Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 31
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 2021 31
FJÖLSKYLDUSVIÐ BORGARBYGGÐAR
AUGLÝSIR STÖÐU FÉLAGSRÁÐGJAFA
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag með ríka sögu, í nálægð
við höfuðborgina þar sem íbúar og gestir upplifa öflugt skólastarf, íþrótta-, menningar-
og listalíf, góða þjónustu og vinalegt viðmót ásamt fjölbreyttri afþreyingu í einstakri
náttúrufegurð.
Um er að ræða 100% starfshlutfall. Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem
sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu
á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Erum við að leita að þér?
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan félagsþjónustu, þ.m.t.
félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð.
Annast greiningu, könnun og vinnslu barnaverndarmála.
Aðkoma að þjónustu og ráðgjöf við fólk með fötlun, bæði börn og fullorðna.
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum
þjónustu-stofnunum vegna málefna barna og fjölskyldna þeirra.
Forvarnarmál.
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR
Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
Þekking og reynsla á sviði barnaverndar og meðferð fjölskyldumála.
Þekking og reynsla af vinnu með fólki með skerðingar æskileg.
Þekking á forvarnamálum æskileg.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Vinnutími: dagvinna
Starfshlutfall: 100%
Starfsvið: fjölskyldusvið
Umsóknarfrestur: 20. september 2021
Umsókn skal senda í gegn um https://alfred.is/starf/felagsradgjafi-13. Umsókn skal fylgja
náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig
kynningarbréf.
Áhugasamir einstaklingar, án tillit til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri.
Netfang vildis@borgarbyggd.is Símanúmer 433 7100.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Alþingiskosningar 2021
Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. september 2021. Upplýsingar um
flest er lýtur að kosningunum er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins,
www.kosning.is.
Kjörskrá
Kjósendur eru á kjörskrá þar sem þeir eiga skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag, flutningur
lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá. Kjörskrá fyrir Dalabyggð liggur frammi á
skrifstofu Dalabyggðar frá og með 10. september til kjördags,
mánudaga – föstudaga kl. 9:00 – 13:00.
Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á
kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera slíkar athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninganna er hafin. Kjósanda er heimilt að greiða
atkvæði utan kjörfundar til kjördags. Innanlands er hægt að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á
aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Dalabyggð fer fram í afgreiðslu sýslumanns, Miðbraut 11 í Búðardal á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9:30 til 13:00.
Kjörfundur
Kjörfundur vegna alþingiskosninga í Dalabyggð verður í fundasal stjórnsýsluhússins á Miðbraut 11 í
Búðardal og stendur frá kl. 10:00 til kl. 20:00. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkum á kjörstað.
Kjósendur skulu sýna tillitsemi og virða sóttvarnir á kjörstað.
Kjörstjórn Dalabyggðar
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar
auglýsir á vef sínum eftir styrkum-
sóknum frá einstaklingum og fyrir-
tækjum í samræmi við reglur Stykk-
ishólmsbæjar um styrkveitingar. Í
auglýsingunni segir: „Markmiðið
með styrkjum bæjarstjórnar Stykk-
ishólmsbæjar er að styðja við sjál-
fsprottið starf, starfsemi frjálsra
félagasamtaka og framtak einstak-
linga sem stuðla að farsælli þróun
samfélagsins, menningarlífs, lífs-
gæðum og fjölbreytilegu mann-
lífi og öflugu íþrótta- og æskulýðs-
starfi. almennar styrkveitingar fara
fram tvisvar á ári, á fundum bæjar-
stjórnar í mars/apríl og október/
nóvember.
Varðandi styrki til til einstaklinga,
félaga og/eða samtaka sem starfa að
íþrótta- og æskulýðsstarfi í Stykkis-
hólmi eða hafa með höndum aðra
sambærilega starfsemi þá má veita
styrki bæði vegna einstakra verk-
efna eða viðvarandi starfsemi.
Skilyrði styrkveitinga er að at-
burður eða verkefni sé í Stykk-
ishólmi, en varðandi íþrótta- og
æskulýðsstarf er það skilyrði að
umsækjendur skuli hafa lögheimili
í Stykkishólmi. Þá skulu félög sem
eru deildarskipt sækja um styrk fyr-
ir sínar deildir. ekki er úthlutað sér-
staklega til deilda heldur skal við-
komandi félag ráðstafa þeim fjár-
munum sem það fær í styrk, sjálft
til deildanna eftir reglum hvers fé-
lags fyrir sig. Hafi umsækjandi áður
hlotið styrk til verkefnis þarf að
liggja fyrir greinargerð um fram-
kvæmd þess og ráðstöfun styrk-
fjárins til að ný umsókn komi til
greina, sbr. verkáætlun í umsókn og
skilmálum styrks. frg
Borgarbyggð og umhverfis- og
auðlindaráðuneytið hafa gert með
sér samninga um styrkveitingar til
annars vegar bættrar úrgangsþjón-
ustu við frístundahús og hins veg-
ar söfnunar brotajárns í dreifbýli
í Borgarbyggð. Styrkurinn til úr-
gangsþjónustu nemur fjórum millj-
ónum króna og styrkur til söfnun-
ar brotajárns sex hundruð þúsund
krónum.
Ráðuneytið auglýsti 18. mars eft-
ir umsóknum lögaðila um styrki
til verkefna sem stuðla að eflingu
hringrásarhagkerfis hér á landi.
Markmiðið með styrkveitingun-
um er samkvæmt samningunum að
efla úrgangsforvarnir, bæta flokk-
un úrgangs, efla tækifæri til end-
urvinnslu úrgangs sem næst upp-
runastað, stuðla að aukinni endur-
vinnslu og annarri endurnýtingu og
efla tækifæri til nýsköpunar og þró-
unar á búnaði sem dregur úr magni
úrgangs eða auðveldar flokkun,
endurvinnslu og aðra endurnýt-
ingu. Styrkveitingunum er ætlað að
styðja við nauðsynlega uppbygg-
ingu innviða hringrásarkerfisins á
Íslandi og nýsköpun og þróun sem
stuðlað getur að innleiðingu þess
hérlendis. frg
Styrkja hringrásarhag-
kerfi í Borgarbyggð
Stykkishólmsbær auglýsir
eftir styrkumsóknum