Læknablaðið - 01.04.2022, Page 20
184 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
Niðurstöður
Lungnabólga
Aldursstaðlað nýgengishlutfall (SIR) var 0,69 (CI 0,64-0,75) og því
31% færri slíkar innlagnir árið 2020 en árabilið 2016-2019, að teknu
tilliti til breyttrar aldurssamsetningar (tafla I). Nýgengi innlagna
með lungnabólgu var lægra en í meðalári frá janúar og fram til
maí 2020 en hækkaði svo aftur yfir sumarmánuðina í júní og júlí
þegar nýgengi var svipað og í meðalári (mynd 2). Nýgengi lækk-
aði svo aftur seinni hluta ársins, frá ágúst til desember. Nýgengi
lungnabólgu fylgir hækkandi aldri, en það var lægra árið 2020 í
öllum aldurshópum samanborið við árin á undan (mynd 2). Sam-
kvæmt ICD-10 greiningarkóðum var sýkill í langflestum tilvikum
ótilgreindur en í þeim tilfellum þar sem hægt var að bera kennsl á
sýkingarvald var lungnabólgan oftast vegna baktería.
Brátt hjartadrep
Aldursstaðlað nýgengishlutfall árið 2020 var 0,82 (CI 0,75-0,90)
og því voru um 18% færri útskriftargreiningar bráðs hjartadreps
en hefði mátt búast við (tafla I). Nýgengi innlagna vegna bráðs
hjartadreps var svipað og í meðalári fyrri hluta ársins 2020 með
leitni í fækkun frá ágúst og út árið og hæsta hlutfall tilfella á
hverja 1000 íbúa var í aldurshópnum yfir 90 ára (mynd 3). Fjöldi
hjartaþræðinga vegna bráðs kransæðaheilkennis (acute coronary
syndrome), það er bráðs hjartadreps eða óstöðugrar hjartaöngvar,
lækkaði að sama skapi árið 2020. Aldursstaðlað nýgengishlutfall
var 0,77 (0,71-0,83) og voru aðgerðirnar 665, en hefði mátt búast
við 866 ef miðað er við árin á undan og tillit tekið til breyttrar
aldurssamsetningar (tafla I).
Enterobacterales-blóðsýkingar
Aldursstaðlað nýgengishlutfall var 1,15 (CI 1,04-1,28), það er fjölg-
un jákvæðra sýna um 15% árið 2020 miðað við árabilið 2016-2019 í
þýði með sömu aldurssamsetningu (tafla I). Fjöldi jákvæðra blóð-
sýkinga var umtalsvert meiri í mars og október árið 2020 miðað
við meðalárið. Að öðru leyti var fjöldinn svipaður en með leitni
í hækkun. Aldursbundið nýgengi var hæst árið 2020, en þessi
hækkun var bundin við aldurshópinn 80-89 ára (mynd 4).
Chlamydia trachomatis
Innsendum sýnum til greiningar á Chlamydia trachomatis fækkaði
um 14,8% árið 2020 borið saman við meðaltal áranna 2016-2019
(15.788 borið saman við 18.522, p<0,001) og 16,3% fækkun varð í
heildarfjölda jákvæðra sýna (1582 borið saman við 1890, p<0,001).
Heildarfjöldi sýna og jákvæðra sýna lækkaði í byrjun árs 2020 og
var lægstur í apríl (mynd 5). Hlutfall jákvæðra sýna hélst svipað
árið 2020 (10%) samanborið við meðaltal áranna 2016-2019 (10,2%).
HIV-greiningar
Fjöldi HIV-prófa árið 2020 dróst saman um 10,9% borið saman
við meðaltal áranna 2016-2019 (12.045, borið saman við 13.522,
p=<0,001). Mesti samdráttur í framkvæmd prófa var í apríl, eða um
32,7% frá meðaltali áranna 2016-2019. Fjöldi þeirra sem greindust
með HIV árið 2020 var 31 sem er sambærilegt við meðaltal áranna
2016-2019 (31,3 jákvæðar greiningar). Þá var hlutfall jákvæðra 0,26
á hver 100 próf sem voru tekin árið 2020 samanborið við 0,23 á hver
100 próf að meðaltali árin 2016-2019.
Tafla I. Aldursstaðlað nýgengishlutfall. Samanburður á raungildi og væntigildi innlagna, bráðra kransæðaþræðinga og
blóðsýkinga með Enterobacterales árið 2020 miðað við aldursstaðlað nýgengi meðaltals áranna 2016-2019 með 95%
öryggisbil (CI). SIR = Standardized Incidence Ratio, staðlað nýgengishlutfall.
Sjúkdómur Raungildi 2020 Væntigildi 2020 SIR CI (95%)
Lungnabólga - innlagnir 622 898 0,69 0,64-0,75
Brátt hjartadrep - innlagnir 443 539 0,82 0,75-0,90
Hjartaþræðingar vegna bráðs kransæðaheilkennis 665 866 0,77 0,71-0,83
Blóðsýkingar af völdum Enterobacterales 335 291 1,15 1,04-1,28
Mynd 2. Samanburður á fjölda innlagna lungnabólgu (efri mynd) og aldursbundið
nýgengi (neðri mynd) árið 2020 borið saman við meðaltal 20162019. Á súluriti á efri
mynd er fjöldi smita SARSCoV2 í hverjum mánuði árið 2020. Lóðréttar línur sýna
95% öryggisbil.
jan feb mar apr maí jún júl ágú sep okt nóv des
Aldursbundið nýgengi
Lungnabólga
Fj
öl
di
/1
00
0
íb
úa
In
nl
ag
ni
r
Fj
öl
do
C
O
VI
D
s
m
ita
Aldurshópar