Skessuhorn - 19.01.2022, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202226
Í janúarmánuði ár hvert um heim
allan fer fram vitundarvakningin og
verkefnið Veganuary, eða Vegan-
úar eins og það kallast hérlendis,
og er á vegum Samtaka grænkera
á Íslandi síðan árið 2016. Eins og
nafnið gefur til kynna er verið að
skeyta saman tveimur orðum, janú-
ar og vegan, svo úr verði Veganúar.
Í heilan mánuð er verið að kynna
veganisma og fólk almennt hvatt
til að nýta þennan tíma til að máta
sig við vegan lífstílinn. En hvað er
vegan eða veganismi gætu sumir
spurt sig?
„Í stuttu máli mætti svara því
að allir þeir sem eru vegan leit-
ast við að útiloka og forðast, eftir
fremsta megni, hagnýtingu og of-
beldi gagnvart dýrum, hvort sem
það á við fæðu, fatnað, skemmtun
eða aðra neyslu, eins og það er út-
skýrt á heimasíðu Samtaka græn-
kera á Íslandi,“ segir Guðrún Vala
Elísdóttir í Borgarnesi. Tvö ár eru
liðin síðan Guðrún Vala kyngdi
síðasta kjötbitanum og segir hún
ástæðuna fyrir því að hafa gerst
vegan hafi fyrst og fremst verið
vegna heilsufarsástæðna. „Ég hafði
dregið mjög mikið úr kjötáti, var
löngu hætt að borða unna kjötvöru
og svínakjöt, síðan kjúkling og svo
koll af kolli. Ég borðaði samt alltaf
fisk. En fyrir tveimur árum breytti
ég alveg yfir og gerðist vegan,“
segir Guðrún Vala við blaðamann
Skessuhorns.
Gæti ekki hugsað sér að
fara til baka
Guðrún Vala starfar sem náms-
og starfsráðgjafi og verkefnastjóri
hjá Símenntunarmiðstöð Vestur-
lands. Hún segir það oft stremb-
ið að vera vegan í litlu bæjarfélagi
á borð við Borgarnes. „Það mætti
bjóða upp á meira úrval af vegan-
réttum á veitingastöðum og fjöl-
breyttara vöruúrval í kjörbúðun-
um, til þess að mataræðið verði
ekki einhæft. Heimsbyggðin
stefnir í þessa átt, að mínu mati,
líklega verða ekki allir vegan
á minni lífstíð, en við stefnum
þangað, í átt að veganisma,“ seg-
ir Guðrún Vala hreinskilin. Sjálf
er hún alin upp í sveit í Dölunum
og snemma kennt að borða kjöt
og drekka mjólk eins og flest-
ir Íslendingar í þá daga. „Það er
kannski ekki beint algengt að ein-
hver á mínum aldrei breyti allt í
einu yfir í vegan, sérstaklega þar
sem ég er alin upp í sveit. Mér
þótti mjólk alltaf vond og kjöt fór
ekki vel í mig. Ég finn allavega
mikinn mun á heilsunni eftir að
ég breytti yfir í vegan. Maginn,
ristillinn og heilsan heilt yfir, mér
líður betur og ég gæti ekki hugs-
að mér að fara til baka,“ bætir hún
við ánægð með ákvörðun sína.
Eldfim umræða
Að vera vegan vekur upp spurn-
ingar um hefðir, hátíðarmat og þess
háttar. Þetta getur verið eldfim um-
ræða inn á kaffistofum almennt,
kjöt eða vegan? Sjálf segir Guðrún
Vala upplifa sig í minnihluta þegar
kemur að þessari umræðu og finnst
stundum skorta á skilningi í hennar
garð. „Ég hef oft fengið spurningar
eins og „bíddu, ertu ennþá vegan,“
eða, „ertu ekki að fara hætta þessari
vitleysu?“ Eins hef ég verið í að-
stæðum þar sem maður jafnvel
hreinlega gleymist, verandi kannski
eini einstaklingurinn í hópi sem er
vegan þegar farið er út að borða svo
dæmi sé tekið,“ rifjar Guðrún Vala
upp. „Það er reyndar alltaf hollt
að upplifa sig í minnihlutahópi, þá
fer maður ekki að taka hlutum sem
sjálfsögðum,“ segir Guðrún Vala að
endingu.
Guðrún Vala heldur úti Face-
book hópi sem heitir Vegan Vestur-
land fyrir veganista á svæðinu og er
notaður til að deila uppskriftum og
upplýsingum tengdum veganisma.
