Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.05.2021, Page 11

Læknablaðið - 01.05.2021, Page 11
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 227 Inngangur Fólki með sykursýki hefur fjölgað mikið undanfarna áratugi bæði í auðugri og fátækari hlutum heimsins.1 Mikill heilsufarsvandi tengist sykursýki, einkum vegna aukinnar hættu á hjarta- og æðasjúkdómum,2 en sykursýki og efnaskiptavilla eru til dæmis veigamestu áhættuþættir kransæðasjúkdóms hjá ungum konum.3 Fjölmargir sjúkdómar orsakast af sykursýki, svo sem augn- og nýrnasjúkdómar4 og ákveðin krabbamein eru tíðari hjá fólki með sykursýki.5 Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint sykur- sýki 2 sem einn af fjórum langvinnum lífsstílstengdum sjúkdóm- um sem skuli vera í forgangi að kljást við hjá þjóðum heims.6 Hjartavernd hefur fylgst með þróun sykursýki á Íslandi í reglu- bundnum hóprannsóknum frá árinu 1967. Síðasta hóprannsóknin var Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar (REFINE-Reykjavik Study) sem hófst 2004 og lauk 2011. Við vitum ekki til þess að gerðar hafi verið rannsóknir á nýgengi eða algengi sykursýki 2 á Íslandi síð- an þá, þrátt fyrir mikla aukningu í algengi sykursýki á árunum þar á undan.7 Í þessari rannsókn könnuðum við allar ávísanir á sykursýkilyf á Íslandi samkvæmt Lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis og lögðum mat á þróun algengis og nýgengis sykur- sýki 2 á Íslandi frá 2005 til 2018. Vangreining og vanmeðhöndlun á sykursýki er útbreitt vandamál bæði á Íslandi8 og annars staðar og hefur það áhrif á mat á upplýsingum úr lyfjagagnagrunnum um algengi og nýgengi. Því berum við niðurstöður okkar saman Bolli Þórsson1,2 læknir Elías Freyr Guðmundsson1 faraldsfræðingur Gunnar Sigurðsson1 læknir Thor Aspelund1,3 líftölfræðingur Vilmundur Guðnason1,3 læknir 1Hjartavernd, 2Landspítala, 3Háskóla Íslands. Fyrirspurnum svarar Vilmundur Guðnason, v.gudnason@hjarta.is Á G R I P INNGANGUR Fjöldi fólks með sykursýki 2 hefur vaxið undanfarna áratugi á Íslandi. Í þessari rannsókn var notaður Lyfjagagnagrunnur Embættis landlæknis til að meta algengi og nýgengi sykursýki 2 og sett fram spá um algengi sykursýki 2 eftir 10 og 20 ár. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Algengi og nýgengi sykursýki á tímabilinu 2005-2018 var metið út frá ávísunum sykursýkilyfja samkvæmt skráningum í Lyfjagagnagrunni og borið saman við niðurstöður Áhættuþáttakönnunar Hjartaverndar frá 2004-2011 og birtar tölur frá Bandaríkjunum frá 1980-2016. NIÐURSTÖÐUR Algengi sykursýki 2 meira en tvöfaldaðist í nær öllum aldurshópum hjá bæði körlum og konum á tímabilinu (18-79 ára). Nýgengi jókst um 2,8% á ári (18-79 ára). Fólk með sykursýki 2 á Íslandi var 10.600 manns árið 2018 og hafði fjölgað úr um 4200 manns árið 2005. Gögn úr Lyfjagagnagrunni samanborið við Áhættuþáttakönnun Hjarta- verndar sýna undirmat á nýgengi sykursýki (29% hjá körlum og konum). Haldi fólki með sykursýki á Íslandi áfram að fjölga með svipuðum hraða og varð á árabilinu frá 2005 til 2018 gæti fjöldinn verið kominn í tæp 24.000 manns árið 2040. ÁLYKTUN Línuleg aukning varð á algengi og nýgengi sykursýki 2 á Íslandi á árunum 2005-2018. Svipuð þróun sást í Bandaríkjunum frá 1984. Til að sporna gegn því að fjölgunin hér á landi fari inn á svipaða braut þarf að grípa til víðtækra og markvissra aðgerða. Algengi og nýgengi sykursýki 2 á Íslandi frá 2005 til 2018

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.