Sjómannadagsblaðið - 2022, Page 20
Gamli góði kjarninn
í nýjum búningi
H eimsfaraldur kórónu-
veirunnar hefur sett svip
sinn á alla anga mann-
lífsins og eru hátíðahöldin á sjó-
mannadaginn þar engin undan-
tekning. Eftir tveggja ára hlé hefur
aftur verið boðað til mannfagn-
aðar á Grandanum í Reykjavík og
hafa skipuleggjendur sett markið
hátt. Elísabet Sveinsdóttir, einn
skipuleggjenda hátíðahaldanna í
Reykjavík, segir að á bilinu 30 til
40 þúsund manns hafi sótt dag-
skrá sjómannadagsins árlega fram
að faraldrinum og að vonir standi
til að gestirnir verði enn fleiri í ár.
Undirbúningurinn fyrir daginn
hefur staðið yfir í um sjö mánuði,
enda ekki vanþörf á þegar um jafn
viðamikinn viðburð er að ræða.
Elísabet segir að það sé markmið
allra sem að hátíðinni standa
að gera sjómannadaginn stærri
og betri en áður. Ótal aðilar hafi
komið að skipulagningunni og
markmið þeirra sé að gera þetta
með veglegum hætti. Faraldur-
inn hafi framkallað „uppsafnaða
sjómannadagsþörf“ sem ætlunin
sé að svara.
Fjölskylduhátíð
fyrir alla aldurshópa
Yfirskrift hátíðahaldanna í Reykja-
vík í ár er „Hafsjór af skemmtun,“
sem Elísabet segir gefa ákveðna
vísbendingu um hvað sé í vænd-
um. Grandinn verður undirlagð-
ur af hvers kyns uppákomum
og skemmtiatriðum sem eiga að
höfða til allra aldurshópa, auk
þess sem fyrirtækin á svæðinu
voru hvött til að bregða út af van-
anum í starfsemi sinni í tilefni
dagsins. Elísabet segir að í að-
draganda hátíðarinnar hafi verið
ráðist í margvíslegar greiningar
sem leitt hafi í ljós að sjómanna-
dagurinn sé fyrst og fremst fjöl-
skylduhátíð, þangað sem foreldr-
ar fjölmenni með börn sín.
Hún segir að hátíðahöldin og
umgjörð þeirra hafi verið í nokk-
uð föstum skorðum í gegnum
árin. Nú standi hins vegar til að
breyta aðeins til, ekki aðeins
hvað varðar skemmtidagskrá
heldur jafnframt í kynningar-
starfi og upplýsingagjöf. Þannig
verður aukin áhersla lögð á að
gera hátíðina stafrænni og að-
gengilegri en áður, til að mynda
með því að auðvelda fólki að
sækja dagskrá sjómannadagsins
í símann. „Við vildum slá nýjan
tón í þetta og uppfæra hátíðina,“
segir Elísabet.
Þessa áherslu megi jafnframt
sjá í kynningarefni viðburðarins,
sem nú ber aðeins nafn sjómanna-
dagsins. Á undanförnum árum
hefur jafnframt verið stuðst við
heitin „Hátíð hafsins“ og „Hafnar-
dagurinn“ en Elísabet segir að
í ár hafi verið tekin ákvörðun
að gera gamla heitinu aftur hátt
undir höfði. „Við þekkjum öll sjó-
mannadaginn, þetta er heiti sem
hefur fylgt þjóðinni lengi og við
vildum hefja það aftur til vegs og
virðingar,“ segir Elísabet.
Þrátt fyrir margvíslegt nýja-
brum verða sígildir þættir í
dagskránni á sínum stað; eins
og reiptog, kappróður, siglingar
og hinn ómissandi koddaslagur.
„Allt þetta gamla góða,“ segir El-
ísabet. „Við vildum halda í kjarna
hátíðarinnar en blanda honum
saman við ýmsar nýjungar.“
Mikilvægi hátíðarinnar óbreytt
Þrátt fyrir að sjósókn sé ekki
nándar nærri jafn hættuleg og
hún var á fyrri tímum, þökk sé
betri tækjakosti og auknu öryggi
sjómanna, segir Elísabet að nú
sem fyrr sé mikilvægt að halda
sjómannadaginn hátíðlegan. „Sjó-
mennskan er samofin sögu þjóðar-
innar. Við erum umkringd hafinu
og þúsundir Íslendinga hafa beina
tengingu við sjávarútveg,“ segir
Elísabet og vísar þar til allra þeirra
sem hafa starfað í sjávarútvegi og
aðstandenda þeirra. „Þrátt fyrir að
sjómennskan sé ekki jafn hættu-
leg og áður eigum við margt undir
greininni. Þetta er enn einn helsti
atvinnuvegur þjóðarinnar, megin-
stoð samfélagsins, og fólk velur
áfram að starfa í sjávarútvegi þrátt
fyrir hætturnar og langa fjarveru
frá fjölskyldunni. Við eigum að
heiðra þetta fólk með þessum
gamla og fallega sið.“
Elísabet segir að hátíðahöld
sjómannadagsins séu ekki síst
til þess fallin að draga fram það
góða í sjávarútvegi og gera því
skil. „Sjómennska er stór atvinnu-
grein og við eigum að vera stolt af
því hvernig sjávarútvegurinn er
í dag. Hann er hluti af þjóðarsál-
inni enda erum við umkringd hafi,
hvernig getum við annað en verið
tengd sjónum? Sjómannadagurinn
er stórmerkilegt fyrirbæri.“
Sem fyrr segir gera Elísabet og
aðrir skipuleggjendur sér vonir um
að hátíðahöldin í Reykjavík verði
vel sótt og segist hún spennt að
sjá hvernig Íslendingar taka fyrstu
fjölmennu útiskemmtuninni í tvö
ár. „Og svo krossleggjum við fing-
ur um að veðrið verði gott,“ segir
Elísabet Sveinsdóttir. - sój
Hátíðahöld sjómannadagsins í reykjavík verða sumpart með
nýju sniði í ár. Þrátt fyrir ýmsar nýjungar og breyttar áherslur
mun gamli sjómannadagsandinn svífa yfir vötnum. Skipuleggj-
endur hátíðahaldanna eru áfram um að dagurinn verði sem
stærstur, ekki aðeins vegna þess hve mikilvægt er að heiðra
hetjur hafsins heldur jafnframt vegna messufalls síðustu
tveggja ára. Það sé því komin „uppsöfnuð sjómannadagsþörf“
sem þurfi að uppfylla – og það með glæsibrag.
anna Björk árnadóttir og Elísabet Sveinsdóttir sem í
ár halda utan um skipulagningu Sjómannadagsins í
reykjavík. Elísabet bendir á að fram að faraldri hafi á
bilinu 30 til 40 þúsund manns sóttu dagskrá hátíðar-
haldanna og fagnar því að hægt sé koma saman aftur.
Fólk velur áfram að starfa
í sjávarútvegi þrátt fyrir
hætturnar og langa
fjarveru frá fjölskyldunni.
Við eigum að heiðra þetta
fólk með þessum gamla
og fallega sið.
20 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2