Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 2022, Side 42

Sjómannadagsblaðið - 2022, Side 42
B rynjólfur Gunnar Hall- dórsson fæddist í Reykja- vík árið 1937 og ólst upp í Laugarnesinu. Ekki verður annað sagt en að hafið hafi kallað á hann frá blautu barnsbeini, en Brynjólf- ur minnist þess að hafa stolist út á sjó með vinum sínum þegar hann var aðeins níu ára gamall. Hann hafi í slagtogi við tvo vini sína á svipuðu reki sjósett bát sem þeir fundu í fjörunni skammt frá vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara. „Þaðan drógum við bátinn á Kirkjusand, þar sem við sáum að það voru rifur í bátn- um, sem við fylltum í með tvist,“ segir Brynjólfur. Öðrum strákum í hverfinu hafi ekki litist á blikuna þegar þeir sáu sjó í bátnum en það hafi ekki stöðvað þá félaga. Þeir hafi því ýtt úr vör og kom- ist út á miðja ytri höfnina áður en þeim hætti að lítast á blikuna. „Það var kominn sjór upp á hné og við byrjum því að ausa með stíg- vélunum okkar. Við veifuðum til skútu sem kom siglandi til okkar. Mennirnir um borð kölluðu á okk- ur: „Hvað eruð þið að flækjast?“ áður en þeir köstuðu til okkar fötu til að ausa með. Því næst drógu þeir okkur í átt að fjörunni áður en þeir tilkynntu okkur að við gæt- um róið restina,“ segir Brynjólfur. „Þannig bjargaðist þetta.“ Hann segist ekki hafa þorað að segja neinum frá svaðilförinni og það hafi ekki verið fyrr en hálfum mánuði síðar sem hann fékk tiltal frá föður sínum – „sem bað mig vinsamlegast um að þvælast ekki svona aftur,“ segir Brynjólfur og hlær. „Börn í gamla daga voru svo frjáls.“ Sextán ára gamall flæktist Brynjólfur með vini sínum til Sandgerðis, þar sem honum bauðst að vera kokkur um borð í Guðbjörgu. Þrátt fyrir að hafa enga reynslu af eldamennsku sló Brynjólfur til og greip gamla kokkabók frá Jóninnu Sigurðar- dóttur. „Ég var alveg ægilega sjó- veikur,“ segir Brynjólfur, en það kom ekki í veg fyrir að hann gæti eldað kjötsúpu ofan í áhöfnina. „Sama hvað ég gerði, ef það var heitt þá var það í lagi.“ Allt fraus sem frosið gat Samhliða því að klára nám við Stýrimannaskólann sigldi Brynjólfur á Ólafi Jóhannessyni, togara frá Patreksfirði, og togar- anum Mars. Það var á síðarnefnda skipinu sem Brynjólfur lenti í einni minnisstæðustu atburðarás ævi sinnar, sem síðar hefur verið nefnd Nýfundnalandsveðrið. Það var um vaktaskipti að kvöldi 9. febrúar 1959 þegar brast á aftakaveður N-NA af Nýfundna- landi í Kanada. Þar höfðu íslensk skip verið að veiðum við hinn svokallaða Ritubakka, þar á meðal Þorkell Máni úr Reykjavík, Harðbakur frá Akureyri, Vöttur frá Eskifirði og Mars, hvar Brynjólf- ur var um borð. Þrátt fyrir að von hefði verið á slæmu veðri kom það skipverjum í opna skjöldu, aftaka- veðrið brast á eins og hendi væri veifað og menn þekktu ekki til slíkrar ísingar. „Við náðum að drífa trollið inn og þegar búið var að gera allt sjó- klárt var farið að slóga og lóna upp í veðrið. Frostið var svo mikið og sjórinn var svo kaldur, mínus tvær gráður, vindurinn var um 10 vind- stig. Við höfðum oft verið í svoleiðis roki áður, en frostið var svo mikið og sjórinn svo kaldur að það fraus nærri allt sem kom inn. Maður sá þegar pusið kom á brúna og það fraus, seig aðeins niður og svo var það fast. Svona hlóðst á skipið.