Skessuhorn - 08.12.2021, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 202114
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Akraneskaupstaður yfir jól og áramót
Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga:
Akranesviti
24.-26. desember
Lokað
31. desember til 1. janúar
Lokað
Bæjarskrifstofa
24.-26. desember
Lokað
31. desember
Lokað
Bókasafn Akraness
24.-25. desember
Lokað
31. desember - 1. janúar
Lokað
Íþróttamiðstöðin
og Jaðarsbakkalaug
23. desember
06:00-18:00
24. desember
08:00-11:00
25.-26. desember
Lokað
31. desember
08:00-11:00
1. janúar
Lokað
Bjarnalaug
Lokað frá 19. desember til
og með 3. janúar 2022.
Íþróttahús Vesturgötu
23. desember
07:00-15:00
24.-26. desember
Lokað
31. desember-2. janúar
Lokað
Guðlaug
24.-26. desember
Lokað
31. desember
Lokað
1. janúar
Lokað
Ásýnd Akranesbæjar hefur tek-
ið miklum breytingum undanfarin
misseri. Ný hús spretta upp hrað-
ar en auga á festir. Fyrirtækið Bestla
ehf. sem lauk nýlega við byggingu
fjölbýlishússins við Dalbraut 4
byggir um þessari mundir tvö önn-
ur fjölbýlishús; Þjóðbraut 3 og 5.
Sigurbjörn Hallsson er staðarstjóri
Bestlu á Akranesi en hann hóf störf
hjá Bestlu í október síðastliðn-
um. Sigurbjörn er Borgnesingur
að uppruna en áður starfaði hann
meðal annars hjá verkfræðistofunni
Eflu og Norðuráli. Blaðamaður
Skessuhorns heimsótti Sigurbjörn í
byrjun vikunnar á vinnustað hans á
Akranesi.
Að sögn Sigurbjörns er Bestla
með 534 íbúðir á ýmsum stigum,
í byggingu eða í hönnunarferli,
bæði á Akranesi, í Kópavogi og í
Reykjavík og nemur heildarflatar-
mál þessara íbúða rúmum 80 þús-
und fermetrum. Til samanburð-
ar má nefna að Smáralind er rúm-
lega 62 þúsund fermetrar. Í Kárs-
nesi í Kópavogi byggir fyrirtæk-
ið nú alls um 330 íbúðir í þrett-
án fjölbýlishúsum við Bakkabraut
og Hafnarbraut og í Borgartúni í
Reykjavík eru 98 íbúðir í byggingu.
Íbúðirnar við Þjóðbraut á Akranesi
eru 76 talsins.
Þessu til viðbótar er hús
að Garðabraut 1 á Akranesi í
hönnunarferli. Upphaflegar hug-
myndir voru um að reisa á þeirri
lóð tvö fjölbýlishús, fimm hæða
og sjö hæða með 30 íbúðum en að
sögn Sigurbjörns er verið að skoða
möguleika á einu fjölbýlishúsi í stað
tveggja. Segir Sigurbjörn ástæð-
una vera að mun hentugra og hag-
kvæmara er að hafa bara eitt hús á
lóðinni með góðum bílakjallara.
Húsið að Dalbraut 4 sem nýlok-
ið er við er fimm hæða einingahús
með 26 íbúðum og 26 bílastæðum
í upphituðum bílakjallara. Þá er á
jarðhæðinni þjónustumiðstöð fyr-
ir eldri borgara á 1. hæð sem tel-
ur 1.328 m2 auk þess sem þar
eru bæjarskrifstofur Akurnesinga
tímabundið til húsa. Fjölbýlishúsin
að Þjóðbraut nr. 3-5 eru tvö fimm
hæða staðsteypt fjölbýlishús, með
alls 76 íbúðum eins og áður seg-
ir. Fjölbýlishúsin eru einangruð að
utan og álkædd. Íbúðirnar í húsinu
eru 2ja til 4ra herbergja, frá 60 m2
til 125 m2.
Uppsteypu á Þjóðbraut 3 er að
verða lokið en íbúðir þar verða til-
búnar til afhendingar næsta sumar.
Verið að leggja lokahönd á seinni
steypu botnplötunnar að Þjóð-
braut 5 og verður hafist handa við
að steypa upp húsið í byrjun næsta
árs. Gert er ráð fyrir að uppsteypu
Þjóðbrautar 5 verði að mestu lokið
í október 2022.
Konurnar eru
afbragðs starfsmenn
Að sögn Sigurbjörns ganga fram-
kvæmdir vel og hefur fyrirtækið
meðal annars verið að ráða til sín
mannskap á Akranesi. „Við erum
að leita að fólki og höfum verið í
sambandi við Vinnumálastofnun
ásamt því að auglýsa,“ segir hann.
Ánægjulegt er að Bestla hefur ver-
ið að ráða til sín iðnaðarkonur og
hvetur fyrirtækið til þess að kon-
ur jafnt sem karlar sæki um. „Þær
konur sem við höfum í vinnu eru
afar öflugar. Við réðum nýlega
konu sem er húsasmiður sem hef-
ur störf í desember, hjá okkur var
dönsk kona, múrari að mennt, í
fjórtán mánuði og er nýfarin heim.
Þá er ein kona frá Litháen að vinna
í klæðningarvinnu hjá undirverk-
taka fyrir okkur. Ef ég væri með tíu
konur í vinnu þá væri ég ánægð-
ur maður, þær eru afbragðs starfs-
menn.“ Þá segir Sigurbjörn að
þetta hafi góð áhrif á starfsandann.
„Strákarnir vilja ekki gefa stelpun-
um neitt eftir í vinnu, ekki frekar
en að stelpurnar vilji gefa strákun-
um neitt eftir heldur.“
Sigurbjörn segir fyrirtækið
Bestlu komið til að vera á Akranesi
og það sé verið að skoða fleiri verk-
efni innan Akraness. „Það eru því
mörg spennandi verkefni framund-
an á Akranesi,“ segir Sigurbjörn.
frg / Ljósm. frg og aðsendar.
Bestla er með 534 íbúðir og 80 þúsund fermetra í pípunum
Tölvugerð mynd af Þjóðbraut 3 og 5.
Sigurbjörn Hallsson, staðarstjóri Bestlu ehf. á Akranesi við Þjóðbraut 3.
Sigurbjörn staðarstjóri á skrifstofu sinni.
Byggingasvæði Bestlu á Dalbrautarreit.