Lögmannablaðið - 2021, Page 24

Lögmannablaðið - 2021, Page 24
24 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/21 skjólstæðing, árangurs, þess tíma sem krafist er að varið sé í mál af hálfu lögmanns, sérhæfingar hans og þeirrar ábyrgðar sem starfanum fylgir. Einnig er kveðið á um að lögmanni sé heimilt að áskilja sér þóknun í hlutfalli við fjárhagslegan ávinning af málarekstri í samræmi við ákvæði í 24. lögmannalaga, að lögmaður skuli upplýsa skjólstæðing sinn á hvaða grundvelli þóknun er reiknuð og gera honum grein fyrir hver kostnaður af máli gæti orðið í heild sinni. Þá er lögmanni óheimilt að krefjast fyrirframgreiðslu umfram það sem ætla má að verði hæfileg þóknun vegna starfans. Í núgildandi siðareglum fjallar 1. mgr. 10. gr. ekki um þóknun, eins og hinar greinarnar sem á eftir koma, heldur um skyldu lögmanna til að gefa skjólstæðingum hlutlægt mat á málum. Í athugasemdum Marteins Mássonar um efnið taldi hann óheppilegt að fella ákvæðið alfarið úr siðareglunum og lagði til að það yrði fært undir 8. gr. Óttar upplýsti að komið hafi til álita að halda þessu ákvæði inni: „… en niðurstaðan var sú að það, að lögmaður gefi skjólstæðingi hlutlægt álit, sé ekki skylda sem þjóni tilgangi í siðareglum. Lögmanni ber að gæta þagmælsku og trúmennsku við skjólstæðing og sinna starfi af einurð, svo það þjónar engum sjálfstæðum tilgangi að hafa hlutlægt álit í reglunum,“ sagði hann. Marteinn var ósammála og sagði þetta mikilvægt ákvæði. Hagsmunaárekstrar Bann við hagsmunaárekstrum í störfum lögmanna er nátengt trúnaðar- og þagnarskyldu þeirra og jafnframt kröfu um sjálfstæði lögmannastéttarinnar. Bannið er mikilvæg forsenda þess að nægilegt traust geti ríkt milli lögmanns og skjólstæðings en með tillögu siðareglunefndar er einkum leitast við að útfæra hvað felst í þessu banni, lögmönnum til leiðbeiningar. Lögmaður skal til dæmis ekki fara með hagsmuni skjólstæðings ef hagsmunir þeirra rekast á eða hagsmunir skjólstæðings fer í bága við trúnaðarskyldu hans gagnvart fyrrverandi skjólstæðingi. Þá er lagt til að reglan meini ekki lögmanni/lögmannsstofu að sinna störfum fyrir tvo eða fleiri skjólstæðinga þótt hagsmunir kunni að rekast á í einhverju tilliti, s.s. vegna samkeppni þeirra á milli. Í slíkum tilvikum er í ákvæðinu gerður áskilnaður um að lögmaður afli upplýsts samþykkis málsaðila þrátt fyrir árekstur hagsmuna. Marteinn kallaði eftir upplýsingum um hverra hagsmuna verið væri að gæta með því að leggja til þessar breytingar á 11. gr. Velti hann því upp hvaða hagsmunir kölluðu á þessa grundvallarbreytingu á skyldum lögmanna gagnvart skjólstæðingum sínum og kvaðst uggandi vegna undantekningar í 4. mgr. tillagnanna sem heimila lögmanni að gæta hagsmuna tveggja eða fleiri skjólstæðinga: „Ég óttast að verið sé að opna fyrir mörg vandamál og álitaefni sem upp geta komið í samskiptum lögmanna við skjólstæðinga. Hvað þarf lögmaðurinn að upplýsa skjólstæðinginn um svo hann samþykki að hann gæti hagsmuna gagnaðila?,“ spurði Marteinn og taldi vandmeðfarið að tryggja að skjólstæðingar fengju fullnægjandi upplýsingar til að geta Sú grein siðareglna varðandi þóknun sem lagt er til að breyta: 10. gr. [1] Lögmaður skal ætíð gefa skjólstæðingi hlutlægt álit á málum hans. [2] Lögmanni ber að gera skjólstæðingi grein fyrir áætluðum verkkostnaði og öðrum málskostnaði eftir föngum, og vekja athygli hans, ef ætla má, að kostnaður verði hár að tiltölu við þá hagsmuni, sem í húfi eru. Lögmanni ber að gera skjólstæðingi grein fyrir á hvaða grundvelli þóknunin er reiknuð. [3] Lögmanni ber að leita samþykkis skjólstæðings, ef fela þarf mál hans öðrum lögmanni. Sama gildir að jafnaði, ef leita þarf annarrar sérfræðiaðstoðar, svo sem mats eða skoðunarmanna, ef verulegur kostnaður er því samfara. [4] Lögmanni ber að vekja athygli skjólstæðings á möguleika á gjafsóknarheimild eða annarri opinberri réttaraðstoð þar sem það á við. - Í stað 1. og 2. mgr. er lagt til að komi fimm nýjar málsgreinar: [1] Lögmanni er rétt að áskilja sér hæfilega þóknun fyrir störf sín. Við mat á því hvað telst hæfileg þóknun er m.a. heimilt að líta til umfangs og eðlis máls, undirliggjandi hagsmuna, þýðingar fyrir skjólstæðing, árangurs, þess tíma sem krafist er að varið sé í mál af hálfu lögmannsins, sérhæfingar hans og þeirrar ábyrgðar sem starfanum fylgir. [2] Lögmanni er heimilt að áskilja sér þóknun í hlutfalli við fjárhagslegan ávinning af málarekstri. [3] Lögmaður skal upplýsa skjólstæðing sinn um á hvaða grundvelli þóknun er reiknuð. [4] Lögmaður skal leitast við að gera skjólstæðingi sínum grein fyrir hver kostnaður af máli gæti orðið í heild sinni. [5] Lögmanni er óheimilt að krefjast fyrirframgreiðslu úr hendi skjólstæðings síns umfram það sem ætla má að verði hæfileg þóknun vegna starfans. - Þá er lagt til að orðin „að jafnaði“ falli brott úr 2. málsl. 3. mgr. sem verður 6. mgr. og orðast svo: [6] Sama gildir ef leita þarf annarrar sérfræðiaðstoðar, svo sem mats- eða skoðunarmanna, ef verulegur kostnaður er því samfara. Þá er lagt til að orðið „opinberri“ falli brott úr 4. mgr. sem verður 7. mgr.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.