Lögmannablaðið - 2021, Síða 22

Lögmannablaðið - 2021, Síða 22
22 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/21 TILLÖGUR AÐ BREYTINGUM Á CODEX ETHICUS Föstudaginn 21. maí síðastliðinn fór fram félagsfundur í Lögmannafélaginu þar sem kynntar voru tillögur siðareglunefndar félagsins sem hafa verið í vinnslu frá árinu 2016. Nefndinni var falið að yfirfæra reglurnar frá grunni, m.a. með reglur CCBE til hliðsjónar, og koma nýjum og heildstæðum ákvæðum um nokkur mikilvæg atriði inn sem snúa að þagnarskyldu, lögmannsþóknun, hagsmunaárekstrum og endurmenntun svo dæmi sé tekið. Tillögurnar voru sendar til félagsmanna fyrir fundinn en Óttar Pálsson formaður siðareglunefndar, fylgdi þeim úr hlaði. Auk hans komu Viðar Lúðvíksson, Ásgerður Ragnarsdóttir, Eva Halldórsdóttir og Gizur Bergsteinsson að gerð tillagnanna. Þess má geta að fundartími þótti óheppilegur svo skömmu fyrir hvítasunnu og því var ákveðið að fresta atkvæðagreiðslu um tillögurnar. Hér á eftir verður fjallað um tillögurnar ásamt þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum. Óttar Pálsson fylgdi tillögum siðareglunefndar úr hlaði en Kristín Edwald stýrði fundi af röggsemi.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.