Læknablaðið - 01.04.2022, Síða 36
200 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Breyta styrktarrétti lækna til
að grípa fleiri
Veikindaréttur lengdur og fæðingarstyrkur lækkaður. Þetta eru dæmi um breytingar sem urðu á
Fjölskyldu- og styrktarsjóði lækna nú um áramótin. Formaður sjóðsins segir að brugðist hafi verið
við ákalli lækna en einnig breyttri samsetningu læknahópsins
„Við viljum með þessu koma til móts við
stærri hóp lækna og stór áföll í lífi þeirra.
Þetta er tilraun til þess. Svo verðum við
að sjá hvernig það reynist,“ segir Gerður
Aagot Árnadóttir, nýr formaður FOSL, um
breytt styrkjafyrirkomulag sjóðsins sem
tók gildi 1. mars síðastliðinn. Ákvörðunin
verði rýnd í lok árs og endurmetin ef þörf
krefji.
„Með breytingunum getur hópur
lækna, sem ekki hefur átt möguleika á
að sækja í sjóðinn, gert það. Við lengjum
veikindagreiðslur um einn mánuð, enda
meira um langvinn veikindi í hópnum.
Svo grípum við inn í þurfi læknar stærri
aðgerðir, eins og tannviðgerðir, maga-
ermi og liðskiptaaðgerðir, sem og aðrar
nauðsynlegar heilsufarsaðgerðir sem ekki
eru greiddar af sjúkratryggingum,“ segir
hún. „Með þessu viljum við dreifa styrkj-
unum víðar og horfa til þess að hægt sé
að rétta oftar hjálparhönd þegar læknar
þurfa á því að halda,“ segir hún.
Í fyrra fóru 54% greiðslna úr sjóðnum
í fæðingarstyrki til lækna, samtals tæp 51
milljón króna. Fyrir áratug nam heildar-
um meta það hvernig þessar breytingar
reynast en markmiðið er að nýta fjármagn
sjóðsins fyrir þá sem þurfa mest á því að
halda.“
Læknar sem fá laun samkvæmt kjara-
samningi greiða í sjóðinn. „Þeir sem eru
sjálfstætt starfandi þurfa að taka ákvörðun
um það sjálfir og ganga frá því, vilji þeir
eiga rétt til styrkja,“ bendir hún á. Hún hvet-
ur lækna til að fara inn á heimasíðu Lækna-
félagsins og kynna sér breytingarnar.
F R É T T I R
Gerður Aagot Árnadóttir, formaður Fjölskyldu og
styrktarsjóðs lækna, FOSL, segir að brugðist hafi verið
við ákalli lækna og reglunum breytt.
fjárhæð greiddra fæðingarstyrkja rétt
rúmum 14 milljónum króna.
„Ungum læknum hefur blessunarlega
fjölgað og fæðingarstyrkjunum þar af leið-
andi líka. Við ákváðum því að endurskoða
reglurnar og gera þær sanngjarnari. Hér
áður fékk aðeins annað foreldrið hálfan
styrk og hitt heilan ef bæði voru læknar,
en nú fá báðir fullan styrk,“ segir hún.
Styrkurinn nam áður 520.000 krónum,
en er nú 450.000 krónur. „Við viljum sjá
hvort þessi breyting sé ekki sanngjarnari
fyrir læknahópinn í heild og hvort okkur
takist ekki að grípa hvern lækni oftar á
starfsævinni með þessum breytingum.“
Gerður segir viðbótarmánuð í veikinda-
styrk þarfa breytingu. „Það kemur líka bet-
ur til móts við unga fólkið okkar, því það
hefur ekki sama veikindarétt og þeir sem
eldri eru, lendi það í langvinnum veikind-
um eins og krabbameinsmeðferðum.“
Gerður segir að tiltölulega stífar reglur
hafi verið um eingreiðslustyrki en nú sé
liðkað fyrir fleiri styrkjum. Styrktarsjóður-
inn standi ágætlega. „Við höfum svigrúm
og förum því inn á nýjar brautir. Við mun-
Margrét Gunnlaugsdóttir hæstarétt-
arlögmaður hefur verið ráðin lögfræð-
ingur hjá Læknafélaginu. Hún hóf störf
1. mars.
„Ég er spennt að kynnast læknum og
leysa úr málum sem upp geta komið hjá
þeim,“ segir Margrét sem útskrifaðist
sem lögfræðingur 1992. Hún hóf ferilinn
innan ráðuneyta og hjá Tollstjóranum
í Reykjavík en hefur unnið sjálfstætt
frá 2003. Hún útskrifaðist með LL.M.
meistaragráðu í Evrópurétti frá Ludwig
Maximilans Universität í München í
Þýskalandi árið 2019.
„Tíminn í Þýskalandi var afbragðsgóð-
ur. Virkilega gaman að kynnast þýsku
mannlífi. Ég ákvað að reyna mig í mennta-
skólaþýskunni í framhaldsnámi og svo að
klára þegar ég sá að tungumálið hamlaði
mér ekki.“
Margrét starfar einnig á Lögfræðistofu
Reykjavíkur. Hún hefur sérhæft sig á sviði
sifja- og erfðaréttar, skaðabótaréttar, rétt-
argæslu og eignaréttar.
Læknafélagið fær lögfræðing