Skessuhorn - 13.10.2021, Blaðsíða 19
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 2021
Skessuhorn hefur af og til á liðn-
um vikum og misserum sagt frá
umfangsmiklum framkvæmd-
um sem hófust í vor við innra-
Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit,
sem jafnframt er einn elsti kirkju-
staður landsins. Viðhaldi núver-
andi kirkju hefur í árafjöld verið
ábótavant vegna fjárskorts. Fram-
kvæmdir eru nú vel á veg komn-
ar en hafa þó stöðvast vegna fjár-
skorts.
Forsaga málsins er að marg-
ir núverandi og fyrrverandi íbú-
ar þessarar litlu sóknar, sem nú
tilheyrir garða- og Saurbæjar-
prestakalli og er þjónað frá Akra-
nesi, höfðu miklar áhyggjur af
stöðu mála og því að þessi 130 ára
gamla kirkja væri að grotna niður.
Eftir áeggjan nokkurra aðila tóku
fermingarsystkini sem fermdust i
kirkjunni árið 1963 málin í sínar
hendur og hófu söfnun og síðan
framkvæmdir við kirkjuna. Heild-
arkostnaðaráætlun er upp á 32,5
milljónir króna en af því er áætl-
aður ófyrirséður kostnaður um 6,5
millj. kr. Nú þegar er allt múrverk
frágengið og faglega að því staðið
en það er aðeins einn hluti verk-
efnisins. Viðgerð á þaki hófst um
mánaðamótin júní/júlí, talsverðar
fúaskemmdir komu þar í ljós en
burðarvirki var í lagi. Þessari við-
gerð ásamt viðgerð á turni er nú
lokið og húsið tekið stakkaskipt-
um.
Þessu til viðbótar er stefnt að
því að skipta um glugga og úti-
hurð ásamt tilheyrandi umbún-
aði en að auki þarf að koma ýmsu
í viðunandi horf sem látið hefur á
sjá og er afleiðing viðhaldsleysis.
Þá er stefnt að því að endurbæta
hitakerfi kirkjunnar, þ.e. að fjar-
lægja orkufreka rafhitun og setja
upp varmadælubúnað.
Að sögn Kristjáns S. gunn-
arssonar, eins aðstandenda fram-
kvæmdanna, hafa kostnaðaráætl-
anir staðist og einstaklingar og
fyrirtæki verið rausnarleg í fram-
lögum sínum, en betur má ef duga
skal. Þá bendir Kristján á að ein-
stakar gjafir og framlög til kirkju-
félaga eru frádráttarbær frá tekjum
af atvinnurekstri samkvæmt tekju-
skattslögum, fari gjöf eða framlag
ekki yfir 0,75% af árstekjum.
Kirkja var fyrst á Innra-
Hólmi árið 1096
innri-Hólmur er stórbýli, kirkju-
staður og fornt höfuðból, skammt
frá gangnamunna Hvalfjarðar-
ganga. Þar bjó fyrstur Þormóður
„hinn gamli“ Bresason er nam land
á Akranesi ásamt bróður sínum,
Katli Bresasyni. Þeir bræður komu
frá Írlandi og voru kristnir en lík-
legt þykir að Þormóður hafi byggt
kirkju á staðnum. Vitað er fyrir víst
að kirkja var á innra-Hólmi þegar
tíundarlög voru sett árið 1096 og í
Landnámabók (Sturlubók) er m.a.
greint frá því að kirkja hafi verið
byggð á leiði Ásólfs alskiks Konáls-
sonar, landnáms- og einsetumanns,
sem lagður var til grafar að innra-
Hólmi. Er innri-Hólmur því einn
elsti kirkjustaður landsins.
Sú kirkja sem stendur nú að
innra-Hólmi var reist árið 1891 og
var hún vígð 27. mars 1892. Árni
Þorvaldsson, bóndi og hreppstjóri
á innra-Hólmi, var helsti hvata-
maður kirkjubyggingarinnar. Yfir-
smiður við byggingu kirkjunnar var
Jón Jónsson Mýrdal, smiður, bóndi
og skáld. Jón var hinn mesti hag-
leiksmaður og ber útskurður inni
í kirkjunni glöggt vitni um hand-
bragð hans.
Í upphafi var kirkjan timbur-
klædd en árið 1952 voru útveggir
hennar notaðir sem steypumót og
steyptir 17 cm þykkir veggir utan
á hana. Á sama tíma voru boga-
dregnir gluggar smíðaðir í kirkjuna
og forkirkja byggð. Árið 1963 fóru
fram miklar endurbætur á kirkj-
unni, veggir voru klæddir sand-
blásnum panelborðum, gólf endur-
nýjað og nýir bekkir smíðaðir en
lítið hefur verið um endurbætur á
kirkjunni síðan þá. Hafa útveggir
kirkjunnar smám saman sprung-
ið og gefið sig með árunum og
hefur kirkjan látið verulega á sjá.
innra-Hólmskirkja var friðuð hinn
1. janúar 1990 samkvæmt aldurs-
ákvæði þjóðminjalaga.
Betur má ef duga skal
Árgangur 1949 fermdist í kirkjunni
árið 1963, rétt eftir að áðurnefnd-
um viðgerðum á kirkjunni lauk. Ár-
gangurinn hefur haft veg og vanda
af því að koma framkvæmdum af
stað á ný og hefur umsjón með
verkinu. Söfnuður kirkjunnar hef-
ur jafnframt staðið fyrir ýmiskon-
ar fjáröflun fyrir framkvæmdunum.
Með þeirri óeigingjörnu vinnu og
gjöfum frá velunnurum kirkjunn-
ar hefur tekist að safna fjármagni
til að komast vel af stað með fram-
kvæmdirnar. En betur má ef duga
skal og vantar enn nokkuð upp á til
að ljúka viðgerðum á kirkjunni.
Þeim sem styrkja vilja verk-
efnið er bent á söfnunarreikn-
ing kirkjunnar: 0326-22-1873 Kt.
660169-5129.
frg
Kristján S. Gunnarsson, einn aðstandenda framkvæmda við Innra-Hólmskirkju.
Framkvæmdir við Innra-Hólms-
kirkju að stöðvast vegna fjárskorts
Kirkjan að Innri-Hólmi. OPNUNARTÍMI
ALLA VIRKA DAGA 13-18
HELGAR 11-15
Hafþór Blær
Hafþór Blær
HANDKLÆÐI MEÐ NAFNI
3.790,- 2.990,-
SPORTPOKI MEÐ MERKINGU
SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI
WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS
SmáprentSmáprent
STÆRÐ: 70 X 140 CM STÆRÐ: 29 X 26 CM
Þegar þú verslar bleika
vöru í verslun okkar
styrkir þú
Krabbameinsfélag
Akraness í þágu þeirra
sem greinast með
krabbamein og
fjölskyldna þeirra.
2.990,-
Opnunartími:
Alla virka daga
13-18
Allar helgar
11-15SMIÐJUTORGI, SMIÐJUVÖLLUM 32 Á AKRANESI
EINNIG TIL Í VEFVERSLUN WWW.SMAPRENT.IS
DÓTARÍ STYRKIR KRABBAMEINSFÉLAG AKRANESS Í OKTÓBER