Lögmannablaðið - 2022, Qupperneq 37

Lögmannablaðið - 2022, Qupperneq 37
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22 37 veginn.“ Mönnum mældist til að þeir hefðu verið í 14 tíma að aka frá Grundarfirði til Andakílshreppsins í Borgarfirði. Í öðru máli fyrir héraðsdómi gerðist það að drengur var ákærður fyrir það eitt að hafa ekið bifreið sinni of hratt. Dómari spurði hvort ekki ætti að gera sátt um málið. Ég taldi það ákjósanlegt og útskýrði hvað í því fælist fyrir drengnum sem svaraði: „Ég fellst á þetta fyrst ég var ekki látinn blása.“ Dr. Gunnlaugur Þórðarson hringdi stundum í mig til að leita ráða í sakamálum. Eitt sinn var hann að verja mann í ljótu máli og átti erfitt með að finna honum eitthvað til málsbóta. Ég sagði honum að hann gæti talað um erfitt uppeldi eða brugðið fyrir sig það sem kalla má „neyðarvörn lögmannsins“. Hún gengur út á það að leggja til þyngstu refsingu, ákærði eigi engar varnir og ganga þannig fram, að dómari fari þá sjálfur að leita að einhverjum málsbótum manninum til varnar. Ef menn lenda í öngstræti er rétt að gera það að vandamáli dómarans. Ég veit nú ekki hvort Doktorinn fylgdi þessu ráði. Einu sinni átti ég að mæta Haraldi Blöndal í dómi en hann leigði aðstöðu hjá okkur Hilmari. Haraldur var hins vegar ekki mættur og dómarinn orðinn óþolinmóður. Mér fannst ég verða að gera eitthvað svo ég sagði dómara að ég hefði verið búinn að steingleyma því að Haraldur væri veikur. Dómarinn var ekki fyrr búinn að taka það til greina þegar Haraldur birtist í dyrunum. Nú voru góð ráð dýr svo ég sagði við hann: „Ertu ekki ennþá veikur?“ Hann var fljótur að átta sig á stöðunni og byrjaði að hósta eitthvað áður en hann játaði því. Einu sinni vorum við Hilmar Ingimundarson mættir saman til lögreglunnar í Reykjavík. Þar átti að yfirheyra skjólstæðinga okkar. Hilmar lagði bílnum inni í bílaportið bak við lögreglustöðina. Þar bar að ungan lögreglumann, sem vildi okkur á brott, stæðin væru aðeins fyrir lögreglu og starfsmenn embættisins. Hilmar svaraði því til að þetta vissum við. Hann bætti svo við „ef þú þekkir okkur hins vegar ekki, þá hef ég réttmætar efasemdir um að þú sért lögreglumaður“. Að lokum, er lögfræði meira áhugamál eða lífsstíll heldur en starf? Ja, þetta byrjar sem starf en verður að lífstíl. Eyrún Ingadóttir

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.