Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Side 6

Skessuhorn - 15.09.2021, Side 6
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 20216 Styrkja menn- ingarverkefni BORGARBYGGÐ: at- vinnu-, markaðs- og menn- ingarmálanefnd Borgar- byggðar auglýsir eftir um- sóknum um styrki til menn- ingarverkefna í sveitarfé- laginu árið 2021 en næsta úthlutun fer fram í október og þurfa umsóknir að ber- ast í síðasta lagi viku fyrir fund nefndarinnar sem er 28. september nk. Mark- mið styrkveitinganna er að styðja við fjölbreytta menn- ingarstarfsemi í sveitarfé- laginu og stuðla að jákvæðri þróun í menningarmálum. Í reglum Borgarbyggð- ar um téðar styrkveitingar segir að tilgreind verkefni samkvæmt framangreindu markmiði séu listaverk, út- gáfa bókmennta, vísinda- greina, fræðibóka, skýrslna og annað sem hefur menn- ingarlegt varðveislugildi til lengri tíma, útgáfa mynd- og hljóðdiska sem hafa menningarlegt gildi og sýnilega sérstöðu, styrkir til smærri menningarviðburða í sveitarfélaginu, varðveisla menningarminja og styrkir til að varðveita menningar- arfleifð, til að mynda húsa- og upplýsingaskilti. -frg Kynhneigð útiloki ekki blóðgjöf LANDIÐ: Heilbrigðis- ráðherra hefur sett drög að breytingu á reglugerð um söfnun, meðferð, varð- veislu og dreifingu blóðs og viðauka iV við sömu reglu- gerð til umsagnar í Sam- ráðsgátt stjórnvalda. Breyt- ingin hefur í för með sér að því er bætt inn í reglu- gerðina að það sé óheim- ilt að mismuna blóðgjöf- um á grundvelli ómálefna- legra sjónarmiða, svo sem kyns, kynhneigðar, upp- runa eða stöðu að öðru leyti. Breytingin felur jafn- framt í sér að kynhegðun veldur ekki lengur varan- legri frávísun blóðgjafar. Í staðinn er kveðið á um að blóðgjafi megi ekki hafa stundað áhættusamt kynlíf í fjóra mánuði fyrir blóð- gjöf. Lögð er til skilgrein- ing á því hvað telst vera áhættusamt kynlíf en í því felst að það sé kynlíf sem eykur verulega líkur á að alvarlegir smitsjúkdómar berist með blóði. -mm Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar VESTURLAND: atkvæða- greiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninga laugardag- inn 25. september næstkom- andi hófst 13. ágúst og heldur áfram fram til kjördags. Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum og útibúum sýslu- manna um allt land fram að kjördegi. Öllum á kjörskrá er heimilt að kjósa utan kjör- fundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu. Hjá sýslumanninum á Vesturlandi má greiða atkvæði alla virka daga. Lesendur eru hvattir til að kynna sér utankjörfund- arstaði í auglýsingu í síðasta Skessuhorni. -arg Akstursþjónusta fyrir eldri borgara STYKKISH: Stykkishólms- bær býður nú upp á aksturs- þjónustu fyrir eldri borgara, 67 ára og eldri. Markmiðið með akstursþjónustunni er að gera öldruðum einstaklingum í Stykkishólmi kleift að búa lengur heima. Skilyrði fyrir akstri er að umsækjandi sé 67 ára eða eldri, eigi lögheimili í Stykkishólmi, búi sjálfstætt, hafi ekki aðgang að eigin bif- reið og sé ófær um að nota aðrar samgöngur. Þjónustan er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13 til 15. Gjald fyrir hverja ferð er 500 krónur. Ráðhús Stykkishólmsbæjar annast af- greiðslu umsóknar um þjón- ustuna en hægt er að panta akstur með því að hringja í afgreiðslu Ráðhússins í síma 433-8100 eða senda tölvupóst. Bogi thor Bragason sér um aksturinn. -vaks Blaðamannafélag Íslands hefur sent áskorun til stjórnmálaflokkanna um að gera það að stefnumáli sínu að tryggja að á Íslandi fái þrifist frjáls- ir, sjálfstæðir og óháðir