Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 30
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202130
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Kjörskrá vegna Alþingiskosninga
25. september 2021
Kosningar til Alþingis fara fram 25. september næstkomandi.
Kjörskrá á Akranesi hefur nú verið lögð fram og samþykkt.
Kjörskráin liggur frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar,
Dalbraut 4, 1. hæð, á skrifstofutíma frá og með
15. september næstkomandi til kjördags.
Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna
kjörskrár er bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og
fjármálasviðs Akraneskaupstaðar (433-1020,
netfang: steinar.adolfsson@akranes.is).
Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt til kjördags gert
leiðréttingar á kjörskrá ef við á.
Akranesi, 9. september 2021
YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESS
Hugrún O. Guðjónsdóttir, formaður
Einar Gunnar Einarsson
Björn Kjartansson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Alþingiskosningar
2021, Akranesi
Kjörfundur vegna Alþingiskosninga 25. september 2021, fer fram í
íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum og hefst kjörfundur kl. 09:00 og lýkur
í síðasta lagi kl. 22:00.
Íþróttahúsið Jaðarsbökkum, gengið inn um norður anddyri.
I. kjördeild Akralundur til og með Esjubraut
II. kjördeild Esjuvellir til og með Jaðarsbraut
III. kjördeild Jörundarholt til og með Smiðjuvellir
IV. kjördeild Sóleyjargata til og með Þjóðbraut
Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag og
hafa meðferðis persónuskilríki.
Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 899-9180.
Netfang: kosning@akranes.is
Kjósendur eru hvattir til að gæta að eigin smitvörnum
í samræmi við gildandi reglur á hverjum tíma.
Akranesi, 9. september 2021
YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESS
Hugrún O. Guðjónsdóttir, formaður
Einar Gunnar Einarsson
Björn Kjartansson
Það fór ekki fram hjá nokkr-
um manni að fyrir skemmstu gaf
hljómsveitin aBBa út tvö ný lög
eftir 40 ára þögn frá hljómveita-
bransanum. Fyrsta plata aBBa,
Ring Ring, kom út árið 1973 og
væntanleg er ný plata 5. nóvember
sem nefnist Voyage en sveitin var
stofnuð í Svíþjóð árið 1972. aBBa
voru frumkvöðlar í gerð tónlistar-
myndbanda en hinn þekkti sænski
leikstjóri Lasse Hallström (Mitt liv
som hund, Chocolat og the Ci-
der House Rules) leikstýrði flest-
um myndböndum aBBa frá ár-
unum 1974-82 og einnig mynd-
Framleiðir tónleikasýningu ABBA
inni frá 1977, aBBa: the Movie. Á
næsta ári eru fimmtíu ár frá stofnun
sveitarinnar og í tilefni af því verð-
ur aBBa með tónleikaröð í nýrri
tónleikahöll í Lundúnum sem er
sérstaklega hönnuð og byggð utan
um sýndarveruleikatónleika með
aBBa. tónleikarnir verða í maí
á næsta ári. Þar mun tölvu aBBa,
eins og þau litu út árið 1979, birtast
á sviðinu og flytja sína helstu smelli
með lifandi stórri hljómsveit sem
verður með tölvu aBBa á sviðinu.
Skagakonan Svana Gísladóttir
rekur kvikmyndafyrirtæki í Lund-
únum og hefur búið í Lundúnum í
24 ár og búin að afreka eitt og ann-
að. Hún vann árum saman við að
framleiða tónlistarmyndbönd með
fólki eins og Radiohead, Björk,
Oasis, Coldplay, Oasis, adele og
fleirum en hún ákvað þeg ar hún
var búin að vinna í leyni með da-
vid Bowie að síðustu myndbönd-
unum hans að hún ætlaði ekki að
gera fleiri tónlistartengd verkefni.
Svana fékk svo símtal frá aBBa og
sló til og hefur verið nánasti sam-
starfsmaður þeirra síðustu fjögur
ár í þessu verkefni sem hefur verið
unnið með mikilli leynd undanfarin
ár. Það er brjálað að gera hjá Svönu
þessa dagana í þessu öllu saman
og baðst hún því undan viðtali og
fengum við góðfúslegt leyfi hjá Rás
2 að nota glefsur úr viðtali sem þau
Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar
Róbertsson tóku við hana í síðustu
viku í morgunútvarpi Rásar 2.
