Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2022, Page 36

Læknablaðið - 01.04.2022, Page 36
200 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Breyta styrktarrétti lækna til að grípa fleiri Veikindaréttur lengdur og fæðingarstyrkur lækkaður. Þetta eru dæmi um breytingar sem urðu á Fjölskyldu- og styrktarsjóði lækna nú um áramótin. Formaður sjóðsins segir að brugðist hafi verið við ákalli lækna en einnig breyttri samsetningu læknahópsins „Við viljum með þessu koma til móts við stærri hóp lækna og stór áföll í lífi þeirra. Þetta er tilraun til þess. Svo verðum við að sjá hvernig það reynist,“ segir Gerður Aagot Árnadóttir, nýr formaður FOSL, um breytt styrkjafyrirkomulag sjóðsins sem tók gildi 1. mars síðastliðinn. Ákvörðunin verði rýnd í lok árs og endurmetin ef þörf krefji. „Með breytingunum getur hópur lækna, sem ekki hefur átt möguleika á að sækja í sjóðinn, gert það. Við lengjum veikindagreiðslur um einn mánuð, enda meira um langvinn veikindi í hópnum. Svo grípum við inn í þurfi læknar stærri aðgerðir, eins og tannviðgerðir, maga- ermi og liðskiptaaðgerðir, sem og aðrar nauðsynlegar heilsufarsaðgerðir sem ekki eru greiddar af sjúkratryggingum,“ segir hún. „Með þessu viljum við dreifa styrkj- unum víðar og horfa til þess að hægt sé að rétta oftar hjálparhönd þegar læknar þurfa á því að halda,“ segir hún. Í fyrra fóru 54% greiðslna úr sjóðnum í fæðingarstyrki til lækna, samtals tæp 51 milljón króna. Fyrir áratug nam heildar- um meta það hvernig þessar breytingar reynast en markmiðið er að nýta fjármagn sjóðsins fyrir þá sem þurfa mest á því að halda.“ Læknar sem fá laun samkvæmt kjara- samningi greiða í sjóðinn. „Þeir sem eru sjálfstætt starfandi þurfa að taka ákvörðun um það sjálfir og ganga frá því, vilji þeir eiga rétt til styrkja,“ bendir hún á. Hún hvet- ur lækna til að fara inn á heimasíðu Lækna- félagsins og kynna sér breytingarnar. F R É T T I R Gerður Aagot Árnadóttir, formaður Fjölskyldu­ og styrktarsjóðs lækna, FOSL, segir að brugðist hafi verið við ákalli lækna og reglunum breytt. fjárhæð greiddra fæðingarstyrkja rétt rúmum 14 milljónum króna. „Ungum læknum hefur blessunarlega fjölgað og fæðingarstyrkjunum þar af leið- andi líka. Við ákváðum því að endurskoða reglurnar og gera þær sanngjarnari. Hér áður fékk aðeins annað foreldrið hálfan styrk og hitt heilan ef bæði voru læknar, en nú fá báðir fullan styrk,“ segir hún. Styrkurinn nam áður 520.000 krónum, en er nú 450.000 krónur. „Við viljum sjá hvort þessi breyting sé ekki sanngjarnari fyrir læknahópinn í heild og hvort okkur takist ekki að grípa hvern lækni oftar á starfsævinni með þessum breytingum.“ Gerður segir viðbótarmánuð í veikinda- styrk þarfa breytingu. „Það kemur líka bet- ur til móts við unga fólkið okkar, því það hefur ekki sama veikindarétt og þeir sem eldri eru, lendi það í langvinnum veikind- um eins og krabbameinsmeðferðum.“ Gerður segir að tiltölulega stífar reglur hafi verið um eingreiðslustyrki en nú sé liðkað fyrir fleiri styrkjum. Styrktarsjóður- inn standi ágætlega. „Við höfum svigrúm og förum því inn á nýjar brautir. Við mun- Margrét Gunnlaugsdóttir hæstarétt- arlögmaður hefur verið ráðin lögfræð- ingur hjá Læknafélaginu. Hún hóf störf 1. mars. „Ég er spennt að kynnast læknum og leysa úr málum sem upp geta komið hjá þeim,“ segir Margrét sem útskrifaðist sem lögfræðingur 1992. Hún hóf ferilinn innan ráðuneyta og hjá Tollstjóranum í Reykjavík en hefur unnið sjálfstætt frá 2003. Hún útskrifaðist með LL.M. meistaragráðu í Evrópurétti frá Ludwig Maximilans Universität í München í Þýskalandi árið 2019. „Tíminn í Þýskalandi var afbragðsgóð- ur. Virkilega gaman að kynnast þýsku mannlífi. Ég ákvað að reyna mig í mennta- skólaþýskunni í framhaldsnámi og svo að klára þegar ég sá að tungumálið hamlaði mér ekki.“ Margrét starfar einnig á Lögfræðistofu Reykjavíkur. Hún hefur sérhæft sig á sviði sifja- og erfðaréttar, skaðabótaréttar, rétt- argæslu og eignaréttar. Læknafélagið fær lögfræðing

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.