Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 18
Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún m.a. fram á
eftirtöldum stöðum:
– Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra,
Þverá, alla virka daga kl. 12:00 til 13:00.
– Snæfellsbæ - Ráðhús Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4,
virka daga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30,
föstudaga til 15:00.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis.
Einstaklingar í sóttkví eða einangrun er bent á að hafa
samband við Sýslumanninn á Vesturlandi en nánari upplýs-
ingar um opnunartíma skrifstofa má finna á syslumenn.is.
Kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna
sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að greiða
atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði
á stofnun. Umsókn um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi,
afhendist Sýslumanninum á Vesturlandi eigi síðar en kl. 16
fjórum dögum fyrir kjördag. Frekari upplýsingar má finna á
syslumenn.is
Upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
Tengil inn á fundinn og nánari upplýsingar má finna á
vefsíðunni snaefellingar.is. Fundurinn hefst kl. 20.30 og
áætlað að honum ljúki kl. 22.00
Hægt er að fylgjast með og taka þátt í hvaða snjalltæki
sem er. Besta upplifunin fæst ef fylgst er með í tölvu.
Gott er að setja Zoom-hugbúnaðinn upp á þá tölvu eða
snjalltæki sem á að nota tímanlega áður en fundurinn
hefst. Einnig er hægt að nota vefviðmót fyrir Zoom en
virkni þess er takmarkaðri.
Íbúar eru hvattir til þess að mæta á fundinn og kynna
sér álit samstarfsnefndar og kynningarefni á vefsíðunni
snaefellingar.is
Kynningarfundur 27. janúar
Í ljósi samkomutakmarkana fer kynningarfundur fram
rafrænt á Zoom.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin, en hægt er að kjósa utan kjörfundar
til og með 18. febrúar.
Kosið verður um sameininguna 19. febrúar.
Fylgist með auglýsingum og fréttum á miðlum
sveitarfélaganna og vefsíðunni snaefellingur.is.
Kjósum
öll
Já eða nei ?