Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 6

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 6
6 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 E inar Magnús Magnússon, sérfræðingur í kynningar- og fræðslumálum hjá Sam- göngustofu, segir fullt tilefni til að beina sjónum að þessum atriðum. Félagslegi þátturinn sé vanmetið öryggisatriði á sjó. Blaðamaður Sjómanna- dagsblaðsins settist niður með Einari Magnúsi í höfuðstöðvum Samgöngustofu og fékk að fræð- ast um átakið 12 hnúta. Það má segja að nafn herferðarinnar dragi nafn sitt af framkvæmd hennar: Framleidd verða 12 upplýsingaspjöld um hina ýmsu mannlegu öryggisþætti og er eitt spjald kynnt til leiks í hverjum mánuði ársins. Fimm spjöld hafa litið dagsins ljós nú þegar, sem til að mynda má finna á heimasíðu Samgöngustofu. Eitt slys er of mikið En hvers vegna að ráðast í vit- undarvakningu um öryggi á sjó? Íslendingar hafa náð gríðarlegum árangri í þeim efnum á undan- förnum áratugum, ekki síst fyrir tilstuðlan aukinnar öryggismenn- ingar um borð, þátttöku atvinnu- greinarinnar og þeirrar þjálfunar sem veitt er í Slysavarnaskóla sjómanna. Sem dæmi má nefna að enginn sjómaður lést við störf á árabilinu 2017 til 2021 og sömuleið- is hefur slysum til sjós fækkað á undanförnum árum. Einar Magn- ús segir að þrátt fyrir þennan árangur sé enn fullt tilefni til að huga að örygginu. Enn verði slys og óhöpp þar sem litlu megi muna að alvarlegar afleiðingar hljótist af. Upplýsingaspjöldin 12 hnútar miði að því að fækka þeim. Einar setur átakið í samhengi við herferðir Samgöngustofu þar sem áhersla er lögð á mikilvægi bílbeltanotkunar. „Þá spyr fólk okkur: „Til hvers að leggja áherslu á bílbelti? Eru ekki allir í beltum?“ Staðreyndin er hins vegar sú að þær rannsóknir og viðhorfskann- anir sem við framkvæmum sýna að um 96% bílstjóra og farþega nota öryggisbelti. Það er vissulega hátt hlutfall en engu að síður eru þau 4% sem eftir standa þúsund- ir einstaklinga sem eru í margfalt meiri hættu en aðrir ökumenn og farþegar.“ Þetta varpi þannig ljósi á mikilvægi þess að fólk tileinki sér alla öryggisþætti, sama hver Samgöngustofa hefur ýtt úr vör nýju árveknisátaki um öryggi á sjó. markmið átaks- ins er kannski ekkert sérlega nýstárlegt, að fækka og koma í veg fyrir alvarleg slys á sjó, en áhersla þess vekur óneit- anlega athygli. í 12 hnútum er nefnilega ekki lögð áhersla á hefðbundna öryggisþætti sem þurfa að vera í lagi áður en siglt er út, eins og að björg- unarbátar séu yfirfarnir og að gott aðgengi sé að hjálmum og öðrum öryggisbúnaði, held- ur á mannlega þætti. Hvernig mannlegur breyskleiki, þreyta, þrjóska og jafnvel dramb getur verið slysavaldur. samgöngumátinn er. Það á að setja öryggið á oddinn og veita engan afslátt af því, ekki síst á sjó. „Við sjáum í slysaskráningum hjá okkur að upp koma margvísleg tilfelli á sjó þar sem litlu má muna að alvarlegt slys hljótist af,“ segir Einar, sem undirstrikar mikilvægi þess að sjófarendur skrásetji öll slík tilfelli – sama hvort af þeim hljótist slys eða ekki. Aðeins þannig sé hægt að gera viðeigandi ráðstafanir. Það hafi því ekki síst verið fyrir slíkar skráningar sem Samgöngustofa gat greint vand- ann og hrint af stað 12 hnútum til að vinda ofan af honum. Hreinlæti og hroki Sem fyrr segir beina 12 hnútar sjón- um að mannlegum og félagslegum þáttum sem geta ráðið úrslitum á sjó. Herferðin beinist að öllum sem tengjast sjómennsku með einum eða öðrum hætti og einskorðast ekki við yfirmenn eða undirmenn. Herferðin á að höfða til allra, hvort sem þau eru á sjó eða í landi. „Þetta eru þættir sem fólk hugsar ekkert endilega út í, hvorki í leik né starfi, heima eða á vinnustaðnum. Þetta eru einfaldlega mannlegir brestir sem eðlilegt er að yfirsjást eða gefa afslátt af,“ segir Einar. Þetta séu því ekki atriði sem eru bundin við sjómennskuna eða til marks um að sjómenn „séu eitthvað slæmir,“ eins og Einar orðar það. „Við erum að reyna að undirstrika að menn efli vitund sína fyrir þessum mann- lega þætti. Í þessum spjöldum eru því fyrirbyggjandi aðgerðir: Hvern- ig við getum komið í veg fyrir að skortur á fræðslu og þjálfun verði hættulegur.“ Í þeim efnum er af nægu er að taka að sögn Einars. Þannig getur aga- og kæruleysi leitt til slysa, rétt eins og áhugaleysi fyrir öryggi og skortur á fræðslu og þjálfun. Þá er mikilvægt að sjómenn taki ekki óþarfa áhættu og að yfirmenn setji ekki óraunhæfar kröfur eða ofmeti eigin hæfni eða annarra, auk þess sem skortur á samvinnu og félags- leg einangrun getur haft alvarlegar Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn Einar magnús magnússon, sem er sérfræðingur í kynningar- og fræðslumálum hjá Samgöngustofu, segir draumaniðurstöðuna í átaki Samgöngustofu gegn slysum á sjó að slys verði ekki nema smávægileg. Hann er hér með Sól, sem er ástralskur fjárhundur. Þetta eru þættir sem fólk hugsar ekkert endilega út í, hvorki í leik né starfi, heima eða á vinnustaðnum. Þetta eru einfaldlega mannlegir brestir sem eðlilegt er að yfirsjást eða gefa afslátt af. Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Ísland www.rafstjorn.is Virkni loftræstikerfa er okkar fag!Lampar.is Flúrlampar ehf. - Síðan 1977 Félagslegi þátturinn stórt öryggisatriði á sjó

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.