fjölmiðlar. Í tilkynningu segir að fjölmiðlar séu grundvöllur lýðræðislegrar um- ræðu og lýðræðislegra samfélaga, um það er ekki deilt. „Það er einnig óumdeilt að rekstrarumhverfi fjöl- miðla hefur versnað mikið á und- anförnum árum. Ástæðan er fyrst og fremst stórfelldar breytingar á fjölmiðlamarkaði með tilkomu er- lendra efnisveitna, samfélagsmiðla og tæknirisa á borð við Facebook og Google sem soga til sín æ stærri hluta af auglýsingafé. Þá hefur sú þróun orðið að færri eru tilbúnir til að greiða fyrir fréttir eða fréttatengt efni vegna þess mikla framboðs sem er af fríu fréttaefni á netinu.“ Þá segir í yfirlýsingu BÍ að staða fjölmiðla sé ekki einkamál fjöl- miðlanna sjálfra heldur varðar hún samfélagið allt. „Sterkir, öflugir fjöl- miðlar eru forsendur þess að hægt sé að veita stjórnvöldum og stórfyr- irtækjum nauðsynlegt aðhald. Það ætti að vera markmið hvers lýðræð- issamfélags, hverrar ríkisstjórnar, hvers löggjafarþings, að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öfluga, frjálsa og sjálfstæða fjölmiðlastarfsemi í landinu. Því skorar Blaðamannafélag Íslands á þá flokka sem bjóða fram í komandi alþingiskosningum að taka upp til- lögur að nauðsynlegum breyting- um sem félagið telur stuðla að því að forsendur fyrir rekstri fjölmiðla gjörbreytist. að auki skorar Blaðamanna- félagið á stjórnmálaflokka að hafa í huga samfélagslega ábyrgð sína og mikilvægi fjölmiðla fyrir lýðræðis- lega umræðu í samfélaginu þegar ákvörðun er tekin um birtingu aug- lýsinga. BÍ hvetur stjórnmálaflokka til að setja sér stefnu, sem birt er opinberlega, um hlutfall auglýs- ingafjármagns sem veitt er til er- lendra miðla, og jafnframt að birta að kosningum loknum sundurliðun á því hve miklu fjármagni var varið til erlendra miðla annars vegar og íslenskra hins vegar.“ mm Á landsþingi Slysavarnafélags- ins Landsbjargar, sem haldinn var fyrstu helgi mánaðarins, tóku rúm- lega 300 fulltrúar aðildareininga þátt í líflegum umræðum um starf- semi félagsins og framtíðarsýn. Fé- lagar kusu sér nýjan formann og nýja stjórn ásamt því að álykta um ýmis mál. Þingið skoraði bæði á dómsmálaráðherra og ríkisstjórn Íslands. Áskorun til dómsmálaráð- herra snýr að lagaumgjörð um pen- ingaspil sem er í skoðun hjá vinnu- hópi sem ráðuneytið skipaði fyrr á árinu og hefur heildarlagaumgjörð málaflokksins til endurskoðunar. Mikið hefur mætt á almanna- varnakerfinu undanfarin tvö ár og reynsla komin á þær breytingar sem gerðar hafa verið á kerfinu undan- farin ár. Þingið skoraði á ríkis- stjórnina að halda áfram af fullum þunga endurskoðun á lögum um al- mannavarnir með það að leiðarljósi að tryggja enn betur viðbragðs- hæfni og sjálfstæði þeirra sem að málaflokknum vinna. Nýr formaður og stjórn var kosin á Landsþinginu. Otti Rafn Sigmars- son var kosinn nýr formaður félags- ins í stað Þórs Þorsteinssonar. Otti Rafn hefur setið í stjórn félagsins síðustu tvö kjörtímabil og gegndi embætti varaformanns undanfarin tvö ár. Hann er félagi í Björgunar- sveitinni Þorbirni í Grindavík, hef- ur verið virkur félagi í rúm 20 ár og látið til sín taka á vettvangi félags- ins á ýmsum sviðum. Í nýrri stjórn sitja auk hans Þorsteinn Þorkels- son, Borghildur Fjóla kristjáns- dóttir, Gísli V. Sigurðsson, Hafdís einarsdóttir, Hildur Sigfúsdótt- ir, Valur S. Valgeirsson, Þorsteinn Ægir egilsson og Þór Bínó Frið- riksson frá akranesi. mm Ný stjórn Landsbjargar. Ljósm. Landsbjörg. Landsbjörg skorar á stjórnvöld Blaðamannafélagið minnir á nauðsyn sjálfstæðra fjölmiðla

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.