Læknablaðið - 01.05.2021, Síða 9
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 225
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Gunnar Guðmundsson
lungnalæknir
Lungnadeild Landspítala og
læknadeild Háskóla Íslands
ggudmund@landspitali.is
Nýr ógnvaldur við heilsu fólks
suðvestanlands eru eitraðar
lofttegundir sem berast frá
eldstöðinni í Fagradalsfjalli
á Reykjanesskaga. Þær geta
valdið aukningu á öndunar-
færaeinkennum og notkun
innöndunarlyfja.
doi 10.17992/lbl.2021.05.633
Föstudagskvöldið 12. mars 2021 hófst eldgos í
Geldingadölum í Fagradalsfjalli nálægt Grindavík.
Aðdragandi var að gosinu með jarðskjálftum og
jarðvísindamenn gátu fylgst með kvikuganginum
verða til og spáð fyrir um staðsetningu gossins af
nákvæmni. Talið er kvikugangurinn dragi kviku frá
djúpum kvikugeymi sem líklega liggur nærri mörk-
um skorpu og möttuls undir Reykjanesskaga.
Frá því að Ísland byggðist hafa orðið fjöldamörg
eldgos á Íslandi.1 Þau hafa leitt til matarskorts, eyði-
leggingar á híbýlum manna, búferlaflutninga, mat-
arskorts, og búfjárfellis vegna eyðileggingar á beitar-
landi og eitrana. Þau hafa einnig valdið sjúkdómum
og slysum sem leitt hafa til dauðsfalla. Eldgos hafa
áhrif á umhverfi sitt með rennsli hrauna, gjóskufalli
og útstreymi kvikugasa.2,3 Kvika er bergbráð með
uppleystum lofttegundum.1 Gasið losnar úr kvik-
unni í gosopi og þegar kvika storknar á yfirborði
og í gasmekki. Helstu gastegundirnar eru vatns-
gufa (H2O), koldíoxíð (CO2) og brennisteinsdíoxíð
(SO2) og yfirleitt er langmest af þeirri fyrstnefndu.
Einnig losnar vetni (H2), brennisteinsvetni (H2S),
kolmónoxíð (CO), og í litlu magni brennisteinn (S2),
metangas (CH4), vetnisklóríð eða saltsýra (HCl) og
vetnisflúoríð eða flúorsýra (HF).
Áhrif þessara lofttegunda á heilsufar manna
eru mismunandi. Íslenskar reglugerðir skilgreina
heilsuverndarmörk og vinnuverndarmörk meng-
andi lofttegunda í andrúmslofti fyrir íbúa Íslands.
Heilsuverndarmörk eru hugsuð fyrir almenning,
bæði börn og fullorðna, sjúka sem heilbrigða. Þeim er
ætlað að vera viðmiðun fyrir hvað telst skaðlegt fyr-
ir einstaklinginn til lengri tíma. Vinnuverndarmörk
eru hæsta leyfilega meðaltalsmengun í andrúms-
lofti starfsmanna, gefið upp fyrir 8 klukkustundir
og einnig fyrir 15 mínútna viðveru. Í náttúruham-
förum eins og eldgosum getur loftmengun farið
langt yfir bæði þessi mörk.1,3
Áhrifum lofttegunda má skipta í tvennt. Í fyrsta
lagi eru lofttegundir sem erta slímhúðir og húð. Í
lágum styrkleika valda þær ertingu í augum og efri
hluta öndunarfæra. Í hærri styrk valda þær ertingu
og bruna í húð og í enn hærri styrk hafa þær áhrif
á neðri hluta öndunarfæra og geta valdið lungna-
bjúg vegna bráðs lungnaskaða. Dæmi um slíkar
lofttegundir eru brennisteinsdíoxíð og brenni-
steinssýra. Í öðru lagi eru lofttegundir sem valda
köfnun vegna áhrifa á flutning súrefnis og frumu-
öndun. Dæmi um þær eru koldíoxíð og kolmónoxíð.
