Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 29

Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 29
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 2021 29 Kísiljárnverksmiðjan Elkem Ísland leitar að öflugu starfsfólki í framleiðslustörf. Elkem er skemm�legur og �ölbrey�ur vinnustaður sem byggir á sterkri liðsheild og góðri fyrirtækjamenningu. Elkem Ísland er vímuefnalaus vinnu- staður og í aðdraganda ráðningar eru umsækjendur beðnir um að gangast undir vímuefnapróf. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Elkem Ísland | Grundartanga | 301 Akranes | elkem@elkem.is | www.elkem.is Við erum að leita að fram�ðarstarfsmönnum í teymið Æskilegir eiginleikar umsækjenda eru:  Sterk öryggis- og gæðavitund  Metnaður �l að starfa við sérhæfða hágæðaframleiðslu  Sveigjanleiki og styrkur �l að vinna jöfnum höndum sjálfstæ� og í teymi  Jákvæðni, vinnusemi og vilji �l að læra af reynslu samstarfsmanna Sendu inn umsókn á www.elkem.is Varp hafarna hefur heppnast vel í ár, að sögn Róberts arnars Stefáns- sonar, líffræðings hjá Náttúrustofu Vesturlands. talið er að stofninn telji nú á fjórða hundrað fugla og að 86 óðul séu í ábúð. alls var orpið á 69 óðulum og komust 58 ungar á legg á 45 þeirra, sem er met. Stofn- inn er þó talsvert langt frá því að ná sama styrk og fyrr á öldum en þró- unin er mjög jákvæð. Hafarnarstofninn hefur verið í hægum vexti allt frá áttunda ára- tugnum en þá hafði hann stað- ið að mestu í stað allt frá því um 1920. Þá taldi stofninn um 20 varp- pör. Stofninn hafði sætt ofsóknum auk þess sem haförninn sótti í æti sem var eitrað og sett út fyrir refi. Þá leið stofninn fyrir notkun þrá- virkra lífrænna mengunarefna víða um heim, svo sem ddt og pCB, sem bárust hingað með loftstraum- um og fardýrum. „Margir ránfuglar áttu erfitt vegna téðra ofsókna og mengunarefna,“ segir Róbert. Þegar bann hafði verið sett við útburði eitraðs ætis tók stofninn að vaxa. Róbert bendir á að stofn- inn hafi gengið í gegnum flösku- háls erfðafræðilega vegna fæðar. „Frændur og frænkur æxluðust og er erfðafræðileg einsleitni í stofn- inum mikil. Mögulega hefur það hægt á fjölgun stofnsins eftir að hagstæðari skilyrði sköpuðust en litlir og einsleitir stofnar hafa minni getu til að bregðast við umhverfis- breytingum,“ segir Róbert. Þá segir hann jafnframt að vöxtur stofnsins á Íslandi hafi verið hægari en stofn- ar hafarna annars staðar í evrópu og að mögulega skýrist það að ein- hverju leyti af þessari einsleitni hér á landi. að sögn Róberts er hafarnar- stofninn sá fuglastofn á Íslandi sem hvað best er fylgst með. Náttúru- fræðistofnun Íslands hefur umsjón með vöktun hans en vinnur í náinni samvinnu við Náttúrustofu Vestur- lands og fuglaáhugafólk. Hafern- ir geta náð a.m.k. tuttugu ára aldri og munu ungamerkingar undanfar- inna ára varpa skýrara ljósi á aldurs- samsetningu stofnsins, ferðir á milli landshluta og ýmsa aðra þætti. Varp hafarna er þéttast við sunnanverð- an Breiðafjörð en varpútbreiðslan nær frá Faxaflóa vestur um og að Húnaflóa. Á þessu svæði gætir mik- illa sjávarfalla og grunnsævi er mest hér við land. aðgengi arna að fæðu er þess vegna betra á þessu svæði en annars staðar. Hafernir hafa fjöl- breytt fæðuval og sérhæfa sig ekki í neinni sérstakri tegund. uppistað- an í fæðu hafarnarins er þó fuglar og grunnsævisfiskar. ernir sjást nú orðið í öllum landshlutum og ef stofninn heldur áfram að vaxa er líklegt að varpút- breiðslan aukist. Haförninn verpir í apríl og ungarnir verða fleygir í lok ágúst. Hins vegar er með haf- erni eins og mörg mannanna börn að hann hangir lengi heima eða allt að áramótum. frg/ Ljósm. af Varp hafarna heppnaðist vel AUGLÝSING UM SKIPULAG - BORGARBYGGÐ AUGLÝSING UM NIÐURSTÖÐU SVEITARSTJÓRNAR BORGARBYGGÐAR VEGNA SKIPULAGS Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. júní 2021 eftirfarandi tillögur samkvæmt 32. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022. Breytt landnotkun við Stafholtsveggi II í Borgarbyggð, landnotkunarreitur fyrir verslun- og þjónustu S11. Deiliskipulag ferðaþjónustu í landi Stafholtsveggja II. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is. Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda. SK ES SU H O R N 2 02 1 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.