Skessuhorn - 19.01.2022, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2022 17
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Laugardaginn 19. febrúar 2022 verður kosið um sameiningu sveitarfélaga
í þrennum kosningum sem hér segir;
Blönduósbær og Húnavatnshreppur
Eyja- og Miklaholtshreppur og Snæfellsbær
Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi
fer hún fram á eftirtöldum stöðum:
Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 09:30 til 13:00.
Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá
Alla virka daga kl. 12:00 til 13:00.
Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00 til 15.00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4
Alla virka daga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30.
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Stykkishólmi, 14. janúar 2022
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
RARIK ohf. | www.rarik.is/atvinna
Sérfræðingur
í stjórnstöð
Nánari upplýsingar veita Gísli Þór Ólafsson, deildarstjóri
stjórnstöðvar og starfsmannastjóri í síma 528 9000.
Umsóknafrestur er til 24. janúar og skal skila umsókn
með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna.
Helstu verkefni:
• Stýring og vöktun veitukerfa RARIK
• Aðgerðastjórnun
• Skipulagning rofs og vinnu
• Samskipti við viðskiptavini
• Upplýsingagjöf til innri og ytri aðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rafmagnsiðn-, -tækni- eða -verkfræði
• Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur
• Jákvæðni og lipurð í samskiptum
• Góð tölvukunnátta
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
Óskað er eftir sérfræðingum í stjórnstöð fyrirtækisins. Stjórnstöð er ný deild og munu sérfræðingar deildarinnar taka þátt í mótun
hennar ásamt innleiðingu nýrra kerfa sem notuð verða við úrlausn þeirra spennandi verkefna sem framundan eru. Þegar deildin tekur
til starfa þá mun hún hafa umsjón með vöktun og stýringu veitukerfa RARIK ásamt öðrum verkefnum tengdum rauntímastjórnun og
skipulagningu rofs og vinnu. Starfið er unnið á dag-, kvöld- og bakvöktum. Staðsetning sérfræðinga stjórnstöðvarinnar getur verið á
fleiri en einni starfsstöð fyrirtækisins. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og
annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200 á 20 starfsstöðvum sem eru dreifðar vítt og breitt um landið.
STARF Í BOÐI HJÁ RARIK
Eins og komið hefur fram í frétt-
um hefur Lögreglan á Suðurnesj-
um ákveðið að loka Facebook síðu
embættisins. Ástæðan er sögð sú
að persónuvernd sé embættinu
kappsmál og lögð áherslu á að öll
meðferð persónuupplýsinga sé
í samræmi við kröfur persónu-
verndarlaga. Persónuvernd hafði
gert athugasemd-
ir við notkun lög-
reglu hér á landi
á samfélagsmiðl-
inum Facebook
og þá sérstak-
lega í tengslum
við móttöku upp-
lýsinga í gegnum
miðilinn. „Vegna
þessa hefur LSS
tekið þá ákvörðun
að hætta að nota
Facebook í sam-
skiptum sínum
við almenning og loka síðunni.“
Samkvæmt upplýsingum frá Ás-
mundi Kristni Ásmundssyni að-
stoðaryfirlögregluþjóns hjá Lög-
reglunni á Vesturlandi er ekki ráð-
gert að loka FB síðu embættisins,
líkt og Suðurnesjamenn hafa gert.
„Við munum ekki gera breytingar
hjá okkur að óbreyttu,“ segir Ás-
mundur í samtali við Skessuhorn.
„Við höfum um 16 þúsund fylgj-
endur að síðu okkar, eða svipað
marga og allir skráðir íbúar í um-
dæminu eru. Af því leiðir að síð-
an er mjög skilvirk og góð leið fyr-
ir Lögregluna á Vesturlandi að ná
til fólks. Einnig er hægt að fá upp-
lýsingar um okkur á logreglan.is.
Við höfum m.a. ráðfært okkur við
netsérfræðinga hjá embætti Lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og niðurstaðan er sú að ekki er
ástæða til að loka FB síðu embætt-
isins. Við fylgjumst hins vegar mjög
vel með athugasemdum sem skrif-
aðar eru á síðuna, meðal annars
við færslur, og tökum hiklaust út
ummæli sem ekki eiga við. Meðan
ráðuneytið gerir ekki athugasemd
við þetta fyrirkomulag munum
við því áfram halda FB síðu Lög-
reglunnar á Vesturlandi opinni,“
segir Ásmundur. mm
Ekki fyrirhugað að loka FB síðu
Lögreglunnar á Vesturlandi
FB síðu Lögreglunnar á Suðurnesjum var lokað í síðustu
viku.
Hluti lögregluliðsins á Vesturlandi.