Skessuhorn


Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 1
arionbanki.is Engin lántökugjöld á 100% rafmagnsbílum Kynntu þér græna bílafjármögnun Arion banka. FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 5. tbl. 25. árg. 2. febrúar 2022 - kr. 950 í lausasölu Ert þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is Tilboð gildir út janúar 2022 Gos úr vél frá CCEP fylgir með HOT DOG & A CAN OF COCA COLA 499 kr. & Coke í dós PYLSAÞau Ragnheiður Sigurðardóttir og Kristján Guðmundsson í Grundarfirði hafa undanfarna daga þurft að sæta einangrun en þau nældu sér í pest sem kallast Covid-19. Þá undanþágu má gera við slíkar aðstæður að fara má daglega í gönguferð til að fylla lungun af hreinu lofti. Nóg var af slíku lofti í vestan hríðarveðri sem gekk yfir landið á sunnudaginn. Því má bæta við að þau segjast bæði við góða heilsu og biðja að heilsa fólkinu sem þau mega ekki hitta. Ljósm. tfk. Í janúar hafa hundruðir jarðskjálfta orðið á afmörkuðu svæði á Þór­ eyjartungum í ofanverðum Borgar­ firði. Stærstu skjálftarnir til þessa voru 3,3 stig að kvöldi þriðjudags í síðustu viku en síðan varð ann­ ar stærri, upp á 3,7 stig, skömmu eftir miðnætti aðfararnótt þriðju­ dagsins 1. febrúar. Skjálftarnir eiga allir upptök sín á fjalllendinu ofan við Flókadal og Lundarreykjadal en næstu bæir við upptökin eru m.a. Oddsstaðir í Lundarreykjadal í um níu kílómetra fjarlægð, Hrísar í Flókadal, Augastaðir í Hálsasveit og Steindórsstaðir í Reykholtsdal í um eða yfir tíu kílómetra fjarlægð. Á þessum bæjum hefur fólk fund­ ið vel fyrir skjálftunum og húsdýr orðið óróleg. Að sögn Einars Bessa Gests­ sonar, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru þetta svo­ kallaðir innflekaskjálftar þar sem þeir eru utan flekaskila og fleka­ móta og ekki inni á eldvirku svæði. „Skjálftarnir verða líklega vegna einhverra spennubreytinga inni á flekanum. Flekamótin eru þarna austan við þetta svæði og hugsan­ legt er að einhverjar hreyfingar séu á flekamótunum sem hafa þessi áhrif inn á flekann. En eins og Páll Einarsson hefur bent á er þetta mjög verðugt rannsókn­ arefni,“ segir Einar Bessi í sam­ tali við Skessuhorn. „Í Borgarfirði hafa komið svona hrinur af inn­ flekaskjálftum í gegnum árin og á síðustu öld voru fimm svona hrin­ ur. Sú stærsta var árið 1974 en þá varð skjálfti þarna í nágrenninu upp á 5,5 að stærð, oftast kallaður Borgar fjarðarskjálftinn,“ segir Ein­ ar Bessi og vísar þar til skjálftans sem átti upptök sín í Síðufjallinu. Jarðskjálftinn í fyrrinótt fannst víða en Veðurstofu Íslands hafa borist nokkrir tugir tilkynninga frá fólki sem fann skjálftann í Borgar­ firði, á Akranesi og á höfuðborgar­ svæðinu. Jörð heldur áfram að skjálfa og í gær, þegar Skessuhorn var sent í prentun, höfðu orðið tugir smærri skjálfta á svæðinu. mm/arg Jörð heldur áfram að skjálfa í uppsveitum Borgarfjarðar Hér er búið að merkja á Google kort upptök skjálftanna og fjarlægð á næstu bæi. Graf: Stefán Magnússon. Þú átt gott skilið

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.