Skessuhorn - 19.01.2022, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2022 19
Sumarstörf hjá Elkem
Við leitum eftir öflugum liðsmönnum!
Að vinna á metnaðarfullum, framsæknum og faglegum vinnustað?
Að framleiða hágæðaafurðir?
Að vinna hjá alþjóðlegu tæknifyrirtæki?
Að leggja þitt að mörkum til að minnka kolefnisfótspor mannkyns?
Að vinna á stað sem leggur áherslu á öryggi, gæði, jafnrétti og
heilindi?
Hæfniviðmið:
Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri og vera með
ökuréttindi.
Vilji og geta til að vinna í krefjandi aðstæðum.
Góð öryggisvitund og jákvætt viðhorf.
Sýna frumkvæði í verki og sjálfstæð vinnubrögð.
Öguð og nákvæm vinnubrögð ásamt stundvísi.
Góður samstarfsmaður sem sýnir virðingu.
Sótt er um rafrænt á ráðningarvef Elkem
á www.elkem.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar.
Um Elkem
Elkem Ísland er hluti af Elkem AS sem er alþjóðlegt fyrirtæki. Elkem er leiðandi á
heimsvísu í framleiðslu á kísilmálmi. Afurðir okkar eru m.a. notaðar til að hjálpa rafbílum
að komast lengra, bætir orkunýtingu í raftækjum sem gegnir mikilvægu hlutverki í að
draga úr kolefnisfótspori heimsins. Í starfi okkar leggjum við höfuð áherslu á
fagmennsku, framsækni, jafnrétti og sátt við umhverfið.
Langar þig:
Elkem auglýsir eftir öflugu og hæfileikaríku fólki í sumarstörf sem eru ýmist vaktavinnu störf eða dagvinnu störf.
Elkem er skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður og hentar öllum, óháð kyni. Vakin er athygli á því að Elkem er vímuefnalaus vinnustaður.
Öðlast vinnuvélaréttindi í samstarfi við Elkem.
Rútuferðir frá Akranesi, til og frá vinnu.
Fríðindi í starfi:
Í tilefni bóndadagsins bjóðum við
15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HERRAVÖRUM
(fatnaður, ilm- og snyrtivörur)
Gildir fimmtudag, föstudag og laugardag
BÓNDADAGURINN
ÚTSALAN
í fullum gangi
Rétt fyrir klukkan hálf fimm að-
fararnótt þriðjudags var Slökkvilið
Borgarbyggðar kallað út, en eldur
var þá laus í nýbyggingu við Brák-
arsund 3 í Borgarnesi. Eldurinn
var að líkindum búinn að krauma
í nokkurn tíma áður en Slökkvi-
lið var kallað út. Þetta staðfestir
Heiðar Örn Jónsson varaslökkvi-
liðsstjóri í samtali við Skessuhorn.
Eldur var í öllum íbúðum hússins
á 1. og 2. hæð, mestur á efri hæð-
inni. Skamman tíma tók að slökkva
eld á neðri hæð en slökkvistarf á
efri hæð og í þaki tók um eina til
eina og hálfa klukkustund, að sögn
Heiðars. Eftir það tók við töluverð
vinna við að slökkva í glæðum en
ekki var búið að ljúka því fyrr en
um klukkan tíu í gærmorgun.
Að sögn Heiðars gekk slökkvi-
starf mjög vel miðað við aðstæður
en töluvert rok var á svæðinu um
nóttina og framan af morgni. Þar
sem tókst að halda rúðum heilum
þeim megin sem vindurinn stóð á
húsið var hægt að koma í veg fyr-
ir að blástur kæmist inn í húsið en
aukið súrefni hefði magnað upp
eldinn. Húsið er mikið skemmt af
eldi, hita, reyk og vatni.
Að slökkvistarfi loknu tók lög-
regla við rannsókn á vettvangi.
mm
Slökkvilið var enn að störfum um klukkan átta í gærmorgun. Ljósm. glh.
Eldur kom upp í timburhúsi í byggingu
Eldur kviknaði í timburhúsi í Borgarnesi aðfararnótt þriðjudags. Ljósm. Heiðar Örn Jónsson.