Lögmannablaðið - 2022, Qupperneq 28

Lögmannablaðið - 2022, Qupperneq 28
28 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22 allar starfsaðferðir dómstólsins. Þökk sé þeim endurbótum sem hafa verið gerðar hefur kærumálum fækkað um allt að 90-100.000. Nú bíða um 71.000 kærumál úrlausnar. Á þessu sama tímabili var einnig sett upp forgangskerfi til að flýta meðferð og úrlausn þeirra mála sem eru hvað þýðingarmest, alvarlegust og mest áríðandi. Samkvæmt þessu forgangskerfi greinast mál í sjö flokka, frá þeim teljast mest áríðandi (flokkur I), s.s. mál er varða réttinn til lífs, bannið við pyndingum eða annarri illri meðferð eða mál þar sem kærandi er frelsissviptur, til þeirra minnst mikilvægu (flokkur VII). Mál sem falla í flokka I til III eru að meginstefnu til afgreidd með dómum eða ákvörðunum sjö dómara deildar. Mál sem eru samkynja eða eðlislík öðrum málum sem MDE hefur afgreitt og eru augljóslega ekki tæk til efnismeðferðar falla í flokka V til VII. Þau eru afgreidd hratt í gegnum tiltekna síunarferla (filtering mechanisms), þökk sé starfsaðferðum sem teknar voru upp í Interlaken- ferlinu. Í dag er ætlunin að beita þessum aðferðum áfram og jafnframt að gera þær afkastameiri og markvissari. Hið nýja kerfi „áhrifamála“ Í dag, rúmum áratug eftir að Interlaken-ferlið hófst, er aðal áhyggjuefnið ekki lengur fjöldi nýrra kærumála fyrir dómstólnum eða uppsafnaður fjöldi mála sem bíða afgreiðslu. Lögsaga MDE nær til allt að 820 milljón manns í 47 aðildarríkjum. Í slíku kerfi verður heildarmálafjöldinn ávallt umtalsverður, þar sem réttur kæranda til að bera mál undir dómstólinn er verulega ríkur. Ekki er því lengur talin þörf á að endurskoða kerfið í grundvallaratriðum; sjónarhornið hefur breyst. Mælikvarðinn á árangur dóm- stólsins er nú ekki aðeins sá fjöldi mála sem afgreidd eru, heldur einnig og jafnvel fremur sá hvernig dómstóllinn tekur á mikilvægustu málunum. Vitaskuld þarf stöðugt að halda áfram að leita nýrra leiða til að minnka málahallann en á sama tíma þarf dómstóllinn að tryggja að hann sé í stakk búinn til að takast á við mikilvægustu málin innan hæfilegs tíma. Stór flokkur mikilvægra kærumála passar ekki inn í neinn af forgangsflokkunum (I til III). Þar er um að ræða mál sem alla jafna eru tæk til efnismeðferðar og eru sérstaklega mikilvæg fyrir viðkomandi kæranda eða aðildarríki, eða fyrir þróun sáttmálakerfisins, en teljast ekki strangt tiltekið til efstu forgangsmála í gildandi kerfi. Slík mál hafa til þessa fallið saman undir forgangsflokk IV, en þau eru nú um 19.000 talsins. Flest mál sem rata fyrir yfirdeild dómstólsins eru mál sem í upphafi eru skráð í þennan flokk (IV). Þá má sem dæmi nefna að flest þau íslensku mál sem dæmd hafa verið af sjö manna deild á undanförnum árum hafa verið skráð upphaflega í flokk IV, fyrir utan Landsréttarmálið svokallaða sem var þegar skráð í forgangsflokk II við móttöku kærunnar og hlaut auk þess flýtimeðferð á grundvelli 41. gr. málsmeðferðarreglna MDE (Guðmundur Andri Ástráðsson gegn Íslandi [GC], nr. 26374/18, 1. desember 2020). Meðal málsmeðferðartími kærumála í flokki IV sem lokið hefur verið með dómi eða ákvörðun sjö manna deildar, eftir að greinargerð hefur verið óskað frá aðildarríki (communication), hefur verið 5-6 ár. Slík staða er ekki ásættanleg. Af þeim sökum hefur dómstóllinn nú sett á laggirnar nýtt málsmeðferðarkerfi, frá og með 1. janúar 2021, þar sem kærumál sem falla í flokk IV við skráningu eru sérstaklega skoðuð með það í huga hvort þau teljist svokölluð „áhrifamál“ (impact case). Ef svo er, sæta þau sjálfvirkri flýtimeðferð. Um 600 kærumál hafa nú þegar verið skilgreind sem áhrifamál, þar á meðal nokkur íslensk mál. Skilyrði þau sem lögð eru til grundvallar við mat á því hvort kærumál falli í þennan flokk verða ekki tæmandi talin. Til dæmis verður litið til þess hvort úrlausn máls geti orðið til þess að þörf sé á breytingum á lögum eða framkvæmd laga innan aðildarríkis eða á alþjóðavettvangi. Þá geta verið uppi spurningar um samfélagsmálefni eða um tækninýjungar sem dómstóllinn hefur aldrei tekist á við. Í öðrum tilfellum eru uppi á teningnum nýjar og áleitnar spurningar um mannréttindi, svo sem í málum á sviði umhverfismála, málum er varða afleiðingar farsóttarinnar eða málum þar sem reynir á grunnreglur réttarríkisins, eins og um sjálfstæði dómstóla. Þetta nýja málsmeðferðarkerfi MDE stefnir að tveimur nátengdum markmiðum Í fyrsta lagi stefnir það að því að hin hefðbundnu forgangs- mál, í flokkum I til III, og hin nýju áhrifamál, fái meðferð og úrlausn enn hraðar en nú er. Greina þarf áhrifamál eins fljótt og auðið er við skráningu og fylgja meðferð þeirra vel eftir innan dómstólsins. Snögg greining slíkra mála mun sömuleiðis hafa í för með sér að fyrr verði óskað greinargerðar af hálfu aðildarríkja sem í hlut eiga. Það hefur í för með sér stífari eftirfylgni, sem verður að hefjast um leið og dómstóllinn fær mál til meðferðar. Sá tími sem líður frá því að mál berst dómstólnum og þar til aðildarríkið sem í hlut á er beðið um að skila greinargerð verður þannig styttur eins mikið og mögulegt er. Þegar málsmeðferð milli aðila hefur hafist og greinargerðum hefur verið skilað verða málin tekin til umfjöllunar annað hvort af sjö dómara deild eða af þriggja dómara nefnd. Nefndir verða áfram notaðar af dómstólnum í einfaldari málum og þær munu beita þeirri

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.