Læknablaðið - 01.04.2022, Síða 4
168 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
175
Jóhanna Gunnarsdóttir, Jónína Rún Ragnarsdóttir,
Matthildur Sigurðardóttir, Kristjana Einarsdóttir
Lækkandi tíðni þungburafæðinga á Íslandi – skoðuð með hliðsjón af
breyttu verklagi um framköllun fæðinga
Fjöldi þungbura sem fæddist á rannsóknartímabilinu var 5110, en af þeim voru einungis
313 sem áttu mæður með sykursýkigreiningu. Flestir þungburar fæddust við eða eftir
áætlaðan fæðingardag við 40 vikur. Hlutfall þungbura af öllum fæðingum jókst með hækk-
andi aldri mæðra og var hærra meðal fjölbyrja en frumbyrja. Mæður af erlendum uppruna
voru í minni hættu að fæða þungbura miðað við mæður sem fæddust á Íslandi.
182
Aðalsteinn Dalmann Gylfason, Agnar Bjarnason, Kristján Orri Helgason,
Kristján Godsk Rögnvaldsson, Brynja Ármannsdóttir, Ingibjörg J. Guðmundsdóttir,
Magnús Gottfreðsson
Sóttvarna- og samfélagsaðgerðir vegna heimsfaraldurs COVID-19
og greiningar á hjartadrepi og algengum sýkingum árið 2020
Markmið viðbragða hérlendis hefur verið að lágmarka skaða en á sama tíma leitast við
að gæta meðalhófs í takmörkunum með hliðsjón af stöðu faraldursins hverju sinn. Þannig
helst árstíðasveifla inflúensu í hendur við árstíðasveiflu lungnabólgu, bráðs hjartadreps
og heilaáfalla.
189
Bryndís Benediktsdóttir, Tinna Karen Árnadóttir, Þórarinn Gíslason, Jordan Cunningham,
Björg Þorleifsdóttir
Er svefn Íslendinga að styttast? - Yfirlitsgrein um svefnlengd og svefnvenjur
Fullyrt er að svefnlengd sé að styttast og stefni heilsu Íslendinga í voða. Fjárhagslegir
hagsmunir og sölumennska lita umræðu um heilsu og þar er svefn engin undantekning.
Hér er leitast við að varpa ljósi á vísindalegan bakgrunn þessara staðhæfinga.
F R Æ Ð I G R E I N A R
4. tölublað · 108. árgangur · 2022
171
Ástríður Stefánsdóttir
Læknaeiðurinn á
stríðstímum
Áríðandi er að taka vel á móti
þeim hópi sem og öllum þeim
sem hingað leita á flótta und-
an stríði. Nú reynir á að lækn-
ar þekki köllun sína, og leggi
sín lóð á vogarskálarnar til að
græða sár þeirra sem sviptir
hafa verið heimili og heilsu.
L E I Ð A R A R
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur
staðfest fjölmargar árásir Rússa á
heilbrigðisstofnanir í landinu öllu:
spítala, fæðingardeildir, barnaspít-
ala, elliheimili. Stríðið mun hafa
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
heilsu úkraínsku þjóðarinnar næstu
áratugi þar sem hún er hrakin að
heiman út í óvissuna. Nágranna-
þjóðirnar munu líka líða fyrir þetta.
Yfirvöld í Maríupól segja 90% af
íbúðarhúsum borgarinnar eyðilögð
og þeir íbúar sem eftir eru hafast
við í kjöllurum. Gjöreyðilegging
blasir við, bæði á fólki og fénaði og
eignum. Mynd Pierre Crom/Getty
Images sýnir bugaða manneskju
sem er á flótta úr heimalandi sínu.
Á FORSÍÐU
STRÍÐ Í ÚKRAÍNU
173
Dóra Lúðvíksdóttir
Sef ég nóg?
Rómverski meistarinn
Quintilianus (35 e.kr.) vissi
að góður nætursvefn gæti
styrkt minnið. Hann taldi
einnig að orsök svefnleysis
(insomnia) væri í raun ekki
skortur á svefni heldur of
miklar áhyggjur.
Geyr Garmur mjög
fyr Gnipahelli,
festur mun slitna
en freki renna.
Fjöld veit hún fræða,
fram sé eg lengra
um ragnarök
römm sigtíva.
Bræður munu berjast
og að bönum verðast,
munu systrungar
sifjum spilla;
hart er í heimi,
hórdómur mikill,
skeggöld, skálmöld,
skildir eru klofnir,
vindöld, vargöld,
áður veröld steypist,
mun engi maður
öðrum þyrma.
Heimsmyndin hefur skekkst, og vert að minnast
orða völvunnar í Völuspá: