Læknablaðið - 01.04.2022, Qupperneq 25
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 189
Y F I R L I T S G R E I N
Inngangur
Góður svefn, reglubundin hreyfing og hollt mataræði hafa verið
taldir mikilvægir áhrifaþættir góðrar heilsu. Áhugi almennings
á svefni hefur aukist undanfarin ár samfara mikilli fjölmiðla-
umræðu. Á sama tíma hefur komið á markað einfaldur mælibún-
aður fyrir almenning, sem ætlað er að skrá og mæla svefn. Kjarni
þessarar umræðu er að svefn sé að styttast, ekki síst hjá börnum
og unglingum, sem stefni heilsu og framtíð þeirra í voða. Þessi
umræða er þó ekki ný af nálinni. Frá upphafi síðustu aldar hefur
því verið haldið fram að aukinn hraði í þjóðfélaginu og ný tækni
(raflýsing, útvarp, sjónvarp, myndbönd eða skjánotkun) valdi því
að svefn sé að styttast. En þegar rýnt er í rannsóknir með safn-
greiningu (metaanalysis) kemur í ljós að svo er ekki, að minnsta
kosti ekki meðal fullorðinna.1,2 Niðurstöður fjölmargra rannsókna
leiða í ljós tengsl á milli stutts svefns og ýmissa líffræðilegra þátta,
til dæmis aukinnar fæðuneyslu, offitu, breytinga á hormónafram-
leiðslu,3 en einnig minnis og athygli.4,5 Oft er fullyrt að þessi tengsl
við stuttan svefn séu sönnun orsakasambands við neikvæða
heilsufarsþætti eins og offitu, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma,
þunglyndis, minnkuð afköst í vinnu og aukna slysahættu. Þessari
umræðu fylgir gjarnan hvatning til almennings um að sofa leng-
ur.6-9
Bryndís Benediktsdóttir1,2
læknir
Tinna Karen Árnadóttir3
læknir
Þórarinn Gíslason1,2 læknir
Jordan Cunningham1 læknir
Björg Þorleifsdóttir1 lífeðlisfræðingur
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2svefndeild Landspítala, 3Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Fyrirspurnum svarar Bryndís Benediktsdóttir, brynben@hi.is
Á G R I P
Svefn er sífellt oftar til umfjöllunar hér á landi. Áberandi eru fullyrðingar um
að svefnlengd sé að styttast og stefni heilsu Íslendinga í voða. Fjárhagslegir
hagsmunir og sölumennska lita umræðu um heilsu og þar er svefn engin
undantekning. Í þessari yfirlitsgrein verður leitast við að varpa ljósi á
vísindalegan bakgrunn þessara staðhæfinga.
Alþjóðlegar yfirlitsrannsóknir sem byggja á safngreiningu (meta-analysis)
sýna að lítil breyting hefur orðið á svefnlengd hjá fullorðnum síðustu 100
árin, en svefn barna hefur styst, en ekki hefur verið sýnt fram á að þau sofi
ekki nóg. Ekki hefur verið sýnt að svefn fullorðinna hafi styst. Svefnlengd
íslenskra unglinga og fullorðinna er sú sama ef hún er borin saman við
sambærilega hópa erlendis. Mæliaðferðir sem liggja til grundvallar þegar
rannsóknir á svefnlengd eru bornar saman eru breytilegar og geta leitt
til ólíkrar niðurstöðu. Þó sýnt hafi verið fram á tengsl svefnlengdar við
neikvæða heilsufarsþætti, líkamlega og andlega, hefur ekki hefur verið
sýnt fram á orsakasamband og nauðsynlegt er að horfa til fleiri þátta
varðandi þau tengsl. Svefntímar Íslendinga eru hins vegar seinni en hjá
fólki í nálægum löndum, líklega vegna hnattstöðu Íslands og misræmis milli
náttúrulegrar sólarhæðar og staðartíma.
Er svefn Íslendinga að styttast?
Yfirlitsgrein um svefnlengd og svefnvenjur
Lítið hefur farið fyrir umræðu um vísindalegan bakgrunn
og stöðu þekkingar, þótt oftsinnis hafi verið bent á að enda þótt
tengsl finnist milli margvíslegra þátta í lífinu jafngildir það ekki
orsakasambandi.10 Í þessari yfirlitsgrein er fjallað um hvað fjöl-
þjóðlegar rannsóknir hafa sýnt varðandi ofangreindar staðhæf-
ingar og niðurstöður íslenskra rannsókna skoðaðar sérstaklega.
Leitað var heimilda bæði á PubMed og Google Scholar með
leitarorðum sem tengjast svefnlengd og svefntímum. Einungis var
stuðst við greinar í ritrýndum fagtímaritum.
Svefnlengd og svefntímar
Svefnlengd er skilgreind sem sá afmarkaði tími sem raunveru-
lega er sofið. Jafnan er eingöngu átt við nætursvefn, en svefni að
deginum er stundum bætt við. Svefnlengd er einstaklingsbundin,
og breytist með aldri. Hún er flókið samspil erfða, umhverfis og
hegðunar. Hugtakið svefntími vísar til þess tíma sólarhringsins
þegar sofið er, hvenær er farið að sofa og hvenær er vaknað.
Tveir meginþættir hafa áhrif á svefn mannsins: svefnþörf og
dægurklukka (líkamsklukka). Svefnþörfin eykst í vöku og dvínar
í svefni (endurspeglar homeostasis). Hún ræðst bæði af lengd vök-