Skessuhorn - 13.10.2021, Side 10
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 202110
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga var haldinn á þriðjudaginn
í síðustu viku. Þar kom fram að
heildarframlög sjóðsins hafi ver-
ið um 53,4 milljarðar króna á síð-
asta ári. Sigurður ingi Jóhanns-
son, samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra, sagði í ávarpi sínu á
fundinum að sveitarfélögin séu
nú að njóta umfangsmikilla að-
gerða ríkisins vegna heimsfarald-
ursins og að þær hafi með bein-
um eða óbeinum hætti orðið til
þess að útkoma sveitarfélaganna
hafi verið í samræmi við fjárhags-
áætlanir á síðasta ári. „Það sama
á við um Jöfnunarsjóð. Tekjurnar
aukast um meira en 6% milli ár-
anna 2019 og 2020. Þetta sýnir
að okkur tókst að verja sjóðinn og
tryggja lögbundið hlutverk hans,“
sagði Sigurður ingi. Hann segir þó
að tekjur Jöfnunarsjóðs gætu orð-
ið minni en í fyrra en að það komi
betur í ljós þegar árið verður gert
upp. Þá sagði hann að víða væri
komin góður gangur í atvinnulíf-
ið aftur og benti þar á ferðaþjón-
ustuna. „Ég staðfesti nýlega end-
urskoðaða áætlun fyrir útgjald-
arjöfnunarframlög ársins og þar
bættist milljarður við. Við getum
því leyft okkur að vera bjartsýn,“
segir Sigurður ingi.
guðni geir Einarsson, sérfræð-
ingur hjá Jöfnunarsjóði, fór í ávarpi
sínu yfir störf sjóðsins og ársreikn-
ing síðasta árs. Eins og fram hefur
komið var heildarframlag Jöfnun-
arsjóðs 53,4 milljarðar króna árið
2020 og að sögn guðna var tekju-
afgangur sjóðsins 48 milljónir á
árinu. Skipti þar viðbótarframlag
ríkissjóðs sköpum. En viðbótar-
framlögum var varið þannig að
670 m.kr. fóru í að koma til móts
við lækkun framlaga vegna þjón-
ustu við fatlað fólk. 720 m.kr. fóru
til sveitarfélaga þar sem rekstrar-
kostnaður jókst vegna fjárhagsað-
stoðar, 500 m.kr fóru til sveitarfé-
laga sem voru að glíma við lækkun
útsvars og 250 m.kr var varið til
sameininga sveitarfélaga.
Hér má sjá heildarframlög Jöfn-
unarsjóðs til sveitarfélaga á Vest-
urlandi:
Akraneskaupstaður
838.902.398 kr.
Skorradalshreppur
0 kr.
Hvalfjarðarsveit
0 kr.
Borgarbyggð
1.005.546.684 kr.
Grundarfjörður
235.955.231 kr.
Helgafellssveit
24.719.179 kr.
Stykkishólmur
274.980.725 kr.
Eyja- og Miklaholtshreppur
54.678.718 kr.
Snæfellsbær
472.039.241 kr.
Dalabyggð
311.971.163 kr.
arg
Í kvöld, miðvikudaginn 13. októ-
ber, verður kynningarfundur á upp-
byggingu LazyTown studio í Borg-
arnesi. Fundurinn verður hald-
inn í Hjálmakletti og hefst klukk-
an 19. Forsvarsmenn Upplifunar-
garðs Borgarness ehf. hafa unnið
að undirbúningi fyrir uppbyggingu
LazyTown studio í Borgarnesi.
Munu þeir, ásamt Margréti Katr-
ínu guðnadóttur, kaupfélagsstjóra
Kaupfélags Borgfirðinga, kynna
hugmyndir sem uppi eru um upp-
byggingu húss á lóðinni við digra-
nesgötu 4 í Borgarnesi. Þá mun
Magnús Scheving einnig kynna
hugmyndir tengdar uppsetning-
unni. Nánari upplýsingar má finna
á viðburðinum „Kynningarfundur
um uppbyggingu LazyTown studio
í Borgarnesi“ á Facebook. arg
Lísa Ásgeirsdóttir í grundarfirði
á og rekur fyrirtækið Rútuferðir
ehf ásamt manni sínum Hjalta All-
ani Sverrissyni. Rútuferðir ehf hef-
ur verið að þjónusta ferðamenn
á svæðinu ásamt því að aka fyrir
Strætó bs. og nú nýverið fyrir Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga. Í nóvem-
ber í fyrra opnaði Lísa svo versl-
unina Álfar og tröll í húsnæði fyr-
irtækisins.
„Það var frekar rólegt hjá okkur í
fyrrasumar og ég var búin að ganga
með þessa hugmynd í maganum í
mörg ár,“ segir Lísa í stuttu spjalli
við Skessuhorn. „Ég hef prjónað
frá því að ég var unglingur og lengi
langað að prófa þetta.“ Lísa fjárfesti
í saumamerkingavél og er komin
með frábæra aðstöðu til að merkja
fatnað, handklæði og nánast hvaða
tauefni sem er. „Við opnuðum þetta
í nóvember í fyrra og þetta byrjaði
rólega en hefur verið að aukast jafnt
og þétt. Það eru mest heimamenn
sem eru að versla núna en það eru
alltaf að aukast fyrirspurnir annars-
staðar frá.“
Lísa hefur aðallega verið að
merkja fyrir fyrirtæki sem koma
þá með eigin fatnað. „Ég er líka að
selja vörur í endursölu sem ég merki
og er kannski mest ætlað til ferða-
manna,“ segir Lísa en þó hafi ferða-
menn mest verið að kaupa lopa-
peysur sem hún og móðir henn-
ar prjóna. Þau hjónin stefna á að
auka umsvifin í þessari litlu verslun
á næstu misserum og bjóða þá upp
á hvers konar vörur ætlaða ferða-
mönnum á Snæfellsnesi. „Við vor-
um alltaf með það í huga að opna
svona lundabúð hérna með ferða-
þjónustunni og þetta er kannski
fyrsta skrefið í því,“ segir Lísa að
lokum. tfk
Lísa í litlu versluninni þar sem hægt er að kaupa ýmislegt nytsamlegt og flott.
Álfar og tröll í
Grundarfirði
Lísa við saumamerkingarvélina þar sem hún er að merkja peysu fyrir viðskipta-
vin.
Húfan góða sem fréttaritari Skessuhorns fékk að hafa á höfðinu að viðtali loknu.
Kynningarfundur á uppbyggingu
LazyTown í Borgarnesi
Heildarframlög jöfnunarsjóðs