólafsvík lék síðan
gegn liði Þróttar í Laugardalnum
á sunnudaginn. Þróttur komst yfir
strax á þriðju mínútu með marki frá
Sam Ford en Harley Willard jafn-
aði metin einungis fjórum mínút-
um síðar þegar hann fékk boltann
í teignum og skaut föstu skoti sem
fór af varnarmanni. boltinn datt
aftur til Willard sem kláraði fær-
ið snyrtilega í fjærhornið. Simon
Colina kom síðan Víkingi yfir eftir
rúmlega hálftíma leik eftir góðan
undirbúning bjarts bjarma barkar-
sonar og leiddi Víkingur því þegar
flautað var til hálfleiks 1-2.
Eftir klukkutíma leik fékk Þrótt-
ur vítaspyrnu sem Sam Hewson
setti örugglega í vinstra hornið og
sendi konráð Ragnarsson, mark-
mann Víkings, í hina áttina. Eftir
þetta skiptust liðin á að sækja og
þrívegis varði konráð ansi vel fyrir
Ólsara en hann átti enga möguleika
níu mínútum fyrir leikslok þegar
boltinn fór af varnarmanni og yfir
hann í markið. undir lok leiks-
ins gerðu Þróttarar út um leikinn
með tveimur mörkum, fyrst skor-
aði kairo Edwards-John og síðan
daði bergsson fyrir heimamenn
og stórsigur Þróttar í höfn, 5-2.
Víkingur er með fimm stig í
Lengjudeildinni þegar tvær um-
ferðir eru eftir. Eftir að fjölgað
var í Lengjudeildinni árið 2007 úr
tíu liðum í tólf hafa tvö lið feng-
ið færri stig en Víkingur hefur nú.
Árið 2013 fékk Völsungur aðeins
tvö stig og árið eftir lið tindastóls
fjögur stig. Metið yfir flest mörk
á sig á einu tímabili á Völsungur
með 85 mörk, tindastóll 71 mark
og Víkingur er nú kominn með 71
mark á sig á þessu tímabili og því
líklegur til að komast í annað sætið
á þessum vafasama lista.
Næsti leikur Víkings og síðasti
heimaleikur liðsins í sumar er gegn
Gróttu á Ólafsvíkurvelli næsta
laugardag og hefst klukkan 14.
vaks
Guðjón Þórðarson stýrir liði Víkings árið 2022. Ljósm. af.
Víkingur tapaði gegn
Kórdrengjum og Þrótti
Staðan orðin erfið
hjá Skagakonum