Skessuhorn - 13.10.2021, Síða 6
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 20216
Könnun til efl-
ingar byggð og
samfélags
STYKKISH: Starfshóp-
ur um eflingu atvinnulífs í
Stykkishólmi stendur nú fyr-
ir stuttri skoðanakönnun á
vef bæjarfélagsins með það
að leiðarljósi að efla samfé-
lag og byggð í Stykkishólmi.
Markmiðið er að kanna hver
hugur fólks er með næstu
skref í atvinnumálum bæjar-
ins og kalla fram ábendingar
Stykkishólmi til framdrátt-
ar. „Markmið þetta er í sam-
ræmi við erindisbréf starfs-
hópsins um að vinna til-
lögur að eflingu atvinnulífs
í Stykkishólmi með því að
greina tækifæri sem liggja í
svæðisbundnum styrkleikum
og leggja til aðgerðir til þess
að nýta þau. Nánari upplýs-
ingar um vinnu starfshópsins
má finna á heimasíðu Stykk-
ishólmsbæjar.“ Könnunin er
fyrir íbúa 18 ára og eldri.
-mm
Umferðarslys
við Kerlingar-
skarð
SNÆFELLSNES: Öku-
maður ók bíl sínum út af
Stykkishólmsvegi, austan
við Kerlingarskarð, síðast-
liðið laugardagskvöld. Lög-
regla og sjúkralið voru köll-
uð á staðinn. Ökumaður
sem hafði dottað undir stýri
kvartaði undan eymslum í
baki og var fluttur á sjúkra-
húsið í Stykkishólmi. -frg
Fullur og rás-
andi ökumaður
VESTURLAND: Snemma
á föstudagsmorgun í síð-
ustu viku barst Neyðarlínu
tilkynning um rásandi bíl á
Vesturlandsvegi. Lögreglu-
menn stöðvuðu för bílsins og
var ökumaður hans handtek-
inn vegna meintrar ölvunar
við akstur. -frg
Tekinn á 132
kílómetra hraða
VESTURLAND: Ökumað-
ur var stöðvaður á laugardag-
inn á 132 kílómetra hraða
á Akrafjallsvegi. Við athug-
un reyndist ökumaður ekki
hafa ökuskírteini meðferð-
is. Ökumaður sagðist hafa
bráðabirgðaheimild og kom
síðar á lögreglustöð með þá
heimild meðferðis. Lögregla
brýnir fyrir ökumönnum að
hafa ökuskírteini ávallt með-
ferðis við akstur. -frg
Beltislaus
í símanum
AKRANES: Ökumaður var
stöðvaður á miðvikudag í
síðustu viku á Akranesi vegna
símanotkunar við akstur og
að vera ekki í bílbelti. Hlaut
viðkomandi ökumaður alls
60 þúsund króna sekt. -frg
Nýliðakvöld
slökkviliðsins
B O R G A R B Y G G Ð :
Slökkvilið Borgarbyggð-
ar auglýsir nú nýliðakvöld
sem haldið verður mánu-
daginn 25. október. Þar seg-
ir að slökkviliðið leiti að öfl-
ugum einstaklingum, 20 ára
og eldri af öllum kynjum, til
að ganga til liðs við hópinn.
Lausar stöður eru í Borgar-
nesi, á Hvanneyri, í Reyk-
holti og á Bifröst. Kynning-
arkvöld á starfsemi slökkvi-
liðsins verður mánudags-
kvöldið 25. október nk. kl.
20:00 í slökkvistöðinni að
Sólbakka 13-15 í Borgarnesi.
Þar verður hægt að sækja um
og skrá sig í inntökuferli.
Frekari upplýsingar veitir
Heiðar Örn Jónsson vara-
slökkviliðsstjóri, heidarorn@
borgarbyggd.is. Sjá einnig
í auglýsingu hér í blaðinu.
