Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 202124
Í tilkynningu frá Matvælastofnun
kemur fram að rannsókn á meint-
um alvarlegum brotum á velferð
blóðtökuhryssna heldur áfram hjá
stofnuninni. Mast vinnur jafnframt
að endurskoðun á þeim skilyrð-
um sem sett eru fyrir starfseminni
og eftirliti með henni. Þá segir að
ábendingar um alvarleg dýravel-
ferðarbrot séu ávallt teknar mjög
alvarlega hjá stofnuninni.
„Matvælastofnun þakkar dýra-
velferðarsamtökunum AWF/STB
fyrir veitta aðstoð við rannsókn-
ina og hefur opið bréf, sem sam-
tökin sendu frá sér 1. desember, til
hliðsjónar. Stofnunin tekur undir
með samtökunum að mikilvægt sé
að rannsóknin beinist ekki síst að
kerfisbundnum veikleikum í starf-
seminni sem geta komið niður á
velferð hryssnanna. Samkvæmt
lögum um velferð dýra fer Mat-
vælastofnun með rannsókn dýra-
velferðarmála hér á landi. Að rann-
sókn lokinni getur stofnunin lok-
ið málum með stjórnvaldssektum
eða vísað málunum til lögreglu.
Matvælastofnun styður að heild-
stæð umræða fari fram um fram-
tíð greinarinnar en telur mikil-
vægt að í þeirri umræðu sé ekki
gripið til skyndiákvarðana. Slík
ákvörðun gæti stefnt velferð allt
að 5000 hryssna í voða, m.a. væri
þá hætt við að fjöldi hryssna kæmi
til slátrunar seint á meðgöngu.“ Að
endingu vekur stofnunin athygli á
að allar ábendingar er varða vel-
ferð dýra er hægt að senda Mat-
vælastofnun í gegnum ábendingar-
kerfi á vefsíðu hennar, www.mast.
is.
mm
Á vef Covid.is hafa verið birtar nýj-
ar tölfræðiupplýsingar sem sýna
annars vegar samanburð á fjórt-
án daga nýgengi smita eftir aldurs-
hópum og bóluefnastöðu og hins
vegar nýgengi innlagna á sjúkrahús
eftir stöðu bólusetningar. Sam-
kvæmt tölfræðinni er nýgengi
sjúkrahússinnlagna nú 0,5 (af 100
þúsund íbúum) hjá fullorðnum sem
hafa fengið örvunarbólusetningu,
það er um tólf sinnum hærra (5,9)
hjá þeim sem eru fullbólusettir og
68 sinnum hærra (34,0) hjá þeim
sem ekki eru fullbólusettir en hjá
þeim sem fengið hafa örvunarbólu-
setningu.
mm
Hafin er smíði á fyrsta nýja björg-
unarskipi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar hjá KewaTec í Finn-
landi. Smíðin hófst formlega með
svokallaðri kjöllagningu sem fram
fór í skipasmíðastöð fyrir helgi.
Nú er því formlega hafin smíði á
fyrstu þremur björgunarskipun-
um en markmið Landsbjargar er
að endurnýja öll þrettán björgunar-
skip sín og verður því áfram unnið
að frekari fjármögnun verkefnisins.
Hvert og eitt af nýjum björgunar-
skipum Landsbjargar kostar 285
milljónir króna. Með samkomu-
lagi sem gert var í janúar síðastliðn-
um milli ríkis og Landsbjargar var
tryggt að ríkið kostar allt að helm-
ing skipanna. Slysavarnafélagið
Landsbjörg hafði safnað í nýsmíða-
sjóð í nokkurn tíma sem tryggði
enn frekar getu þess til að ráðast í
þetta verkefni, sem er stærsta eins-
taka fjárfestingaverkefni félagsins í
sögu þess.
Áætluð afhending fyrsta skipsins
er á goslokahátíð í Vestmannaeyj-
um í júní 2022 þar sem fyrsta skipið
verður með heimahöfn. Áætluð af-
hending á öðru skipinu er fyrir árs-
lok 2022 á Siglufirði. Smíði á þriðja
skipinu hefst svo í janúar 2023 og
afhending á því verður eftir mitt
það ár.
