Sjómannadagsblaðið - 2022, Side 26
Í lok síðasta árs endurheimtu
Hollvinasamtökin gamla
kallmerki Óðins, TFRA, og í
kjölfarið fékkst fjarskiptaleyfi
hjá Fjarskiptastofu. Nú hefur Sam-
göngustofa, í góðu samstarfi við
sjálfboðaliða sem starfa um borð
í Óðni, unnið að undirbúningi að
útgáfu nýs haffærisskírteinis fyrir
skipið og verður því væntanlega
ekkert því til fyrirstöðu að sigla
skipinu úr höfn.
Óðinn vakinn til lífs á ný
Guðmundur Hallvarðsson, formað-
ur Hollvinasamtaka Óðins, segir
að undanfarin ári hafi traustur
hópur félagsmanna í samtökun-
um, m.a. fyrrverandi starfsmenn
Landhelgisgæslunnar, þar á meðal
í áhöfn Óðins, unnið hörðum hönd-
um að því að vekja skipið til lífs
aftur, ef svo má segja, með því að
yfirfara allan búnað og tæki í brú,
loftskeytaklefa og áhafnarrýmum
auk allra tækja og stýringa sem
tilheyra vélarrúminu, þar á meðal
aðalvélar og ljósavélar, svo örfá
dæmi séu nefnd af þúsund atriðum
á löngum gátlista atriða sem hefur
þurft að yfirfara og laga til að koma
skipinu á ný í haffært ástand.
Mikil vinna liggur að baki
„Þetta hefur verið gríðarlegt ver-
kefni og margir hafa lagt lóð á
vogarskálarnar til að það mætti
takast, bæði einstaklingar og
fyrirtæki sem greitt hafa ýmsan
kostnað og líka lánað mannskap til
ýmissa sérhæfðra verkefna. Þeirra
á meðal er Egill Þórðarson, fyrrver-
andi loftskeytamaður og varðstjóri
í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar,
sem starfar núna sem sjálfboða-
liði um borð í Óðni og hefur unnið
ötullega að því að yfirfara og laga
ýmsan búnað um borð í skipinu.
Þegar átti að yfirfara siglingaljósin
í mastrinu í stafni skipsins kom í
ljós að mastrið var svo haugryðgað
að ekkert vit var í að ráðast í lag-
færingar, heldur yrði að láta smíða
nýtt mastur,“ segir Guðmundur.
Nýja mastrið tákn
um djúpa vináttu
Var í kjölfarið gerð nákvæm
smíðalýsing og í kjölfarið óskað
verðtilboða hér innanlands og í
Póllandi. „Þá datt Agli Þórðarsyni
í hug að senda smíðalýsinguna til
Japan, nánar tiltekið til forstjóra
skipasmíðastöðvarinnar Mirai þar
í landi, Takeyoshi Kidoura, sem
Egill þekkir vel. Kidoura svaraði
um hæl að stöðin skyldi smíða
mastrið og færa okkur að gjöf
sem þakklætisvott fyrir aðstoð
Íslendinga við Japani sem áttu um
sárt að binda í borgunum Miyako
og Kesennuma á norðausturströnd
landsins eftir stórfelldar flóðbylgj-
ur sem gengu þar á land í kjölfar
jarðskjálfta í mars 2011 og lögðu
byggðir í rúst á fjögur hundruð
kílómetra löngu belti meðfram
ströndinni sem leiddi m.a. til kjarn-
orkuslyss,“ segir Guðmundur. Það
má því segja að nýja mastrið á Óðni
sé fallegt tákn um góða vináttu
Íslendinga og Japana sem birtist í
hjálparátaki landsmanna við fólkið
á hamfarasvæðunum og enn frem-
ur í þeim þakklætisvotti Japana
sem birtist í þeirri gjöf sem nýja
mastrið á Óðni er.
Fékk nýtt
siglingaljósamastur
frá Japan
Óðinn siglir um sjómannadagshelgina:
nýtt siglingaljósamastur var sett upp í varðskipinu óðni í fyrrasumar eftir að góð gjöf frá Japan barst til landsins.
unnið hefur verið að því hörðum höndum undanfarna mánuði að gera óðin haffæran á ný og meðal skilyrða var að skipt yrði um
mastrið, enda var upphaflega mastrið orðið mjög illa farið af ryði.
Þetta hefur verið gríðarlegt
verkefni og margir hafa
lagt lóð á vogarskálarnar til
að það mætti takast, bæði
einstaklingar og fyrirtæki sem
greitt hafa ýmsan kostnað
og líka lánað mannskap til
ýmissa sérhæfðra verkefna.
guðmundur Hallvarðsson formaður
Hollvinasamtaka óðins og Egill
Þórðarson loftskeytamaður við nýja
mastrið. Egill talar japönsku og sendi
utan bréf um tilboð í smíði mastursins.
26 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2