Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 20

Sjómannadagsblaðið - 2022, Síða 20
Gamli góði kjarninn í nýjum búningi H eimsfaraldur kórónu- veirunnar hefur sett svip sinn á alla anga mann- lífsins og eru hátíðahöldin á sjó- mannadaginn þar engin undan- tekning. Eftir tveggja ára hlé hefur aftur verið boðað til mannfagn- aðar á Grandanum í Reykjavík og hafa skipuleggjendur sett markið hátt. Elísabet Sveinsdóttir, einn skipuleggjenda hátíðahaldanna í Reykjavík, segir að á bilinu 30 til 40 þúsund manns hafi sótt dag- skrá sjómannadagsins árlega fram að faraldrinum og að vonir standi til að gestirnir verði enn fleiri í ár. Undirbúningurinn fyrir daginn hefur staðið yfir í um sjö mánuði, enda ekki vanþörf á þegar um jafn viðamikinn viðburð er að ræða. Elísabet segir að það sé markmið allra sem að hátíðinni standa að gera sjómannadaginn stærri og betri en áður. Ótal aðilar hafi komið að skipulagningunni og markmið þeirra sé að gera þetta með veglegum hætti. Faraldur- inn hafi framkallað „uppsafnaða sjómannadagsþörf“ sem ætlunin sé að svara. Fjölskylduhátíð fyrir alla aldurshópa Yfirskrift hátíðahaldanna í Reykja- vík í ár er „Hafsjór af skemmtun,“ sem Elísabet segir gefa ákveðna vísbendingu um hvað sé í vænd- um. Grandinn verður undirlagð- ur af hvers kyns uppákomum og skemmtiatriðum sem eiga að höfða til allra aldurshópa, auk þess sem fyrirtækin á svæðinu voru hvött til að bregða út af van- anum í starfsemi sinni í tilefni dagsins. Elísabet segir að í að- draganda hátíðarinnar hafi verið ráðist í margvíslegar greiningar sem leitt hafi í ljós að sjómanna- dagurinn sé fyrst og fremst fjöl- skylduhátíð, þangað sem foreldr- ar fjölmenni með börn sín. Hún segir að hátíðahöldin og umgjörð þeirra hafi verið í nokk- uð föstum skorðum í gegnum árin. Nú standi hins vegar til að breyta aðeins til, ekki aðeins hvað varðar skemmtidagskrá heldur jafnframt í kynningar- starfi og upplýsingagjöf. Þannig verður aukin áhersla lögð á að gera hátíðina stafrænni og að- gengilegri en áður, til að mynda með því að auðvelda fólki að sækja dagskrá sjómannadagsins í símann. „Við vildum slá nýjan tón í þetta og uppfæra hátíðina,“ segir Elísabet. Þessa áherslu megi jafnframt sjá í kynningarefni viðburðarins, sem nú ber aðeins nafn sjómanna- dagsins. Á undanförnum árum hefur jafnframt verið stuðst við heitin „Hátíð hafsins“ og „Hafnar- dagurinn“ en Elísabet segir að í ár hafi verið tekin ákvörðun að gera gamla heitinu aftur hátt undir höfði. „Við þekkjum öll sjó- mannadaginn, þetta er heiti sem hefur fylgt þjóðinni lengi og við vildum hefja það aftur til vegs og virðingar,“ segir Elísabet. Þrátt fyrir margvíslegt nýja- brum verða sígildir þættir í dagskránni á sínum stað; eins og reiptog, kappróður, siglingar og hinn ómissandi koddaslagur. „Allt þetta gamla góða,“ segir El- ísabet. „Við vildum halda í kjarna hátíðarinnar en blanda honum saman við ýmsar nýjungar.“ Mikilvægi hátíðarinnar óbreytt Þrátt fyrir að sjósókn sé ekki nándar nærri jafn hættuleg og hún var á fyrri tímum, þökk sé betri tækjakosti og auknu öryggi sjómanna, segir Elísabet að nú sem fyrr sé mikilvægt að halda sjómannadaginn hátíðlegan. „Sjó- mennskan er samofin sögu þjóðar- innar. Við erum umkringd hafinu og þúsundir Íslendinga hafa beina tengingu við sjávarútveg,“ segir Elísabet og vísar þar til allra þeirra sem hafa starfað í sjávarútvegi og aðstandenda þeirra. „Þrátt fyrir að sjómennskan sé ekki jafn hættu- leg og áður eigum við margt undir greininni. Þetta er enn einn helsti atvinnuvegur þjóðarinnar, megin- stoð samfélagsins, og fólk velur áfram að starfa í sjávarútvegi þrátt fyrir hætturnar og langa fjarveru frá fjölskyldunni. Við eigum að heiðra þetta fólk með þessum gamla og fallega sið.“ Elísabet segir að hátíðahöld sjómannadagsins séu ekki síst til þess fallin að draga fram það góða í sjávarútvegi og gera því skil. „Sjómennska er stór atvinnu- grein og við eigum að vera stolt af því hvernig sjávarútvegurinn er í dag. Hann er hluti af þjóðarsál- inni enda erum við umkringd hafi, hvernig getum við annað en verið tengd sjónum? Sjómannadagurinn er stórmerkilegt fyrirbæri.“ Sem fyrr segir gera Elísabet og aðrir skipuleggjendur sér vonir um að hátíðahöldin í Reykjavík verði vel sótt og segist hún spennt að sjá hvernig Íslendingar taka fyrstu fjölmennu útiskemmtuninni í tvö ár. „Og svo krossleggjum við fing- ur um að veðrið verði gott,“ segir Elísabet Sveinsdóttir. - sój Hátíðahöld sjómannadagsins í reykjavík verða sumpart með nýju sniði í ár. Þrátt fyrir ýmsar nýjungar og breyttar áherslur mun gamli sjómannadagsandinn svífa yfir vötnum. Skipuleggj- endur hátíðahaldanna eru áfram um að dagurinn verði sem stærstur, ekki aðeins vegna þess hve mikilvægt er að heiðra hetjur hafsins heldur jafnframt vegna messufalls síðustu tveggja ára. Það sé því komin „uppsöfnuð sjómannadagsþörf“ sem þurfi að uppfylla – og það með glæsibrag. anna Björk árnadóttir og Elísabet Sveinsdóttir sem í ár halda utan um skipulagningu Sjómannadagsins í reykjavík. Elísabet bendir á að fram að faraldri hafi á bilinu 30 til 40 þúsund manns sóttu dagskrá hátíðar- haldanna og fagnar því að hægt sé koma saman aftur. Fólk velur áfram að starfa í sjávarútvegi þrátt fyrir hætturnar og langa fjarveru frá fjölskyldunni. Við eigum að heiðra þetta fólk með þessum gamla og fallega sið. 20 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.