Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 37

Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 37
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 2021 37 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Borgarbyggð – miðvikudagur 15. september Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum ætl- ar að hittast í Brún kl. 13:30. Boðið verð- ur upp á hina margrómuðu réttarsúpu á fundinum. Dalabyggð – miðvikudagur 15. september Opinn dagur verður hjá kjötsmiðjunni Miðskógi í Dölum frá kl. 14:00. Þar geta áhugasamir komið og kynnt sér aðstöð- una og starfsemi smiðjunnar. Verkefnið við að koma kjötsmiðjunni á fót hef- ur haft langan aðdraganda og er smiðj- an kærkomin viðbót fyrir matvælafram- leiðslu í sveitarfélaginu. Smiðjan hefur hlotið styrki m.a. frá Uppbyggingarsjóði SSV og Framleiðnisjóði landbúnaðar- ins til uppbyggingar. Húsið verður form- lega opnað af fulltrúum SSV og eru allir áhugasamir velkomnir. Borgarnes – miðvikudagur 15. september Guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 20:00. Kirkjukór Borgarneskirkju leiðir sálma- söng undir stjórn Steinunnar Árnadótt- ur organista. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason þjónar fyrir altari. Borgarnes – miðvikudagur 15. september Bjarni Jónsson, Oddviti VG í Norðvest- ur kjördæmi og Guðmundur Ingi Guð- brandsson umhverfisráðherra halda op- inn fund í Arinstofunni á Landnámssetr- inu kl. 20:00. Akranes – fimmtudagur 16. september Foreldramorgnar byrja aftur á Bóka- safni Akraness og verða alla fimmtu- daga í vetur, að undanskildum 23. sept- ember, kl. 10:00. Verður þá opið hús fyrir foreldra og ungabörn, kjörið tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum og rabba saman um lifið og tilveruna. Samvera og fræðsla, heitt kaffi á könnunni. Akranes – fimmtudagur 16. september Opinn fundur með frambjóðendum Framsóknar í Norðvesturkjördæmi kl. 20:00 á Bárunni. Sigurður Ingi mætir og fer m.a. yfir mál Sundabrautar. Formleg opnun kosningaskrifstofu verður á sama tíma. Léttar veitingar í boði. Akranes – föstudagur 17. september Konukvöld Sjálfstæðisflokksins á Gamla Kaupfélaginu kl. 19:45. Veislustjóri kvöldsins er enginn annar en Iddi Biddi og mun hann sjá til þess að halda stuð- inu gangandi. Jógvan Hansen mun sjá um að heilla gesti upp úr skónum. Þórdís Kolbrún mætir. 18 ára aldurstakmark. Borgarbyggð – laugardagur 18. september Skógarganga Ferðafélags Borgarfjarð- arhéraðs í Einkunnum – Fólkvangi kl. 14:00. Gangan verður með ævintýra- legu ívafi og ýmsum uppákomum. Ætl- að börnum á öllum aldri. Ganga á létt- an hring um skóginn og það er aldrei að vita hverjir verða á vegi gönguhópsins. Að göngu lokinni verður boðið upp á heitt kakó í rjóðrinu þar sem grillið er. Akranes – sunnudagur 19. september ÍA og Fylkir mætast í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Akranesvelli og hefst kl. 16:00. Þetta verður síðasti heimaleikur ÍA í deildinni í sumar. Borgarbyggð – sunnudagur 19. september Nú verður dustað rykið af geispunum og farið upp í hlíðar Stálpastaða og birki gróðursett. Þetta er fjáröflun fyrir Skóg- ræktarfélagið Dafnar og eru allir með- limir velkomnir og mega taka liðsauka með sér. Boðið verður upp á hressingu að gróðursetningu lokinni og væri gott ef að þeir sem ætla að koma staðfesti sig til þess að hægt verði að versla inn í samræmi við fjölda og sporna gegn matarsóun og/eða ofáti. Lagt verður af stað frá Hvanneyri kl. 13:00 og fólk verð- ur flutt upp á jeppum þar sem að skóg- arstígarnir eru ekki fólksbílafærir. Dafnar mun reyna að verða sér út um smárútur fyrir þá sem vilja koma með frá Hvann- eyri og/eða sameinast í bíla. Vonandi sjáumst við sem flest í þessari náttúru- perlu, hátt upp á Hálsi. Ódýr bíll til sölu Volvo S40 SE árgerð 2002 er til sölu á 100.000 krónur. Bíllinn er keyrður 224.000 km. Leðursæti, cruise control, hiti í framsætum, vökvastýri og velti- stýri, nýir demparar, bremsuklossar og bremsudiskar að aftan. Verðlækkun vegna sparnaðar í tryggingu og skoð- unargjalds. Frekari upplýsingar í síma 867-6927. Rafmagnshjól Samanbrjótanlegt rafmagnshjól sem passar í skott á flestum bílum. Upplýs- ingar á netfangið svavar.kristinsson@ gmail.com. Á döfinni TIL SÖLU Smáauglýsingar Nýfæddir Vestlendingar 23. ágúst. Stúlka. Þyngd: 4.346. Lengd: 55 cm. Foreldrar: Lovísa Ósk E. Halldórsdóttir og Hálfdán Finnbogason, Hnífsdal. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. 1. september. Drengur. Þyngd: 3.586 gr. Lengd: 49,5 cm. Foreldrar: Petrea Hjartardóttir og Viðar Freyr Viðarsson, Akranesi. Ljósmóðir: G. Erna Valentínusdóttir. 25. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.508 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Ása Elín Helgadóttir og Grétar Þór Þórs- son, Vestmannaeyjum. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur í Reykholti Sími 433 8000 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is Snorrastofa í Reykholti Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson Þriðjudagur 21. september 2021 kl. 20 í Bókhlöðu Snorrastofu Fjallað verður um Finn Jónsson, sem var prestur í Reykholti og síðar biskup, og skrif hans um Snorra Sturluson og Reykholt í Kirkjusögu sinni (1772 til 1778) og útgáfu á Heimskringlu (1777 til 1783). Aðgangur ókeypis Verið velkomin Reykhyltingur um Reykhylting Ævisögur Snorra Sturlusonar á latínu eftir Finn Jónsson biskup Gottskálk Jensson, rannsóknardósent við Kaupmannahafnarháskóla og gestaprófessor við Háskóla Íslands

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.