-frg
Undirbúningur
fyrir útvarpsút-
sendingar
AKRANES: Hafinn er und-
irbúningur fyrir útsendingu
Útvarps Akraness á aðvent-
unni. „Útvarpað verður frá
föstudeginum 26. til sunnu-
dagsins 28. nóvember nk. Að
venju verður fjölbreytt dag-
skrá sem er jafnframt í mót-
un þessa dagana. Ef áhuga-
samir um útvarpssendingar
vilja vera með þátt þá er um
að gera að senda póst á ut-
varpakraness@gmail.com,“
segir í tilkynningu. -mm
Hafnar eru sameiningarviðræður
Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæ-
fellsbæjar, með það fyrir augum að
íbúar kjósi um tillöguna í febrúar á
næsta ári. Samstarfsnefnd sveitar-
félaganna er skipuð fjórum fulltrú-
um, en með nefndinni starfa bæjar-
stjóri Snæfellsbæjar og bæjarritari.
Vinnuheiti verkefnisins er „Snæ-
fellingar“ og verður vefsíðan snae-
fellingar.is opnuð innan tíðar. Full-
trúar í samstarfsnefnd eru Júní-
ana Björg óttarsdóttir og Björn
H Hilmarsson frá Snæfellsbæ en
frá Eyja- og Miklaholtshreppi þeir
Eggert Kjartansson oddviti og Atli
Svansson hreppsnefndarmaður.
Samstarfsnefnd hefur nú hald-
ið þrjá fundi og fengið ráðgjafa-
fyrirtækið RR ráðgjöf til aðstoðar
við verkefnið, en RR ráðgjöf hef-
ur sérhæft sig í verkefnisstjórn og
ráðgjöf við sameiningarverkefni.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur
samþykkt að veita verkefninu fram-
lag sem stendur undir kostnaði við
verkefnið og verða íbúar sveitar-
félaganna því ekki fyrir beinum
kostnaði. Samstarfsnefndin fundar
vikulega þessi misserin og er góð-
ur gangur í verkefninu, að sögn
Róberts Ragnarssonar hjá RR ráð-
gjöf. Segir hann að samþykki íbúar
sveitarfélaganna sameiningu þeirra,
sé markmiðið að sameiningin styrki
byggð og skapi frekari sóknartæki-
færi fyrir samfélagið á sunnanverðu
Snæfellsnesi.
Samráð við
skólastjórnendur
Síðastliðinn mánudag komu skóla-
stjórnendur grunnskóla Snæfells-
bæjar og Laugargerðisskóla á fund
samstarfsnefndar um sameiningu
Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæ-
fellsbæjar. Á fundinum var far-
ið yfir stöðu leik- og grunnskóla-
starfs í Laugargerðisskóla og Lýsu-
hólsskóla, ásamt því að rætt var um
fyrir tónlistarkennslu og sérfræði-
þjónustu við skólana. Í Laugar-
gerðisskóla eru ellefu grunnskóla-
nemendur þetta skólaárið, en í
Lýsuhólsskóla eru 17 nemendur í
grunnskóla og sex nemendur í leik-
skóla. Lýsuhólsskóli er deild inn-
an grunnskóla Snæfellsbæjar sem
eru með kennslustaði í ólafsvík, á
Hellissandi og á Lýsuhóli.
„Á fundinum á mánudaginn kom
fram að í báðum skólum er gott og
faglegt skólastarf sem leitt er áfram
af samheldnum og öflugum starfs-
mannahópi. Foreldrasamfélagið er
mjög virkur bakhjarl og þátttakandi
í skólastarfinu. Ein helsta áskor-
un skólanna er annars vegar fjöldi
nemenda og hins vegar húsnæðis-
mál. Ráðgjöfum var falið að draga
saman stöðugreiningu og verður
umræðu um skólamál haldið áfram
á næstu vikum,“ segir Róbert Ragn-
arsson. mm
Kosið verður um sameiningu
tveggja sveitarfélaga á nýju ári
Vinnuheiti verkefnisins er Snæfellingar