Áhugasamir eru hvattir til að ganga
í hópinn.
glh
Fréttamaðurinn og rannsóknar-
blaðamaðurinn Helgi Seljan hef-
ur gengið til liðs við Stundina
og látið af störfum hjá Ríkissjón-
varpinu. Helgi hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir störf sín hér-
lendis og erlendis, meðal annars
þrenn blaðamannaverðlaun Ís-
lands og níu tilnefningar til sömu
verðlauna. Feril sinn í fjölmiðl-
um hóf Helgi á héraðsfréttablað-
inu Austurglugganum árið 2002
en fór þaðan á DV, Talstöðina og
svo fréttastofu Stöðvar 2, áður
en hann gekk til liðs við Kastljós
RÚV árið 2006, þar sem hann
starfaði allt þar til fréttaskýringa-
þátturinn Kveikur varð til árið
2017. Helgi hefur tekið þátt í og
leitt rannsóknir og umfjallanir
um nokkur af stærstu fréttamál-
um síðustu ára, meðal annarra um
Panamaskjölin og Samherjaskjöl-
in í samvinnu við Stundina.
Aðrar breytingar
á ritstjórn
Samhliða breytingunum stígur
Jón Trausti Reynisson úr stóli rit-
stjóra og verður eingöngu fram-
kvæmdastjóri Útgáfufélagsins
Stundarinnar og blaðamaður á rit-
stjórn Stundarinnar. Frá stofn-
un Stundarinnar í janúar 2015
hafa ritstjórar verið tveir, en Ingi-
björg Dögg Kjartansdóttir verður
framvegis ein aðalritstjóri. Meðal
annarra blaðamanna á Stundinni
eru Aðalsteinn Kjartansson, Alma
Mjöll Ólafsdóttir, Freyr Rögn-
valdsson, Ingi Freyr Vilhjálmsson
og Margrét Marteinsdóttir.
Útgáfufélagið Stundin ehf. er í
dreifðu eignarhaldi með ákvæð-
um um valddreifingu hluthafa inn-
bundna í samþykktum félagsins
og ræður enginn einn eigandi yfir
meira en 12% eignarhlut. mm
Í liðinni viku var opnaður hjóla-
brettagarður í íþróttahúsinu á Hell-
issandi, en frá því var greint á Face-
book síðu Snæfellsbæjar. Hjóla-
brettagarðurinn var hannaður og
settur upp af Sk8roots Project en
það er verkefni sem miðar að því
að kynna kosti brettaíþrótta fyr-
ir börnum og fullorðnum. Verk-
efnið er samstarfs Snæfellsbæjar
og Umf. Víkings/Reynis og stuðl-
ar að auknum fjölbreytileika þeirra
íþróttagreina sem stendur til boða
í sveitarfélaginu. Strákarnir sem
standa að verkefninu heita Pétur,
Hugo og Stefán. Þeir hafa unnið að
því að setja aðstöðuna upp síðustu
vikur og fengið góða hjálp úr sam-
félaginu, meðal annars hafa þeir
fengið efnivið, málningu, skrúfur
og ýmislegt fleira frá fyrirtækjum
og einstaklingum í Snæfellsbæ.
Fyrst um sinn verður opið hús
í íþróttahúsinu og allir velkomnir
á ákveðnum tímum en þegar fram
líða stundir ætla þeir félagar að
byrja með skipulagðar æfingar fyr-
ir börn og einstaklinga sem búa við
fötlun. Brettagarðurinn opnaði eins
og áður sagði í vikunni sem leið
og sló í gegn hjá þeim sem komu
og prófuðu. Íþróttahúsið á Hell-
issandi hefur ekki verið í notkun
síðustu tvö ár og því fengið nýtt líf
með tilkomu hjólabrettagarðsins.
Ljóst er að þar verður mikið fjör á
næstu misserum því hjólabretti eru
skemmtileg íþrótt og fyrir þá sem
vilja prófa nýja spennandi íþrótta-
grein er hér um spennandi tækifæri
að ræða.
vaks/ Ljósm. FB Snæfellsbæjar.
Guðrún Vala Elísdóttir tileinkaði sér vegan lífsstíl.
Guðrún Vala um veganisma:
„Hollt að upplifa sig í minnihlutahóp“
Pétur, Hugo og Stefán voru ánægðir með verkefnið.
Nýr hjólabrettagarður í
íþróttahúsinu á Hellissandi
Það var mikið fjör í hjólabrettagarðinum.
Helgi Seljan í starf
rannsóknarritstjóra
Stundarinnar