Mesta bráðahættan skapast af lofttegundum sem
eru þyngri en andrúmsloftið og geta því borist með
jörðu og fyllt svæði sem eru lægri, eins dældir og
dali í náttúrunni eða kjallara húsa. Brennisteinsdí-
oxíð og koldíoxíð eru dæmi um slíkar lofttegundir.1
Í eldgosinu í Holuhrauni árið 2015 kom upp mikið
Eldgos og eitraðar lofttegundir
magn brennisteinsdíoxíðs. Nýlega hafa verið birt-
ar greinar um áhrif þess á heilsu manna. Þar kom
fram að aukning varð á komum á heilsugæslu vegna
öndunarfæraeinkenna og meira var leyst út af inn-
öndunarlyfjum.4 Þar kom fram að loftmengun getur
varað lengur en áður var talið, meðal annars vegna
þess að kvikugösin geta verið til staðar lengur en
talið var.5
Embætti landlæknis, Almannavarnir, Veðurstofa
Íslands, Umhverfisstofnun og fleiri aðilar standa
að nákvæmri vöktun eldstöðvanna í Geldingadöl-
um. Þannig hefur mælakerfi Umhverfisstofnunar
sem mælir loftmengun verið stóraukið og upplýs-
ingaflæði frá þeim verið bætt stórlega. Veðurstofa
Íslands uppfærir daglega spá varðandi gasmeng-
un vegna eldgossins við Fagradalsfjall og birtir
spálíkan sem sýnir brennisteinsmengun í byggð
fyrir næstu 72 tíma. Embætti landlæknis fylgist
náið með heilsufari þeirra sem búa næst gosstöðv-
unum og lyfjanotkun þeirra. Gefinn hefur verið út
vandaður bæklingur fyrir almenn-
ing sem nefnist „Hætta á heilsutjóni
vegna loftmengunar vegna eldgosa“
sem útskýrir loftmengun vegna eld-
gosa á greinargóðan hátt. Auk þess
býðst almenningi margskonar önnur
fræðsla.
Kominn er fram nýr ógnvaldur
við heilsu manna á suðvesturhluta Ís-
lands, eitraðar lofttegundir sem ber-
ast frá eldstöðinni í Fagradalsfjalli á
Reykjanesskaga. Vitað er að þær geta
valdið aukningu á öndunarfæra-
einkennum og notkun innöndunarlyfja. Minna er
vitað um langtímaáhrif vegna gasmengunar í lág-
um styrk til lengri tíma og áhrif kvikugasa í mjög
miklum styrk í skamman tíma á langtímaheilsu.
Mikilvægt er að vandaðar vísindarannsóknir fari
fram á áhrifum gasmengunar á heilsu manna svo
að hægt sé að skera úr um áhrif þeirra á heilsu, bæði
til lengri og skemmri tíma. Nauðsynlegt er að slíkar
rannsóknir hefjist sem fyrst.
Heimildir
1. Guðmundsson G, Larsen G. Áhrif eldgosa á heilsufar manna á Íslandi.
Yfirlitsgrein. Læknablaðið. 2016;102: 433-41.
2. Gudmundsson G. Respiratory health effects of volcanic ash with
special reference to Iceland. A review. Clin Respir J 2011; 5: 2-9.
3. Guðmundsson G, Finnbjörnsdóttir RG, Jóhannsson T, et al.
Loftmengun á Íslandi og áhrif hennar á heilsu manna-Yfirlit.
Læknablaðið 2019; 105: 443-52.
4. Carlsen HK, Valdimarsdóttir U, Briem H, et al. Severe volcanic SO2
exposure and respiratory morbidity in the Icelandic population - a
register study. Environ Health 2021; 20: 23.
5. Carlsen HK, Ilyinskaya E, Baxter PJ, et al. Increased respiratory morbi-
dity associated with exposure to a mature volcanic plume from a large
Icelandic fissure eruption. Nat Commun 2021; 12: 2161.
Volcanic eruptions and
toxic gases
Gunnar Guðmundsson
Respiratory physician
Department of Respiratory
Medicine and Sleep.
Landspitali University
hospital
Faculty of Medicine,
University of Iceland
Ný meðferð fyrir sjúklinga
með ofnæmiskvef (allergic rhinitis).
• Fyrsti nefúðinn á markaði sem inniheldur blöndu af andhistamíni og barkstera.
• Dregur úr einkennum bæði frá nefi og augum
• Verkar á innan við 15 mínútum
• Eitt púst í hvora nös tvisvar á dag
Dymista
Lyfjaform: Nefúði, dreifa. Virk efni: Azelastín og flútíkasónprópíónat. Styrkleiki: Einn úðaskammtur (0,14 g) gefur 137 míkrógrömm af azelastínhýdróklóríði ( = 125
míkrógrömm af azelastíni) og 50 míkrógrömm af flútíkasónprópíónati. Ábending: Lyfið er ætlað til notkunar við einkennum miðlungsmikils eða verulegs árstíðabundins
eða langvinns ofnæmiskvefs (allergic rhinitis), þegar meðferð með einu lyfi til notkunar í nef, annaðhvort andhistamíni eða sykurstera, er ekki talin fullnægjandi.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Markaðsleyfishafi: Meda AB. Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf. Lynghálsi 13, 110 Reykjavík,
sími 540 8000, www.icepharma.is. Dags. nýjasta samþykkta SPC: 5. janúar 2021.
Nálgast má upplýsingar um lyfið og samantekt á eiginleikum þess, fylgiseðil, verð og greiðsluþátttöku sjúkratrygginga á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.
MED210401 - Apríl 2021
(azelastín og flútíkasónprópíónat)