“ Brynjólfur minnist þess hvernig allir vírar og kaðlar á Mars hlóðu utan á sig ís þannig að jafnvel grennstu spottar voru orðnir eins og faðmar að ummáli. Vanturinn á skipinu, sem var uppi á brúnni, var þannig orðinn einn klaka- bunki. „Allir voru því ræstir út til að berja klaka,“ segir Brynjólfur. Dekkið var orðið ísilagt og skipið því mjög þungt, sem gerði allar veltur þeim mun dýpri og þyngri. „Við höfðum stundum bakborðs- beitivind til að fá pusið skáhallt yfir skipið svo það lenti ekki allt á brúnni. Ég var í því að reyna að halda einum glugga opnum svo- leiðis að maður sæi út, allt hitt var orðið frosið. Baráttan um nóttina var í þessu, að halda skipinu vel til upp í veðrið.“ 63 föðurlaus börn Morguninn eftir tilkynnti loft- skeytamaður að ekki hefði náðst samband við togarann Júlí frá Hafnarfirði. „Júlí svarar ekkert,“ hefur Brynjólfur eftir loftskeyta- manninum og bætir við að þá hafi mönnum orðið ljóst að togarinn væri farinn. Allir um borð fórust í því sem er talið vera eitt hörmuleg- asta sjóslys í útgerðarsögu Íslands. „Þarna skeði ótrúlegt sjóslys. Þetta voru 30 menn. 63 börn urðu föðurlaus, flest úr Hafnarfirði. Enginn veit almennilega hvers vegna Júlí fórst. Kannski tókst þeim ekki að gera almennilega sjóklárt. Það sem bjargaði okkur var að við vorum að byrja túrinn og vorum því léttari á sjónum.“ Fleiri skip lentu í miklum hrakn- ingum í veðrinu, til að mynda Þorkell Máni, sem hafði þá lagst á hliðina og fengið sjó inn um brúargluggann bakborðsmegin. Brynjólfur telur að snarræði vél- stjórans um borð hafi bjargað því að ekki hafi farið verr hjá Þorkeli Mána. Öllu lauslegu var hent frá borði, davíðurnar fjórar aftan á bátadekkinu voru logsoðnar af og björgunarbátunum sleppt, „enda orðnir eitt klakastykki,“ að sögn Brynjólfs, sem bætir við að það hafi „bjargað þeim mikið“. Eftir að skipverjar höfðu brotið klaka í einn og hálfan sólarhring fór veðrið loksins að lægja og seg- ir Brynjólfur að Mars og Þorkell Máni hafi lónað saman í suðaust- ur í átt að heitari sjó. Þrátt fyrir hrakningana segist Brynjólfur ekkert hafa verið uggandi við að fara aftur á sjó. „Nei. Meðan á þessu havaríi stóð, eitt skipið hafði farið niður og ann- að var í vandræðum, þá held ég að enginn hafi hugsað þegar við vor- um að berja klakann að við vær- um að redda okkur til að sökkva ekki. Hugsunin fór ekki svo langt. Það var bara verk að vinna og það var gengið í það af krafti að berja klakann.“ Það hafi ekki verið fyrr en á heimstíminu, sem tók fjóra sólarhringa, þegar menn um borð í Mars náðu loksins sambandi við fjölskyldur sínar að þeir „fóru að hugsa hvað þeir hefðu sloppið vel,“ segir Brynjólfur. Brynjólfur g. Halldórsson skipstjóri var 50 ár á sjó og hefur nú verið 20 ár í landi. Hann hefur marga fjöruna sopið og oft komist í hann krappan, til að mynda í hinu alræmda nýfundnalandsveðri árið 1959 þegar Júlí fórst með 30 sjómönnum innanborðs. Brynjólfur ræðir atburðina, lærdóminn og ferilinn. Brynjólfur gunnar Halldórsson skipstjóri er fæddur í reykjavík og alinn upp á Laugarnesi. Hann á langan starfsaldur að baki á sjó, en hafið kallaði strax þegar hann var strákur. Mikilvægt að leyfa fólki að sanna sig Frostið var svo mikið og sjórinn svo kaldur að það fraus nærri allt sem kom inn. maður sá þegar pusið kom á brúna og það fraus, seig aðeins niður og svo var það fast. Svona hlóðst á skipið. 42 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.