Erfitt á tímum brexit
og covid
Svana segir aðspurð hvert hennar
hlutverk sé í þessu verkefni að hún
sé búin að vera framleiðandi í eng-
landi í um 20 ár og hafi verið að
vinna með þeim í þessu síðan árið
2017. Hún sé að framleiða þessa
tónleikasýningu fyrir aBBa og að
þetta sé svona þeirra barn sem þau
voru að fæða. Hún segir einnig að
þetta sé búið að taka mjög lang-
an tíma og mjög krefjandi að setja
þetta á svið. „Við erum búin að fara
í gegnum eins og við köllum sköp-
unarferil, þetta er svona verkefni
sem gerist ekkert yfir eina nótt og
við erum búin að prófa ýmsa hluti
þangað til við áttuðum okkur á því
hvað kæmi best út og erum rosalega
ánægð með það sem við erum að
opna núna í maí. Svo erum við að
byggja byggingu líka, ég veit ekki
hvort einhver sem hefur reynslu
af byggingavinnu geti ímyndað sér
hvernig eigi að gera það á tímum
Brexit og Covid. Það er kannski
mesta stressið í þessu öllu saman.
Við erum að byggja þrjú þúsund
manna höll í Olympic park í austur
Lundúnum, þetta er alveg á yndis-
legum stað þar sem borgarstjórinn
bauð okkur að byggja og þá er ein-
mitt BBC að fara að opna höfuð-
stöðvar sínar þarna nálægt.“
Svana segir að það eigi að vera
hægt að taka þetta niður á 14 vik-
um: „en ég fer nú þarna annan
hvern dag og er að horfa á þetta
núna. Hvernig eigum við að fara
að því að taka þetta niður? Þetta er
alveg rosaleg bygging þannig að ég
er að biðja mitt fólk að endurskoða
hvort það sé pottþétt hægt að taka
þetta niður á 14 vikum.“
Gera tónlistinni góð skil
tæknilega séð verður þessi sýning
alveg einstök? „Það er ofsalega mik-
il tækni í þessu, við erum búin að
fylla bygginguna sjálfa af allskon-
ar dóti og endurhanna þakið í höll-
inni þrisvar sinnum til að hún haldi
þyngslunum, alls 600 tonn. Þau í
aBBa eru sjálf digital í sýningunni
þannig að við erum að vinna með
industrial Light and Magic stúdíó
George Lucas sem hefur gert Star
Wars myndirnar og the avengers.
Ákvarðanatakan á hverjum degi
snýst ekkert um tæknina heldur að
gera þessari tónlist góð skil og fólk-
ið sem kemur að sjá og hlusta fái
upplifun sem er meira tilfinninga-
leg heldur en að vera að horfa upp í
loftið og hrífast af tækninni.“
Svana segir enn fremur að í sýn-
ingunni verði alls 22 lög og hún sé
um 100 mínútur að lengd og þetta
verði bara eins og að fara á tónleika
með aBBa í dag. Þau hafi átt um
60 smelli í gegnum tíðina og það
verða örugglega einhver lög sem
fólk muni sakna.
Hefur þú eitthvað fengið að hitta
þau sjálf í þessari vinnu allri? „Já,
ég er búin að vera að vinna með
þeim í 4-5 ár í þessu og er að fram-
leiða þetta með þeim. Þó að þetta
séu lifandi goðsagnir að þá er nóg
að vinna með þeim í tvær mínútur
til að vita að þetta er ósköp venju-
legt fólk, þau eru bara mjög eðlileg
og yndislegt fólk.” segir Svana að
lokum.
vaks
Svona líta ABBA út í dag, öll komin yfir sjötugt.
Hljómsveitin ABBA starfaði á árunum 1974-1982.
Svana ásamt Benny Andersson, Ludvig syni Bennys og Björn Ulvaeus á kynn-
ingunni fyrir tónleikasýninguna.