Skessuhorn


Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 20226 Á röngum tíma í göngunum HVALFJ.SVEIT: Seinni part síðasta miðvikudags var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um ökumann á hjólagröfu í Hval­ fjarðargöngunum. Ökumað­ ur var stöðvaður á Akrafjall­ vegi og rætt var við hann því vinnuvélar mega aðeins fara á ákveðnum tíma sólarhrings í gegnum göngin. Þá vantaði skráningarmerki á vinnuvél­ ina en komnar eru nýjar regl­ ur þar sem eigendur vinnuvéla eiga að setja skráningarmerki á tækin en það hefur ekki þurft hingað til. -vaks Ekki sáttur við grímuskylduna BORGARNES: Hringt var í Neyðarlínuna seinni part fimmtudags af starfsmanni úr verslun Nettó út af viðskipta­ vini sem virti ekki grímu­ skyldu og var sá ekki sáttur með sóttvarnareglur. Honum var kynnt ef hann ætlaði að versla þá þyrfti hann að bera grímu og á hann von á kæru og sekt vegna athæfisins vegna brots á sóttvarnalögum. Þá sýndi hann ógnandi hegðun að sögn starfsmanna. -vaks Missti stjórn á bílnum HVALFJ.SV: Hringt var í Neyðarlínuna á laugardags­ kvöldið og tilkynnt um um­ ferðaróhapp á Vesturlandsvegi á móts við Ölver. Snjór og krapi var á veginum þegar kerra aftan í bíl byrjaði að skrika og sveiflast til á veg­ inum með þeim afleiðing­ um að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum. Endaði hann á vegriði og varð tjón á því og einnig á bíl og kerru. Farþegi í bílnum kenndi sér eymsla í baki og fór viðkomandi á Heilsugæslustöðina í Borg­ arnesi til skoðunar. Dráttar­ bíll kom á staðinn og fjarlægði bílinn af vettvangi en hann var óökuhæfur eftir áreksturinn. -vaks Könnuðu kannabislykt AKRANES: Tilkynnt var um kannabislykt á stigagangi í fjölbýlishúsi síðasta sunnu­ dag og fór lögregla á staðinn og bankaði upp á. Íbúar viður­ kenndu kannabisneyslu og þá fannst efni í poka í íbúð­ inni sem verður rannsakað. Húsráðendur mega eiga von á kæru fyrir vörslu fíkniefna og þá var barnaverndarnefnd kölluð til vegna þess að börn voru á heimilinu. -vaks Strætó bilaði HVALFJ.SV: Loka þurfti Vesturlandsvegi við Fiskilæk stutta stund síðasta miðviku­ dag þegar strætó á leið norð­ ur bilaði. Ekki var hægt að fá viðgerðarmann fyrr en daginn eftir og því þurfti að koma strætónum fyrir við útskot svo ekki stafaði hætta af honum. -vaks Vatnsveitustyrk- ir fyrir lögbýli LANDIÐ: Matvælastofnun opnar fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum 1. febrúar. Það er í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 180/2016. Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á heimasíðu Mat­ vælastofnunar. Umsóknar­ frestur er til og með 28. febrú­ ar nk. Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostn­ aði við vatnsveitu til heimil­ is­ og búsþarfa, þ.e. kostnað­ ar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dæl­ ur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Enn fremur telst til stofnkostnað­ ar þóknun fyrir úttekt á fram­ kvæmdinni. „Vakin er athygli á því að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári en luku ekki fram­ kvæmdum þurfa að sækja um aftur,“ segir í tilkynningu. -mm/ Ljósm. Verkís Skotið á skilti BORGARHR: Á sunnu­ daginn var tilkynnt um að skotið hafi verið sex skotum með 243 kal. riffli, að sögn kunnugra, í gegnum skilti í bústaðabyggð við Galtar­ holt. Ekki er vitað hver var að verki en skiltið sneri í átt að þjóðvegi eitt og er hand­ ónýtt. Mikill snjór var þenn­ an dag og ekki hægt að finna kúlur eða skothylki á vett­ vangi. Á skiltinu stóð „skot­ veiði bönnuð“ og því líklegt að viðkomandi hafi ekki ver­ ið alls sáttur við bannið. Málið er grafalvarlegt, að sögn lög­ reglu, og er í rannsókn. -vaks Í nýjustu dagbókarfærslu sveitar­ stjóra Borgarbyggðar, Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, er farið yfir helstu mál sem eru á dagskrá hjá sveitarfélaginu í upphafi árs. Þar kemur meðal annars fram yfirfær­ sla Borgarbrautar í Borgarnesi frá Vegagerðinni til sveitarfélagsins. Um er að ræða vegarkaflann frá gatnamótunum, á móts við Vega­ gerðina og niður að Egilsgötu. Vegalög voru sett á Alþingi árið 2007 þar sem ákveðið var að rúm­ lega 70 kílómetrar þjóðvega í þétt­ býli falla ekki lengur undir þjóð­ vegakerfið og urðu sveitarfélaga­ vegir. Frá og með síðustu áramót­ um tók Borgarbyggð við veghaldi, viðhaldi og þjónustu við veginn og mun nú sveitarfélagið alfarið sjá til dæmis um snjómokstur sem fram til þessa hefur verið í um­ sjón Vegagerðarinnar. Hins vegar er Vegagerðinni skylt að skila veginum í góðu ásigkomulagi til sveitarfélagsins og verður því ráð­ ist í miklar endurbætur á Borgar­ brautinni af Vegagerðinni, Veit­ um og Borgarbyggð á þessu ári. „Miklar endurbætur verða gerðar á þessum kafla Borgarbrautarinn­ ar, frá undirlagi og lögnum að yfir­ borði og gangstéttum að hluta, en áætlað er að framkvæmdinni ljúki fyrir árslok 2022,“ segir Þórdís Sif sveitarstjóri í samtali við Skessu­ horn. Borgarbraut 14 fær nýtt hlutverk Önnur verkefni framundan hjá Borgarbyggð eru meðal annars að undirrita kaupsamning vegna sölu Borgarbyggðar á Borgarbraut 14, sem er fyrrum ráðhús bæjarins og þar áður hús Sparisjóðs Mýra­ sýslu. Í byrjun síðasta árs fluttist meirihluti starfsemi ráðhússins úr húsinu og að Bjarnarbraut 8 þegar ástandsskoðun á fasteigninni hafði leitt í ljós að mikill rakavandi væri til staðar. Ljóst var að endurbæt­ ur og lagfæringar á því yrðu mjög kostnaðarsamar og var því ákveðið að fjárfesta í nýju húsnæði fyrir ráðhús. Sveitarfélagið festi kaup á húsi Arion banka við Digranes­ götu síðasta sumar og fékk það formlega afhent í byrjun septem­ ber. Áætlað er að breyta Borgar­ braut 14 í íbúðarhúsnæði en hús­ ið er 1.053 fermetrar að stærð. Auk þess hefur samningur vegna lóðarinnar Borgarbrautar 55 ver­ ið undirritaður og hefjast fram­ kvæmdir þar í vor. Byggt verður á lóðinni fjölbýlishús sem verður allt að þrjár hæðir. glh Gatnamótin í Borgarnesi við Þjóðveg 1. Borgarbyggð hefur nú tekið yfir umsjón götunnar sem er ekki lengur þjóðvegur í þéttbýli. Borgarbraut komin í umsjón Borgarbyggðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.