Sjómannadagsblaðið - 2022, Page 6
6 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
E inar Magnús Magnússon,
sérfræðingur í kynningar-
og fræðslumálum hjá Sam-
göngustofu, segir fullt tilefni til að
beina sjónum að þessum atriðum.
Félagslegi þátturinn sé vanmetið
öryggisatriði á sjó.
Blaðamaður Sjómanna-
dagsblaðsins settist niður með
Einari Magnúsi í höfuðstöðvum
Samgöngustofu og fékk að fræð-
ast um átakið 12 hnúta. Það má
segja að nafn herferðarinnar
dragi nafn sitt af framkvæmd
hennar: Framleidd verða 12
upplýsingaspjöld um hina ýmsu
mannlegu öryggisþætti og er eitt
spjald kynnt til leiks í hverjum
mánuði ársins. Fimm spjöld hafa
litið dagsins ljós nú þegar, sem til
að mynda má finna á heimasíðu
Samgöngustofu.
Eitt slys er of mikið
En hvers vegna að ráðast í vit-
undarvakningu um öryggi á sjó?
Íslendingar hafa náð gríðarlegum
árangri í þeim efnum á undan-
förnum áratugum, ekki síst fyrir
tilstuðlan aukinnar öryggismenn-
ingar um borð, þátttöku atvinnu-
greinarinnar og þeirrar þjálfunar
sem veitt er í Slysavarnaskóla
sjómanna. Sem dæmi má nefna
að enginn sjómaður lést við störf á
árabilinu 2017 til 2021 og sömuleið-
is hefur slysum til sjós fækkað á
undanförnum árum. Einar Magn-
ús segir að þrátt fyrir þennan
árangur sé enn fullt tilefni til að
huga að örygginu. Enn verði slys
og óhöpp þar sem litlu megi muna
að alvarlegar afleiðingar hljótist af.
Upplýsingaspjöldin 12 hnútar miði
að því að fækka þeim.
Einar setur átakið í samhengi
við herferðir Samgöngustofu þar
sem áhersla er lögð á mikilvægi
bílbeltanotkunar. „Þá spyr fólk
okkur: „Til hvers að leggja áherslu
á bílbelti? Eru ekki allir í beltum?“
Staðreyndin er hins vegar sú að
þær rannsóknir og viðhorfskann-
anir sem við framkvæmum sýna
að um 96% bílstjóra og farþega
nota öryggisbelti. Það er vissulega
hátt hlutfall en engu að síður eru
þau 4% sem eftir standa þúsund-
ir einstaklinga sem eru í margfalt
meiri hættu en aðrir ökumenn og
farþegar.“
Þetta varpi þannig ljósi á
mikilvægi þess að fólk tileinki
sér alla öryggisþætti, sama hver
Samgöngustofa hefur ýtt úr
vör nýju árveknisátaki um
öryggi á sjó. markmið átaks-
ins er kannski ekkert sérlega
nýstárlegt, að fækka og koma
í veg fyrir alvarleg slys á sjó,
en áhersla þess vekur óneit-
anlega athygli. í 12 hnútum er
nefnilega ekki lögð áhersla á
hefðbundna öryggisþætti sem
þurfa að vera í lagi áður en
siglt er út, eins og að björg-
unarbátar séu yfirfarnir og að
gott aðgengi sé að hjálmum og
öðrum öryggisbúnaði, held-
ur á mannlega þætti. Hvernig
mannlegur breyskleiki, þreyta,
þrjóska og jafnvel dramb getur
verið slysavaldur.
samgöngumátinn er. Það á að
setja öryggið á oddinn og veita
engan afslátt af því, ekki síst á sjó.
„Við sjáum í slysaskráningum hjá
okkur að upp koma margvísleg
tilfelli á sjó þar sem litlu má muna
að alvarlegt slys hljótist af,“ segir
Einar, sem undirstrikar mikilvægi
þess að sjófarendur skrásetji öll
slík tilfelli – sama hvort af þeim
hljótist slys eða ekki. Aðeins
þannig sé hægt að gera viðeigandi
ráðstafanir. Það hafi því ekki síst
verið fyrir slíkar skráningar sem
Samgöngustofa gat greint vand-
ann og hrint af stað 12 hnútum til
að vinda ofan af honum.
Hreinlæti og hroki
Sem fyrr segir beina 12 hnútar sjón-
um að mannlegum og félagslegum
þáttum sem geta ráðið úrslitum á
sjó. Herferðin beinist að öllum sem
tengjast sjómennsku með einum
eða öðrum hætti og einskorðast
ekki við yfirmenn eða undirmenn.
Herferðin á að höfða til allra, hvort
sem þau eru á sjó eða í landi. „Þetta
eru þættir sem fólk hugsar ekkert
endilega út í, hvorki í leik né starfi,
heima eða á vinnustaðnum. Þetta
eru einfaldlega mannlegir brestir
sem eðlilegt er að yfirsjást eða gefa
afslátt af,“ segir Einar. Þetta séu
því ekki atriði sem eru bundin við
sjómennskuna eða til marks um
að sjómenn „séu eitthvað slæmir,“
eins og Einar orðar það. „Við erum
að reyna að undirstrika að menn
efli vitund sína fyrir þessum mann-
lega þætti. Í þessum spjöldum eru
því fyrirbyggjandi aðgerðir: Hvern-
ig við getum komið í veg fyrir að
skortur á fræðslu og þjálfun verði
hættulegur.“
Í þeim efnum er af nægu er að
taka að sögn Einars. Þannig getur
aga- og kæruleysi leitt til slysa, rétt
eins og áhugaleysi fyrir öryggi og
skortur á fræðslu og þjálfun. Þá er
mikilvægt að sjómenn taki ekki
óþarfa áhættu og að yfirmenn setji
ekki óraunhæfar kröfur eða ofmeti
eigin hæfni eða annarra, auk þess
sem skortur á samvinnu og félags-
leg einangrun getur haft alvarlegar
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn
Einar magnús magnússon, sem
er sérfræðingur í kynningar- og
fræðslumálum hjá Samgöngustofu,
segir draumaniðurstöðuna í átaki
Samgöngustofu gegn slysum á sjó að slys
verði ekki nema smávægileg. Hann er hér
með Sól, sem er ástralskur fjárhundur.
Þetta eru þættir sem
fólk hugsar ekkert
endilega út í, hvorki í leik
né starfi, heima eða á
vinnustaðnum. Þetta eru
einfaldlega mannlegir
brestir sem eðlilegt er að
yfirsjást eða gefa afslátt af.
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Ísland
www.rafstjorn.is
Virkni loftræstikerfa
er okkar fag!Lampar.is
Flúrlampar ehf. - Síðan 1977
Félagslegi þátturinn
stórt öryggisatriði á sjó