Skessuhorn


Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 202210 Línubáturinn Gísli Súrsson GK, sem rær með beitningarvél um borð, fékk trollstykki upp með línunni þegar skipverjar voru að draga 15 mílur norður af Rifi um klukkan 13 á laugardaginn. Þetta hafði þær afleiðingar að trollstykk­ ið fór í skrúfu bátsins og því ekki hægt að draga línuna eða hreyfa bátinn. Skipsverjar báðu því um að­ stoð frá Björgunarsveitinni Lífs­ björgu. Björgunarbáturinn Björg frá Rifi fór til aðstoðar og gekk heimferðin vel. Á Breiðafirði var veðrið sæmilegt; kaldi og smá öldu­ gangur. Komið var til hafnar í Rifi klukkan fimm síðdegis og var skor­ ið úr skrúfunni og haldið aftur til veiða um átta leytið. Hreinn Jónsson skipstjóri á Gísla Súrssyni sagði í spjalli við fréttaritara að þeir hafi aðeins náð að draga um helming línunn­ ar en fram að því hafi verið mjög góður afli. „Við erum með sjö og hálft tonn, en náðum einungis að draga helminginn af línunni áður en trollstykkið slæddist upp. Þetta er allt bolta þorskur sem við erum með,“ sagði Hreinn þegar búið var að landa á laugardagskvöldið. Vel gekk að hreinsa úr skrúf­ unni og fóru skipverjar út að nýju og drógu seinni hluta línunnar. Lönduðu þeir í Ólafsvík á sunnu­ dagsmorgun og reyndist aflinn 14,6 tonn. af Netabáturinn Brynjólfur VE kom til hafnar í Ólafsvík á tólfta tíman­ um á mánudaginn til að fá kafara til þess að skera net úr hliðarskrúfu bátsins. Skipsverjar voru rétt að byrja að draga netin um morgun­ inn í sínum fyrsta túr á Breiða­ firðinum og voru aðeins búnir að draga fjögur net þegar þeir fengu í hliðarskrúfuna. Þeir gátu siglt til Ólafsvíkur þar sem Víðir Haralds­ son kafari skar úr skrúfu bátsins. Það er fremur óvanalegt að togari sé á netaveiðum, en áhöfn­ in á Brynjólfi VE hefur undanfarin ár verið á netum á Breiðafirði með góðum árangri. Hafa þeir landað afla sínum í Grundarfirði en bát­ urinn er í eigu Vinnslustöðvarinn­ ar í Vestmannaeyjum. Aflinn er slægður um borð og síðan er fisk­ urinn sendur með bílum í Herjólf sem síðan fer með fiskinn til Vest­ mannaeyja þar sem fiskurinn er fullunninn til útflutnings. af Á níunda tímanum síðasta sunnu­ dagsmorgun kom Guðrún Þor­ kelsdóttir SU­211 frá Eskifirði með fullfermi af loðnu til bræðslu á Akranesi. Þetta er sjötta loðnu­ löndun úr Guðrúnu á þessari ver­ tíð, en áður hafði skipið landað á Vopnafirði, Eskifirði og Akranesi. Guðrún Þorkelsdóttir hafði áður aflað 7.418 tonna á vertíðinni sem nú verða um 9000 því fulllestað tekur skipið um 1600 tonn. Veður var stillt þegar siglt var síðasta spölinn til hafnar. Strax var hafist handa við að dæla aflan­ um frá borði. Meðfylgjandi mynd­ ir tók Guðmundur St. Valdimars­ son bátsmaður á Freyju og sendi Skessuhorni. mm Línubáturinn Signý HU er með minni bátum sem róa frá Snæfells­ bæ, en gerði heldur betur góð­ an róður síðastliðinn miðvikudag. Gísli Bjarnason skipstjóri rær með tengdaföður sínum Guðmundi Gunnlaugssyni. Þeir fóru út að morgni með 36 bala og komu að landi upp úr klukkan fjögur til þess að millilanda, eins og Gísli orðaði það. „Við drógum fyrst 18 bala og þá var lestin orðin kjaftfull og því ekkert annað í stöðunni en að fara í land. Við skildum 18 bala eftir en fórum út strax eftir löndun til þess að draga restina,“ sagði Gísli. Hann bætir því við að á þessa 18 bala hafi verið níu tonn. „Ég átti ekki til orð, þetta var bara blóðbað,“ sagði Gísli skælbrosandi eftir að hafa landað í seinna skiptið. „Við vorum með í þessum róðri hátt í 17 tonn sem gera um 450 kíló á bala og aflaverð­ mætið er um sjö milljónir,“ sagði Gísli og var að vonum ánægður með afrakstur dagsins. Gísli sagði enn fremur að þrátt fyrir vægast sagt mikla ótíð í vet­ ur hafi gengið hratt á kvóta bátsins en þó hefur góður afli verið þegar hægt er að róa. „Við erum allavega hættir í þessum mánuði til að spara kvótann,“ sagði Gísli þegar rætt var við hann 26. janúar síðastliðinn, „en byrjum aftur í febrúar,“ sagði Gísli að endingu. af Landað úr bátnum í kafaldsbyl á sunnudagsmorgni. Fengu í skrúfuna þegar hálfnað var að draga línuna Björg dregur Gísla Súrsson til hafnar síðdegis á laugardaginn. Guðrún Þorkelsdóttir kom með loðnu á Akranes Víðir Haraldsson kafari er að undirbúa sig til þess að skera úr hliðarskrúfu Brynjólfs. Fékk net í hliðarskrúfuna Togarinn Brynjólfur kemur til hafnar í Ólafsvík. Signý að koma að landi úr fyrri róðri dagsins. Þurftu að millilanda eftir átján bala Gísli Bjarnason sáttur með daginn og er hér að hífa körin á bryggjuna. „Þú verður að mynda mig nýrakaðan og í nýja bláa gallanum,“ kallaði Gísli á ljósmyndarann. Tengdapabbinn Guðmundur Gunn- laugsson að landa.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.