Sjóvá styrkir
Nýverið var tilkynnt að Lands-
björgu barst styrkur frá Sjóvá að
upphæð 142,5 milljónum króna til
smíða á fyrstu þremur björgunar-
skipunum sem búið að er ganga
frá kaupum á. „Fáheyrt er að svo
rausnarlegar gjafir berist til sjálf-
boðaliðasamtaka og eru þetta sér-
staklega ánægjulegar fréttir fyr-
ir endurnýjun allra þrettán björg-
unarskipa félagsins, en Landsbjörg
og Sjóvá hafa um áratugaskeið átt
í farsælu samstarfi,“ segir í tilkynn-
ingu frá Landsbjörgu.
mm
Árlegt jólaútvarp Nemendafélags
Grunnskóla Borgarness, Útvarp
Óðal, fór í loftið á mánudaginn og
standa útsendingar yfir í fimm daga
frá klukkan 10-23, en þeim lýkur
klukkan 18.30 á föstudaginn. Fyrir
marga er Útvarp Óðal órjúfanlegur
hluti af jólahátíðinni og er dagskrá-
in í ár ekki af verri endanum.
„Fyrir marga er Útvarp Óðal
fastur liður í jólahefðinni,“ segir
Kristín Valgarðsdóttir, deildarstjóri
í Grunnskólanum í Borgarnesi
í samtali við Skessuhorn. Hún
heldur utan um skipulag útvarps-
ins fimmta árið í röð ásamt stjórn
nemendafélagsins. „Krakkarn-
ir hafa lagt mjög mikið á sig til að
gera framúrskarandi gott útvarps-
efni,“ segir Kristín og bætir við að
öllum nemendum skólans gefist
kostur á að koma fram í útvarpinu.
„Nemendur í unglingadeild hafa
unnið handrit í íslenskutímum og
fer síðan meirihluti þeirra í beina
útsendingu með þáttinn en þeir
hafa val um það. Þættir nemenda á
yngsta- og miðstigi eru ekki sendir
út beint og fóru upptökur á þeim
fram fyrir tveimur vikum,“ segir
Kristín. „Það verða mjög fjölbreytt-
ir þættir þar sem meðal annars má
finna þætti um tónlist, íþróttir, jólin
og um allt á milli himins og jarðar
og svo er auglýsingapakkinn alltaf
spennandi. Krakkarnir búa sjálfir
til auglýsingarnar, syngja, tala inn
á þær og leika jafnvel. Það kem-
ur alltaf skemmtilega út og ég vil
þakka fyrirtækjum í Borgarbyggð
sem hafa stutt vel við okkur,“ seg-
ir Kristín. Nemendur sjá einnig
um fréttaflutning og í hádeginu er
tekinn púlsinn á bæjarlífinu, flutt-
ar fréttir dagsins ásamt íþróttaf-
réttum. Hápunktur fréttastofunn-
ar er síðan þátturinn „Bæjarmálin
í beinni“ sem er sendur út klukkan
13 í hádeginu síðasta útsendingar-
daginn og enginn má missa af.
Útvarpsstjóri er Valborg Elva
Bragadóttir, formaður nemendafé-
lagsins, og tæknimenn nemenda-
félagsins sem sjá um allt gangi
snurðulaust fyrir sig. Hægt er að
hlusta á Útvarp Óðal í útvarpstækj-
um á FM 101,3 eða á netinu í gegn-
um spilarinn.is.
vaks
Matvælastofnun
viðurkennir kerfislæga
galla í eftirliti með
blóðtökuhryssum
Hér má sjá skjáskot af myndriti frá 1. desember með þessari tölfræði af vefnum Covid.is. Þar eru upplýsingarnar uppfærðar
reglulega og hægt að fylgjast með þróuninni.
Ný tölfræði sýnir ótvírætt
gagnsemi bólusetningar
Hér er svipmynd úr Útvarpi Óðals frá
árinu 2008. Þessi „börn“ eru nú orðin
fullorðin. Ljósm. úr safni.
Útvarp Óðal er í loftinu þessa vikuna
Viðbragðstími björgunarskipa mun skerpast töluvert með meiri ganghraða og
bæta þannig öryggi sjófarenda töluvert.
Smíði hafin á fyrstu björgunarskipum Landsbjargar
Teikning af nýju björgunarskipi.