Læknablaðið - 01.04.2022, Side 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 201
F R É T T I R
Forseti Íslands á Læknadögum 2022
„Ég þakka ykkur læknar, sérfræðingar og allt annað starfsfólk í heilbrigðisþjónustu
fyrir ykkar drjúga þátt í að glíma við þær hremmingar sem við lentum í og höfum
glímt við undanfarin misseri,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á
setningarhátíð Læknadaga. Guðni hélt þar tölu ásamt Kristínu Sigurðardóttur,
Sveini Waage, Bjarna Karlssyni presti og Steinunni Þórðardóttur formanni LÍ sem
setti hátíðina. Nærri 500 læknar voru skráðir til leiks á ráðstefnuna að þessu sinni.
Læknadagar voru færðir fram í marsmánuð vegna kórónuveirunnar. Myndir/gag
Steinunn Þórðardóttir, formaður LÍ, segir
ánægjulegt að sjá skjót viðbrögð og sam-
stöðu íslenskra lækna vegna söfnunar
félagsins. Áhrif stríðsins á úkraínska inn-
viði séu skelfileg.
„Við höfum áhyggjur af árásum á heil-
brigðisstofnanir og heilbrigðisstarfsfólk
og að hlutleysi þeirra hafi ekki verið virt,“
segir hún, og að söfnunin muni halda
áfram. „Við ákváðum að senda þessa
myndarlegu fjárhæð strax af stað en höld-
um áfram söfnuninni fyrir þá sem enn
vilja leggja málefninu lið.“
Félag íslenskra heimilislækna ákvað til
að mynda að setja 10% af félagsgjöldum
Læknafélag Íslands lagði tæpar 8 milljónir króna til styrktar Úkraínu og nauðsynlegri heilbrigðisþjón-
ustu þar til Alþjóðafélags lækna, WMA, þann 17. mars. Fjöldi læknafélaga lagði málefninu lið
þessa árs í sjóð LÍ til styrktar læknis-
þjónustu í Úkraínu. „Átökin koma við
okkur og við sjáum svart á hvítu hvernig
heilbrigðiskerfið getur farið á hvolf við
aðstæður sem þessar, einmitt þegar þörfin
er mest,“ segir Margrét Ólafía Tómasdótt-
ir, formaður FÍH.
„Við ákváðum því að stuðla að því
að hægt væri efla þjónustuna á þessum
stríðstímum. Þetta er mikilvægt málefni,“
segir hún og hvetur til frekari aðgerða.
„Fjárstuðningur er eitt en svo þurfum
við líka að taka á móti flóttamönnum
og standa við bakið á þessu stríðshrjáða
fólki.“
Steinunn var í viðtali í Samfélaginu á
Rás 1 þann 11. mars þar sem hún sagði
brugðist við ákalli læknafélags Úkraínu til
Alþjóðasamtaka lækna um hjálpargögn.
„Okkur var skylt að bregðast við þessu
ákalli og ljúft. Kollegum hérna heima
finnst gott að geta stutt félaga sína í þess-
um virkilega erfiðu aðstæðum þarna úti,“
sagði hún þar.
Einstaklingar og fyrirtæki hafi lagt
söfnuninni lið. Stjórn LÍ þakkar félags-
mönnum frábærar undirtektir við þessari
söfnun á heimasíðu sinni.
Læknadagar í Rímu
á málþingi um Louis
Pasteur.
Gestir Læknadaga í Kaldalóni á fyrsta degi.
Kristín Sigurðardóttir, formaður
Fræðslustofnunar.
Læknar hér á landi safna fyrir Úkraínu